Vikan


Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 17

Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 17
FRAMTÍDARMAÐURINN FORTÍÐARMADURINN Næst leggur Vikukonan leið sína til spákonunnar í stóru blokkinni. Heimiliskötturinn tekur á móti henni, fallegur og vel haldinn. Spákonan, einhvers staðar á miðjum aldri, er klædd í leðurbuxur og lausa mussu, með rúllur í hárinu og bundiðyfir. íbúð- in er ekki stór og sennilega vantar eitthvað á að eigur konunnar rúmist vel þarna. Alls staðar eru kerti, kveikt á sumum og andrúmsloftið hlýlegt og notalegt. Það er enginn asi á spá- konunni sem býður bleksterkt kaffi og súkku- laði með. „Svona ef þú átt þá betra með að drekka þetta. Sumir geta helst ekki drukkið sterkt kaffi. Það er svo leiðinlegt að fást við hálftóma bolla," segir hún afsakandi og á ör- ugglega við að með þunnu kaffi komi litlir við- burðir í bollann. En bollinn er tæmdur, kaffið reynist gott og svo er haldið inn í spástofuna sem er raunar svefnherbergið og þar er bollinn settur á ofn. „Stokkaðu nú þessi spil fyrir mig,“ segir spákonan þýðlega, „og dragðu svo innan úr bunkanum, alls ekki efsta eða neðsta spil.“ Þetta er gert og á borðinu myndast svokölluð tvöföld stjarna. „Fortíðin þín hefur nú ekki verið nógu björt og mér finnst eins og þú hafir átt í erfiðleikum ( bernsku, jafnvel strax sem ungt barn. Samt varstu ekki svo ung að þú hafir ekki gert þér fyllilega grein fyrir því. Og svo sé ég að núna er eins og þú vaknir annan daginn og finnist allt leika í lyndi en hinn daginn sjáirðu erfið- leika. Ég myndi nú samt ekki segja að þú sért neitt andlega veik eða eigir við andlega erfið- leika að stríða." - Ja, nú varð útsendarinn feginn! „Nú, svo er hérna fortíðarmaður sem hefur einhvern veginn tekist að taka frá þér sjálfs- traustið. Þetta er svona maður sem er eins og tveir menn. Hann er mjög viðkunnanlegur ( vinnunni en svo þegar heim er komið er hann þurr og óþægilegur. Hann hefur haft talsverð áhrif í þá átt sem ég nefndi. En framtíðarmað- urinn er allt öðruvísi. Hann þolir vel sjálfstæði annarra og er ánægður með þig. Fortíðarmað- urinn var mjög ólíkur þér en þið framtíðarmað- urinn eigið miklu meira sameiginlegt. Samt er eins og framtíðarmaðurinn virðist yngri en þú, gæti bara verið að hann hafi reynt minna um dagana." Nú er mál að reykja og það gera bæði gest- urinn og spákonan. Á meðan á því stendur segir spákonan frá sjúkrahúsvist sinni og að- gerð sem hafði ákveönar afleiðingar. „Ég varö fyrir svona læknamistökum," útskýrir hún en alveg án beiskju. Svo snýr hún sér aftur aö spánni. „Hafðu ekki áhyggjur af barni sem mér sýn- ist að sé drengur. Hann spjarar sig. Kannski eru þetta bara mömmuáhyggjur en þær eru óþarfar. Nú, ég sé að það er bjart yfir heimilinu þínu en það er nú samt ekki alltaf bjart yfir þér. En það er allt á uppleið. Ég sé að þú ert vel snyrt og máluð. Læknarnir sögðu við mig á spítalanum að það væri batamerki þegar ég var farin að mála mig og reyna að halda mér til. En ég kann annars ekkert að mála mig. Er óttalegur klaufi við það.“ Vikukonan getur ekki að sér gert að hugsa með sér hvað það virðist algengt að þessar vísu konur segi svolítið frá sjálfum sér í leiðinni. En spákonur lúta sennilega öðrum lögmálum en flestir aðrir. Og nú víkur hún að fjármálun- um. „ „Það hafa verið einhverjir erfiðleikar í pen- ingamálunum undanfarið en þar er að rofa til. Það er allt á réttri leið. Nú svo kemur hérna vinnan þín. Þar er allt fullt af pappír og bréfum, alls konar pappír sem þú ert að sýsla við. En það er að sjá að þú hafir kannski lagt bækurn- ar fullfljótt frá þér þegar þú varst yngri. Bráð- lega verður sett á þig meiri ábyrgð og þá ferðu í frekara nám en fremur stutt. ##Þetta er fallegur lófi og sjaldgæft að sjá svona listrænar línur óbrotnar. Þarna eru tvær, sem þýðir að þú verður svona 82—85 ára.## Héma kemur það aftur, þetta með fortíðar- manninn sem eyðilagði sjálfstraustið en fram- tlðarmaðurinn byggir það frekar upp. Þú hefur heldur ekkert að gera við mann sem brýtur þig niður.“ - Hefur það nokkur? Útsendari Vikunnar gat ekki stillt sig. „Nei, sjálfsagt ekki. En hérna koma aftur erf- iðleikar ( æsku og það er eins og þú hafir átt ( vandræðum með aö aðlagast eða vera með hinum í skóla. Núna áttu auðvelt með að nálg- ast fólk og umgangast það.“ Að svo búnu vindur hún sér [ lófalesturinn. „Þetta er fallegur lófi og sjaldgæft að sjá svona listrænar línur óbrotnar. Þarna eru tvær, sjáðu. Og líflínan, hún fer hérna alveg niður sem þýðir að þú verður svona 82-84 ára. Og það sem meira er, þú munt geta hugsað um þig sjálf fram á síðasta dag. Þarft ekki að fara að stofnun eða elliheimili. Hérna virðist eins og þú eigir þrjú börn.“ Hún lætur konuna leggja litla fingur fram yfir lófann og rýnir í fellingarnar sem myndast á handarjaðrinum. „En það getur ekki passað því ég held að þú eigir bara tvö. Samt er þetta þriðja hérna. Það er eitthvert barn sem þú læt- ur líða betur með því að tala við það eða leyfa því að vera nálægt þér. (Hvað sagði ekki gamla konan með baunasúpuna?) Nei, ég skil þetta ekki alveg. Þú átt eftir að vera mikið er- lendis og mér sýnist þú hafa búið eitthvað er- lendis. Ég er ekki að segja að það verði á sama stað. Þið hjónin eigið líka eftir að vera mikið á stað hér á landi þar sem há fjöll eru á báða vegu en þó hærri þeim megin sem þétbýlið er. Þetta er við fjörð og mér sýnist staðurinn vera kaup- staður. Og svo á sveitaheimili, fallegt og hlýlegt, að koma við ykkar sögu og líka sumar- bústaður þar sem verður mikill gróður. Ertu viss um að þú vitir ekki nú þegar af staðnum þar sem hann verður byggður?" - Nei, enga hugmynd og er ekki að fara að byggja bústað. „Ja, það var skrítið." Spákonan reynir með öllum ráðum að finna leið til að fá jákvætt svar og þegar ekkert gengur er hún alveg undr- andi en reynir ekki meira. „Nú ég sé ferðalög um landið enda áttu eftir að sjá mikið af því. Ég yrði ekki undrandi þó þú ættir Austfirðina alveg eftir. (Hver kjaftaði frá?) Hins vegar ertu ekkert fyrir tjaldútilegur eða ferðalög í þeim dúr. (Og hvernig sá hún það? Blautt tjald og kalt vatn, ekkert snyrtiherbergi - oojjj!) En það má líka segja að þér finnst í rauninni ekkert vera ferðalag nema það sé far- ið til útlanda. (Ja hérna, sú er klók!) Og svo kemur hérna húsið sem þú býrð í. Það er greinilegt að þið eruð með eigin inn- gang og þurfið ekkert undir aðra að sækja. En hvort þetta er rað-, par- eða einbýlishús get ég ekki sagt.“ - Það er einbýli. „Nú, er það? Það finnst mér skrítið því flestir flytja ekki nema einu sinni í einbýlishús en þið eigið eftir að flytja í annað. Það eru flutningar framundan, eftir svona eitt til eitt og hálft ár. En þið eruð eitthvað farin að hugsa út í þann möguleika. Nú, þegar þið ákveðið að selja húsið þá þurfið þið eiginlega ekkert að hafa fyr- ir því. Það selst strax." Og þar með er komið að öðrum hlutum og gott ef það var ekki einmitt hér sem bollinn var sóttur af ofninum. „Þú verður fyrir talsverðri öfundsýki og sam- fara henni kjaftagangi. Það er mest frá konum. Það er iíka þannig og þú þekkir það vel að stundum er eins og þú rekist á vegg þegar þú hittir konur. Nú, svo er hérna einhver stórvið- burður, eins og stórafmæli eða ættarmót, ein- hver veisla framundan. Þarna verður margt fólk sem þú þekkir mismunandi vel og sumt hefurðu ekki séð lengi. En hérna kemur mað- urinn þinn. Honum þykir vænt um þig og metur þig þó hann sé ekki alltaf að tala um það. En Frh. á bls. 40 10. TBL.1991 VIKAN 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.