Vikan


Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 36

Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 36
Hér má sjá væna biðröð fyrir utan Glaumbar. Neðri myndin er frá þeim stað er ber hið frumlega nafn N1 BAR. „Vitum við hvað þessi ímyndaða gleði lcostar okkur?" Bjórinn hefur ekki aðeins bjartar hliðar og það kom skýrt fram í máli þeirra sem að áfengisvörnum standa. „Ég hef ekki hitt neina manneskju sem getur sagt að ástandið hafi batnað. Það er mikið talað um bjórmenningu en hvað er það? Fólk reykir ekkert ööruvísi þótt það reyki nýja tegund," sagði Kristín Waage, félagsráðgjafi hjá SÁÁ, og flestir við- mælendur okkar voru henni sammála. „Það sem maður heyrir allt í kringum sig er aukin neysla á virkum dögum og að bjórinn sé mikið notaður sem „afréttari" daginn eftir drykkju og á mörgum heimilum er bjór jafnan til í ísskápn- um. Það er eins og fólk geri sér ekki grein fyrir að bjór er áfengi." Þótt engar kannanir hafi verið gerðar um drykkju unglinga er það viðtekin skoðun að drykkja þeirra hafi aukist. „Hingað koma sífellt fleiri foreldrar en það þarf ekki endilega aö þýða það að drykkja unglinga hafi aukist," seg- ir Kristin. „Margir foreldrar beygja sig undir drykkju 15 ára unglinga og segja að það drekki hvort sem er allir. Þú getur sagt að unglingar hangi á diskótekum allar helgar og liggi i vídeóglápi virka daga. Þú getur líka sagt að unglingar séu almennt hraustir og stundi íþróttir. Þetta veltur allt á því frá hvaða sjónar- horni maður lítur málin." Um þá röksemd bjórmanna að bjórinn leiði til bættrar áfengismenningar hefur Jón K. Guð- bergsson, fulltrúi hjá Áfengisvarnaráði ríkis- ins, þetta að segja: „Menn tala oft um að fólk verði rólegra með bjór heldur en öðru áfengi en hvað blasir við manni í lögregluskýrslum? Þar sér maður svart á hvítu að svo er ekki.“ Jón segir að sér svíði það sárast hve litlum fjármunum hið opinbera verji til forvarnar- starfa. Rúmin á stofnunum, sem sérstaklega eru eyrnamerkt vímuefnasjúklingum, skipti hundruðum en allar grunnvarnir og fræðsla séu í fjársvelti. Gildir þá einu þótt ýmsir stjórn- málamenn hafi farið fögrum orðum um stór- aukna fræðslu í kjölfar bjórsins. Lionshreyfing- in hafi hins vegar skynjað hættuna af sinnu- leysi stjórnvalda í þessum málum og gefið ís- lensku þjóðinni kennsluefni sem ætlað sé fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans. Stóraukinn ölvunarakstur er meðal þess sem andstæðingar bjórsins hafa áhyggjur af og undir það taka löggæslumenn. Oft ætli menn aðeins að fá sér hálfan bjór en þegar upp er staðið hafi þeir orðið þrír eða fjórir. Fjölda slysa mætti rekja til drukkinna öku- manna og það er kannski ekki að ófyrirsynju þegar Jón K. Guðbergsson spyr: „Vitum við hvað þessi ímyndaða gleði kostar okkur?" Frh. af bls. 34 AÐ LOKNU RÖLTI Hvað situr svo eftir í höfðinu á manni eftir tveggja kvölda ráp á krár borgarinnar? Jú, það er ekki um að villast, kráin er komin til að vera í íslensku skemmtanalífi. Það sem meira er, hún er orðin ríkjandi þáttur þess. Krárnar hafa rofið margra ára einokun dansstaðanna á skemmtanalífi landans. Nú þurfa menn ekki lengur að borga sig inn til þess að setjast niður með kunningjunum og fá sér í glas. Hver sem hefur einhvern tíma dvalist í útlöndum og kynnt sér kráarlíf þar sér strax í hendi sér að íslensk kráarmenning ertalsvert öðruvísi. Hún ber miklu meiri keim af dansstöðum en tíðkast erlendis. Þar spilar tónlistarstefna staðanna einna helst inn í. í fáum tilvikum miðast tónlist- in við að vera þægilegt undirspil í eyru kráar- gesta þannig að ekki myndist vandræðaleg þögn ef samræðurnar ganga stirt. Það er þó vissulega fagnaðarefni að lifandi tónlist hefur aftur fengið að njóta sín eftir talsverða lægð í þeim efnum undanfarinn áratug. En oft er hreinlega um að ræða tónleika en ekki eigin- lega kráarmúsík og menn mæta á staðinn með alls konar tæki og tól til að magna upp kraftinn. í litlum húsum er slíkt oft megnasti óþarfi og einungis eyrnameiðandi. Kannski er það eitthvaö í íslenskri þjóðarsál sem gerir það að verkum að íslenskar krár eru frábrugðnar því sem tíökast erlendis. Kannski þurfum við háværa tónlist til þess aö komast hjá því að tala saman og lokum okkur þannig enn betur inni i eigin skel. Þess ber líka að geta að íslendingar eru nýgræðingar í þessum efnum og enn er alltof snemmt að tala um hefðir í sambandi við þessar nýsprottnu krár. Erlendis er kráin eitthvað sem hefur verið til um margra alda skeið og er hluti af menningu hvers lands - æskilegur eða óæskilegur - allt eftir því á hvern veg það er litið. Það veröur fróðlegt að fylgjast með framvindu kráarmála hér á landi í komandi framtíö. INNANSTOKKS Þó að kráarlíf og kráarmenning eigi sér litla hefð á íslandi ennþá má sjá ákveöna samsvör- Frh. á bls. 58 Franskur andi svífur yfir vötnunum. Róleg dreymandi stemmning á Blús-barnum. 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.