Vikan


Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 9

Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 9
LJÓSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON Hluti fjölskyldunnar samankominn í Hraunbænum. F.v. Jóhann Pálmason garðyrkjumaður, Einar Örn Birgisson, menntaskólanemi og unnusti Svövu, Svava, Rakel, systir Svövu og þjón á Ömmu Lú, Sigurður Helgason, unnusti Rakelar og einnig þjónn á Ömmu Lú, og Ragnheiður Eiríksdóttur hjúkrunar- nemi, stjúpsystir Svövu. LJÓSM.: þorsteinn erlingsson þessari keppni lyki og láta fara virkilega vel um mig, en því var ekki aö heilsa þar sem þetta fór eins og þaö fór.“ KÆRASTINN í VÍKINGI Hvaöa kosti þurfa strákar aö hafa til að bera svo þú fallir fyrir þeim? „Þeir þurfa aö vera hlýlegir, skemmtilegir og hafa gott skopskyn," segir Svava. „Ég vil aö þeir séu hugsandi og þroskaðir og lausir viö alla gelgjustæla, eölilegir, Ijúfir og þægilegir og séu ekki aö reyna að vera eitthvað annaö en þeir eru. Það sem fer mest í taugarnar á mér eru súkkulaðigæjar meö töffarastæla sem halda aö þeir séu einhver númer." Ertu lofuð? „Ég á kærasta," segir Svava. „Hann heitir Einar Örn Birgisson, er átján ára og stundar nám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hann er mikiö í íþróttum og spilar fótbolta meö Víkingi. Við kynntumst á þennan hefðbundna óróm- antíska hátt á skemmtistað. En þaö vill þannig til aö systir vinkonu minnar er gift bróður hans og þaö var í gegnum þau tengsl aö kynni okkar hófust fyrir um þremur mánuöum." Hvaö gæti ungfrú ísland hugsað sér aö eignast mörg börn? „Ég hef mjög gaman af börnum," segir Svava, „og ég gæti vel hugsað mér aö eignast þrjú til fjögur börn. Ég er vön stórri fjölskyldu þar sem viö erum tvær systurnar, mamma á tvö önnur börn, pabbi tvö fyrir utan stjúp- systkinin. Þannig aö ég vil gjarnan hafa marga í kringum mig þegar fram líöa stundir." PÓLITÍK Hefurðu áhuga á pólitík? „Nei, ég hef ekki mikinn áhuga á pólitík. Ég kaus í fyrsta skipti nú í alþingiskosningunum. Ég var alveg ákveðin í aö kynna mér vel fram- boösmál allra flokkanna áöur en ég færi á kjörstað en það varö því miður lítið úr því út af fegurðarsamkeppninni. Ég kaus því þann flokk sem mér líkaöi best viö út frá þeim litlu kynnum sem ég hef haft af stjórnmálum.“ Hvaö á aö gera í sumar? „Ég verö aö vinna í tískuversluninni Sautján í Kringlunni. Mér finnst þaö ágætt starf þar sem ég hef mikinn áhuga á fötum. Eins finnst mér spennandi aö prófa eitthvað sem ég hef ekki gert áöur. Einnig liggur fyrir aö fara til New York ásamt tveimur sólarlandaferðum til Ibiza og Benidorm [ boöi ferðaskrifstofunnar Veraldar. Þessar feröir eru hluti af því sem ég fékk í verðlaun í keppninni.“ Ekki ferðu ein í þessar ferðir? „Nei, ég fékk tvo miða, en þar sem kærast- inn minn er á kafi í fótboltanum á þessum tíma kemst hann ekki með þannig aö ég býst við aö ég bjóöi vinkonu minni eöa systur með mér.“ MÆTTI ELDA OFTAR Blaöamanni lék forvitni á aö vita hvernig væri aö búa meö Svövu og beindi því spurningum þess efnis til Ragnheiöar, stjúpsystur hennar. „Hún er mjög þægileg í sambúö,“ segir Ragnheiður. „Hún mætti elda oftar, en hún hefur aö sjálfsögöu ekki haft tíma til þess síð- ustu mánuðina. Það fer aö öllu jöfnu ekki mikiö fyrir Svövu og þótt stundum gusti hressilega af henni er þaö fljótt aö ganga yfir. Hún er í vogarmerkinu, fædd 10. október og er nokkuð dæmigerð fyrir manneskjur í því merki. Hún er mjög þrifin og vill hafa allt í röð og reglu í kring- um sig. í sumar stendur til aö foreldrar okkar Svövu komi frá Bandaríkjunum og þá munu heimilis- hagir eitthvaö breytast.“ Þar sem Svava fer er falleg, hjartahlý stúlka, full bjartsýni á framtíðina og hún er svo sann- arlega vel aö titlinum ungfrú ísland komin. Við á Vikunni óskum henni hjartanlega til ham- ingju. □ Það er eins gott fyrir Svövu að herða á lestrin- um því um þessar mundir eru prófin í Menntaskólan- um við Hamra- hlíð í fullum gangi. Þar stundar hún nám á náttúru- sviði. 10. TBL. 1991 VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.