Vikan - 16.05.1991, Síða 5
TEXTI: ÞJM/LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Þær verða fulltrúar íslands í fegurðarsamkeppnum erlendis næstu mánuðina. T.v. Sigrún Eva, Svava
og Sólveig. Við getum verið stolt af þessum sendiufulltrúum íslenskrar fegurðar.
Svava ásamt Kristjönu Geirsdóttur, sem um
nokkurra ára skeið var framkvæmdastjóri
fegurðarsamkeppninnar. Nú er það Gróa
Ásgeirsdóttir, sem heldur um stjórnvölinn.
Thelma Birgisdóttir, sem varð í 4. sæti var einnig
valin Ijósmyndafyrirsæta ársins. Hún er hér
ásamt foreldrum sínum, Stellu Olsen og Birgi
Ólafssynl.
SKALAÐ FYRIR URSUTUNUM
Golden Girls úr Módel 79 skála í kampavíni fyrir glæsilegu kvöldi. Sýningarsamtök þeirra sýndu
gestum kjóla frá tískuversluninni Gala.
Ásta Sigríður Einarsdóttir laus við kórónuna.
Hún er hér með Baldvini Jónssyni, sem fer með
umboð fyrir þær erlendu fegurðarsamkeppnir,
sem ísland sendir keppendur til.
um samkomugesta og hafði hann ritað á seð-
ilinn nafn kunningja síns, sem ekki var við-
staddur - en varð aö vonum hinn ánægðasti
með að fá óvænt í hendurnar armbandsúr að
verðmæti um 50 þúsund krónur.
Þess má geta, að fegurðardrottning íslands
fékk að gjöf úr sömu tegundar, frá Hermés,
auk fjölda annarra veglegra gjafa. □
Sólveig Kristjánsdóttir,
sem varð í 3. sæti, ásamt
móður sinni, Guðríði
Friðriksdóttur, og
fósturföður, Pétri
Rafnssyni.
Ekki brást keppnishöldurum bogalistin
við krýningu fegurðardrottningar ís-
lands þetta árið. Sami glæsileikinn yfir
smáu sem stóru eins og fyrr. Myndirn-
ar hér á síðunni voru teknar að lokinni
krýningu þegar skálað var í kampavíni fyrir
úrslitunum.
Dómnefndin studdist við atkvæðaseðlana úr
Vikunni, sem streymt höfðu inn í stórum stíl,
og einnig fengu gestir kvöldsins atkvæðaseðla
ásamt sérprentun úr Vikunni með kynningu á
keppendum.
Fegurðardisafræðingurinn Heiðar Jónsson
ásamt sínum eigin dísum, eiginkonunni Bjarkey
Magnúsdóttur og Sigríði Láru Heiðarsdóttur.
Eins og lesendur muna efndi Vikan til happ-
drættis um vandað armbandsúr frá Hermés.
Til aö vera með í happdrættinu þurfti ekki ann-
að en að rita nafn sitt á bakhlið atkvæðaseðils-
ins. Þau Valdís Gunnarsdóttir og Jón Axel,
sem önnuðust kynningar á krýningarkvöldinu,
drógu úr seðlunum á sviði Hótel Islands og
kom upp seðill sem útfylltur hafði verið af ein-
10. TBL. 1991 VIKAN 5