Vikan


Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 45

Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 45
áfengisneyslu foreldris á heimili sínu, er stöðugt með áhyggjur, sem eru augljóslega heftandi fyrir gleði þess og hamingju. Það veit aldrei hverju það á von á og þá hvenær holskefla drykkjunnar tekur á sig óviðráðanlegar myndir. Áhyggjurnar ná útfyrir heimilið. í skólann verður barnið að fara, jafnvel þó það sé kannski búið að taka út ómælt magn áhyggna um nóttina vegna þess að mamma var á fylliríi eða pabbi týndur einhver staðar með brennivín upp á vasann. Kannski eru jafnvel bæði ofur- seld þessum hræðilega sjúk- dómi sem margan ágætis- manninn hefur lagt að velli og hrellt þá sem viðkomandi elska. Þessi börn fá litla miskunn því þau veigra sér við að ræða ástandið af ótta við að þaö kunni að auka vandann og að þau fái jafnvel skammir fyrir blaðrið. Þessi börn eru miklu áhyggjufyllri en flest önnur börn og fæst þeirra sjá leið út úr áhyggjum sínum. Enginn er kannski að spá í augljósan vanda þeirra vegna þess að sjúkdómurinn, áfengissýki, gerir okkur ófær um að sjá nokkuð nema möguleikana á að detta í það. Við getum ekki bæði verið ofurseld áfengi og á sama tíma velt okkur upp úr því að við séum aö gera börn- unum okkar ófært að lifa áhyggjulausu lífi. Slíkarvanga- veltur valda okkur óneitanlega sektarkennd. Þessi áhyggjufullu börn eiga svo sannarlega bágt og kvíða flestum helgum og jafnvel nóttunum líka. Þau geta nefni- lega ekki reiknaö út umfang áfengisneyslunnar, hvað þá hvenær hún á sér stað og hve lengi hún stendur yfir. Þau eru fullkomlega varnarlaus og þann heltekna virðist ekki varða um það og það er hryggilegt. Þvi miður ríkir svona ástand alltof víða. Ef við verðum fyrir þeirri sorg í æsku að annað hvort foreldra okkar veikist getur það valdið okkur miklum áhyggjum, sérstaklega þegar við gerum okkur ekki grein fyrir hvers vegna þau annaðhvort liggja í rúminu heima, jafnvel langtímum saman, mikið veik eða eru kannski langdvölum á hinum ýmsu stofnunum. Við verðum á þessum árum örvingluð af áhyggjum. Ef ann- aðhvort pabbi eða mamma deyr vitum við ekki hvers vegna og hvað raunverulega bíður þeirra. Áhyggjuefnin verða ótrúleg eins og: Kemst mamma í himnaríki? Voru englarnir kannski sofandi þeg- ar hún dó? Kemst hún hjálpar- laust fram hjá Ijóta kallinum? Ástvinamissir er mjög erfið reynsla flestum börnum og ekki síst vegna þess að þau eru flest tiltölulega illa undir dauðann búin af okkur foreldr- unum og kerfinu ekki síður. Því miður er dauðinn sáralítið ræddur við börn og því fer sem fer. Þau verða flest skelf- ingu lostin þegar hann ber að dyrum heima hjá þeim. Á unglingsárunum aukast áhyggjuefnin verulega og ekki að ástæðulausu. Þá eru aS eiga sér stað miklar breytingar í hugsun okkar og líkama. Graftarbólur og aukakíló eru klassísk áhyggjuefni unglinga. Eins eru áhyggjur út af því að við erum einkennilega ófríð, að okkur finnst sumum hverj- um á þessum árum, og ekki fræðilegur möguleiki að við komumst á séns. Það er vissu- lega erfitt aö vakna á morgn- ana ef ástandið er eitthvað í þessa áttina. Ýmiss konar út- litsáhyggjur geta hreinlega drepið okkur á þessum erfiðu og of sjálfmeðvituðu árum. Áhyggjur af því að við séum kannski andfúl eða lyktum af ótæpilegri svitalykt eru dag- legar. Andremmuúði er ótæpi- lega notaður og svitabrúsinn sífellt í notkun þannig að deila má um hvort við hreinlega séum ekki yfirmenguö meira og minna allan sólarhringinn. Eins er ef við förum í sund á þessum árum. Þá erum við helst í tveggja metra fjarlægð frá félögunum vegna þess að við höfum gleypt svo mikinn klór að hætt er við að við út- öndun komi fnykur sem virkar eins og opin klórflaska hafi bæst í hópinn. Ekki er óal- gengt að peysur séu óþarflega síðar á þessum árum vegna þess að við reynum að fela bakhlutann af áhyggjum yfir því að líta út eins og strætó að aftan. Þegar við förum á fyrsta stefnumótið erum við lyktandi eins og heill rósagarður og venjulega miður okkar eftir að hafa bókstaflega tekið okkur og alla heima á taugum af áhyggjum yfir að vera ekki nógu smart og sexí f vextin- um. Þennan eftirminnilega dag eru Ifka í gangi áhyggjur yfir því hvernig tekst til með kossinn, ef yfirleitt er séns á honum, ásamt því hvort við náum með tiltækum ráðum að negla viðkomandi fórnarlamb ástarinnar og slá ævilangri #f I uppvextinum er áfengisneysla foreldra eða annarra sem okkur eru kærír mikið áhyggju- efni og þungbært, II II ÞaÓ veit aldrei hverjuþaÓ á von á ogþá hvenær hobkefla drykkj- unnar fekur á sig óvió- ráÓanlegar myndir, 11 11 Því miÓur er dauÓinn sáralítíÓ ræddur vió böm og því fersem fer, Þau verÓa Hesf skeHingu iosfin þegar hann ber aÓ dyrum, 11 11 ViÓ verÓum áhyggju- full vegna ihúÓarkaupa, afvinnumöguleika, álits annarra á okkur og hvorf viÓ yfirleift göngum úf og eignumst börn, 11 eign okkar á þessa elsku. Þegar við svo erum komin út í lífið sem fullorðið fólk fækkar ekki áhyggjunum heldur fjölg- ar svo um munar. Við verðum áhyggjufull vegna íbúðar- kaupa, atvinnumöguleika, álits annarra á okkur og hvort við yfirleitt göngum út og eign- umst börn. Við reynum sjaldn- ast að íhuga hvort við getum tölfræðilega reiknað út líkur á því hvort það sem áhyggjum veldur geti yfirleitt átt sér stað. Hætt er við að áhyggjuefnum okkar myndi snarlega fækka ef við íhuguðum þennan bráð- skynsamlega möguleika. Sumir foreldrar eru frægir fyrir áhyggjur af börnum sínum, þeim til mikilla leiðinda og foreldrunum tilefni ótrúleg- ustu hugsana og athafna sem venjulegast eru nánast óháðar karakter viðkomandi. Við stelpurnar þekkjum athuga- semdir eins og: „Þú kemur heim nákvæmlega tíu og mundu að það er bara eitt sem strákarnir vilja." „Ertu búin að læra eða á að endurtaka ein- kunnina tvo í nokkur skipti í viðbót?" Áhyggjur foreldra ná stund- um út yfir allt velsæmi. Jafnvel þó við séum flutt að heiman er verið að fylgjast með einu og öðru jafnt sem áöur. í stuttu símtali geta auðveldlega kom- ið spurningar eins og þessar: „Ertu ekki í ullarsokkunum á nóttunni, elskan? Þú veist að þú færð kvef af minnsta til- efni.“ Svo er kannski sagt: „Varla fer maðurinn að láta þig keyra eina í Kópavoginn; þaö er komið kvöld og þú þarft að fara fram hjá kirkjugarðinum. Þú hefur alltaf verið svo hrædd við drauga, elskan mín.“ Ekki batnar það þegar kannski í sama samtali er sagt: „Þú manst að læsa útidyrahurðinni áður en þið farið að sofa, elskan. Þaö er svo furðulegt fólk sem gengur laust.“ Já, það er óhætt að segja að þarna séu góð skilyrði til að halda endalausum áhyggjum við og vel það. Afi og amma hafa líka sínar áhyggjur, til dæmis af því hvort barnabörnin fari með bænirnar sínar á hverju kvöldi og fái lýsi á morgnana. Þau hafa líka áhyggjur af þvi hvort nokkur tími sé fyrir veraldar- hyggju ýmiss konar til að rækta gömul og góð gildi í sál- inni á blessuðum barnabörn- unum. Eins velta afi og amma því fyrir sér hvort þessi eilífu vistaskipti sumra lítilla barna, stundum á einum og sama deginum vegna vinnu foreldra, fari ekki með börnin. - Þau verði kannski félags- og til- finningalega skert sem fullorð- ið fólk. Það sakar kannski ekki að geta þess að sumar áhyggjur eiga fullan rétt á sér og það eru til dæmis áhyggjur gamia fólksins sem verið er að henda út af sjúkrahúsum og annars konar hjúkrunarstofnunum í sparnaðarskyni. Þessar heimskulegu ákvarðanir stjórnvalda eru eitt mesta hneyksli seinni ára vegna þess að þetta fullorðna og las- burða fólk, sem í hlut á, getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Það er ekki verið aö velta fyrir sér afleiðingum af þess- um grimmdarlegu aðgerðum heldur einungis verið að horfa í aurana. Hætt er við að fs- lenskt þjóðfélag væri ekki það velferðarsamfélag sem það vissulega er ef ekki hefði kom- ið til óeigingirni og þrautseigja þeirra þreyttu og veiku ein- Frh. á bls. 49 10.TBL. 1991 VIKAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.