Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 43
VAR NÆSTUM HÆTT
VIÐ ALLT SAMAN
Útlitiö virtist samt sem áður
skipta miklu máli fyrir Kathy.
Hún fæddist og ólst upp í
Memphis í Tennessee. Þar út-
skrifaðist hún frá meþódista-
skóla og flutti síðan til New
York snemma á áttunda ára-
tugnum. Hún fékk lítið hlutverk
í mynd Milos Forman, Taking
Off, en þaö leið langur tími
áður en hún fékk næsta
hlutverk.
Árið 1983 fékk hún Tony-
verðlaunin fyrir hlutverk sitt í
leikritinu ’Night Mother og fimm
árum seinna fékk hún Obie-
verðlaunin fyrir leik sinn í
Frankie and Johnny at the
Clair de Lune. En þegar þessi
leikrit voru kvikmynduð fengu
leikkonurnar Sissy Spacek og
Michelle Pfeiffer hlutverkin.
„Svona er Hollywood víst,“
sagði Kathy þegar hún heyrði
að Michelle Pfeiffer, sem hún
dáir aö vísu mjög, hefði fengið
hlutverk fátækrar þjónustu-
stúlku í Frankie and Johnny,
en það hlutverk hafði Terrence
McMally skrifað með Kathy
sérstaklega í huga. Henni
fannst þá að hún væri ekki
nógu góð leikkona þar sem
hún var einfaldlega ekki nógu
aðlaðandi. Henni fannst allir
þurfa að líta svo vel út í Holly-
wood. Hún gaf því alla drauma
um frama í kvikmyndum upp á
bátinn og einbeitti sér að
sviðsleik í New York.
TÆKIFÆRIÐ
í FRUMSKÓGINUM
Svo kom að því að hún fékk
annað tækifæri til að leika í
kvikmynd. Sú hét A Play in the
Fields of the Lord og Kathy átti
að leika eiginkonu trúboða
sem fer inn í frumskóga Ama-
zon til að kristna indíána.
„Mér fannst ég þekkja
þessa konu,“ segir Kathy. „Ég
ólst sjálf upp viö mikla trú-
rækni á Biblíubeltinu svokall-
aða. Konan sem ég leik er
mjög áhugaverð fyrir mig; oft-
ast ógeðfelld og verður geð-
veik á endanum. Hún er sér-
staklega óaðlaðandi útlits,
svitnar mikið og hirðir ekkert
um útlit sitt.“
Hlutverkið var erfitt og vistin
í frumskóginum sömuleiðis
enda hafði konan ekki oft farið
út fyrir landsteina Bandarikj-
anna. Til að byrja með varð
hún fyrir „kúltúrsjokki" og létt-
ist um tíu kíló fyrsta mánuðinn
af þeim sex sem tók að gera
myndina. En þetta borgaði sig.
Nú er þessi þybbna, 42 ára
gamla leikkona loksins flutt til
Hollywood, eins og hún ætlaði
sér alltaf þegar hún var að al-
ast upp, og er þar að auki búin
að ná sér í gullhúðaða styttu
af hálfnöktum manni sem
gengur undir nafninu Óskar.
Hún hefur hann uppi á hillu í
stofunni hjá sér. □
10.TBL. 1991 VIKAN 43