Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 62
tvö, hestarnir og náttúran.
Hann sýnir okkur myndir af
þeim.
- Faðir minn kenndi mér að
lifa á náttúrunni, finna mat
sem fólk veit ekki að má
borða, leggja gildrur fyrir héra
ef maður er að sálast úr
hungri. Ég skýt ekki dýrin
nema í huganum. Þegar ég
var tólf ára átti ég það til að
vera að heiman í tvaer vikur í
senn, ég bjargaði mér bara
sjálfur.
Hann sér að ég trúi ekki því
sem hann er að segja svo
hann bætir við: - Þú verður að
muna að ég er Texasbúi. For-
eldar mínir voru ekki hræddir
um mig, vissu að ég gat bjarg-
að mér. Það hef ég einnig
kennt Lisu en við höfum bara
alltaf minni og minni tíma til að
fara í þessar ferðir.
Verður þú aldrei leiður á að
vera bara tvö í óbyggðum?
Hann kveikir sér í sígarettu
og segir: - Mér finnst það gefa
meira af sér að þekkja eina
manneskju mjög vel heldur en
að kannast við hóp fólks. Eng-
inn skyldi vera hræddur við að
sýna allar sínar tilfinningar,
líka þær neikvæðu. Karlmenn
hafa of lengi falið þessa hlið
sína en þetta getur verið góð
leið til að læra að þekkja sjálf-
an sig. Ég á ekki við að lífið
eigi að vera ein allsherjar
brúðkaupsferð. Við rífumst oft
en við sættumst líka jafnoft.
Þau hittust fyrst í dansskóla
sem móðir hans átti í Houston.
Þá voru þau nemendur þar,
hún var fimmtán ára og hann
tvítugur. Hann fékk áhuga á
henni en vissi ekki hvernig
hann átti að bera sig að svo
hann kleip hana í rassinn og
hélt að hún yrði ánægð með
athyglina. Það reyndist öðru
nær, henni fannst hún vera
niðurlægð fyrir framan fjölda
fólks. Þrátt fyrir þetta giftu þau
sig þremur árum siðar eða
1976.
Lisa var besti nemandi
tengdamóður sinnar. Hún hét
reyndar Haapaniemi að eftir-
nafni, er finnsk en eftirnafnið
var sytt í Niemi. Nú er þeirra
æðsta ósk að eignast barn en
sú hamingja lætur bíða eftir
sé. - Ég vona að það gerist
eitthvað fljótlega, segir hann. í
millitíðinni una þau sér vel í
frístundum sínum á búgarðin-
um með hestunum, fjórum
köttum, hundum og alifuglum.
Hann er mjög trúaður og
segir það fleyta sér yfir erfið-
leika. - Ég veit að það er til
kraftur sem stýrir okkur gegn-
um lífið. Það má kalla það
hvaða nafni sem er, guð,
Þau una sér vel á búgarðinum. „Mér finnst það gefa meira að þekkja eina manneskju mjög vel heldur en að kannast
við hóp af fólki,“ segir leikarinn vinsæli.
búdda, sál eða anda. Þess
vegna var hlutverk mitt í Ghost
eins og sniðið fyrir mig. Það
kallaði fram sitthvað sem ég
hefði þurft að vita þegar faðir
minn dó. Ég vil trúa því að
hann sé mér nálægur þótt ég
sjái hann ekki - og að hann viti
hversu heitt ég elskaði hann.
Hann dó svo snögglega að
við áttum margt ósagt. Ef hann
er ekki nálægur vona ég að við
hittumst aftur í öðru lífi svo ég
geti sagt honum þetta. Ég trúi
á endurholdgun.
Á andlitinu birtist þetta vel
þekkta heillandi bros sem fær
stelpurnar til að kikna í
hnjánum og dreyma dag-
drauma. Andstæður, trú, tár
og þor - allt fyrirfinnst þetta í
þeim umbúðum sem í þessu
lífi nefnast Patrick Swayze. □
Ellefu ára gamall fóru hné hans
illa í ameríska boltanum, en
hann náði sér nógu vel til að
leika síðar listagóðan
dansara...
Patrick Swayze á hraðri leið á toppinn 1987 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dirty
Dancing. Hér er hann í einu af mörgum dansatriðum myndarinnar með Jennifer
Grey.
íslenskir sjónvarpsáhorfendur muna vel eftir Patrick Swayze í hlutverki
byltingarhermannsins Orry Main í myndaflokknum, sem gerður var 1985.
62 VIKAN 10.TBL1991