Vikan


Vikan - 16.05.1991, Side 29

Vikan - 16.05.1991, Side 29
10. TBL. 1991 VIKAN 29 þeim hárgreiöslum sem hún hyggst nota og svo mætti lengi telja. Þetta verður umfangs- mesta tískusýning sem sett hefur verið upp á Islandi þegar allt er tekið með í reikninginn. Það þarf aö setja upp ýmiss konar aukabúnaö sem ekki er fyrir hendi, s.s. sjónvarps- vaktskjá fyrir stjórnendur sem þurfa aö hafa yfirsýn yfir allan skemmtistaðinn meðan á sýn- ingu stendur, flókinn Ijósabún- að, sérstakan göngupall o.m.fl. Það segir sig sjálft að tísku- sýningin veröur hápunkur Frh. á næstu opnu FURÐUFUGLINN MKHIKO KOSHINO Fyrir þrem árum var Michiko Koshino ekki mikið þekkt og þá helst fyrir uppblásnu jakkana sína. Hún átti litla búð, sem lítið fór fyrir, í London og ensk tísku- blöð tóku ekkert eftir henni. Hún var afbrigði sem tísku- heimurinn skipti sér ekki af, japanskur hönnuður sem bjó í London en ekki í París og forðaðist allar tískusveiflur. í staðinn einbeitti hún sér að skemmtilegum flíkum sem áttu að endast og lifði í skugga glæsihönnuðanna en á meðan var hún að koma sér upp litlu einkaheimsveldi sem nær nú frá Tokyo til Toronto og inni- heldur um 250 tískuverslanir. Nú er verslun hennar orðin ein af mest áberandi tísku- verslunum Lundúna og þó er hún ekkert lík tískuverslunum almennt. Þarna spila plötu- snúðar líflega músík allan lið- langan daginn og fatnaðurinn er fyrst og fremst ætlaöur fólkinu af götunni. Þetta eru föt á mótorhjólatöffara og föt handa unglingum sem eru að fara út að skemmta sér. Þetta er eins og byrjunin á veldi Carnaby Street upp á nýtt en með allt öðrum formerkjum þó. Þegar Michiko hitti plötu- snúðinn Johnny Rocca fyrir tveim árum, benti hann henni á hvað hún væri ekki að gera og hvað hún ætti að gera. Hann gerðist umboðsmaður hennar og í sameiningu hafa þau gert ótrúlegustu hluti. „Núna, árið 1991, ættu tískuhönnuðir ekki að hanna tískufatnað," segir Mishiko. „Það átti við árið 1970 en er Japanski fatahönnuðurinn Michiko Koshino, sem hingað er kominn til að kynna landsmönnum nýstárleg föt sin. orðiö úrelt í dag. Þeir ættu aö endurspegla það sem er að gerast I kringum þá, fylgjast með götulífinu. Heil kynslóð hefur breyst með klúbba- menningunni. Ungt fólk í dag kærir sig kollótt um tískuna. Það vill klúbbabúninga." Johnny og Mishiko eru sam- mála um aö I dag skiþti fatn- aöur ungs fólks ekki minna máli og tónlistin sem það hrærist (. Fyrir nokkrum árum þótti nóg að eiga ákveðnar þlötur eða diska til að vera með á nótunum. Fötin skiþtu ekki eins miklu máli. Nú er öld- in önnur. Maður einfaldlega verður að eiga ákveðnar flíkur til að vera gjaldgengur á al- mannafæri. Þetta er eins og á árunum 1966-67 áður en hippabyltingin skall á nema hvað sá fatnaður virðist vera frá allt annarri öld en það sem Mishiko Koshino er að fást við. Fatahugmyndir Mishiko fyrir sumarið eru farnar að líta dagsins Ijós. Þær tengjast, eins og áöur, þeim straumum sem ungt fólk hrærist I og eru síbreytilegir. En þar sem hún sýnir það sem koma skal hér á landi 31. maí og 1. júní er eng- in ástæða til að Ijóstra neinu upp um það sem hún ætlar að sýna okkur. □ klæða fyrirsæturnar og æfa. Allar fyrirsæturnar verða ís- lenskar en þannig vill sú jap- anska hafa það. UÓSUM BAÐAÐIR KLÚBBGESTIR Áður en Michiko samþykkti að koma hingað þurfti að sýna henni viðamikið myndaefni frá íslandi, til dæmis myndbönd og auglýsingar, og svo fékk hún myndir af fyrirsætum lce- landic Models en hún velur sjálf það fólk sem henni líst best á. Viku fyrir sýninguna sendir hún myndir hingað af

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.