Vikan


Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 30

Vikan - 16.05.1991, Blaðsíða 30
BYLTING í TÍSKU Frh. af bls. 29 kvöldsins en þaö verður boðiö upp á ýmislegt annað á undan henni og eftir, svo sem leik- hópa, gerninga og alls kyns uppákomur. Tveir breskir plötusnúðar skipta með sér verkum og staöurinn veröur myndarlega skreyttur bæði að utan og innan. Fyrir ofan hann utanverðan verða tveir heil- miklir veðurathugunarbelgir með vörumerki Michiko og verða þeir lýstir upp með sterkum kastljósum og gestir hússins verða sömuleiðis bað- aðir Ijósum þegar þeir labba inn í húsið. LÍNURNAR LAGÐAR Á ÍSLANDI Einn af þekktustu götulista- mönnum heimsins í dag, Bret- inn Goldie, hefur verið fenginn til að myndskreyta Yfir strikið; efri hæðina til að byrja með. 1 framtíðinni verður lagt mikið upp úr því að gera staðinn sem mest spennandi, enda kostar kr. 850 inn á betri staði í dag og fólk vill fá eitthvaö fyr- ir peningana umfram það sem fæst á venjulegum bjórkrám. Þegar best lætur ættu vissir skemmtistaðir í Reykjavík að geta hænt að sér erlenda sjón- varpsmenn, t.d. frá MTV, BBC2 o.fl. og blaðamenn frá tímaritum á borð við Face, New Musical Express, Melody Maker og Record Mirror. Þetta er ekkert út í bláinn vegna þess að þessir menn hafa þegar komið hingað og hafa fullan hug á að birtast hérna af og til aftur, enda hafa þeir beinlínis hagnýtar ástæð- ur til þess. Sú kynning sem ísland hef- ur fengið í þessum fjölmiðlum hingað til er á þá leið að ísland sé ekki bara hreint og ósnortið heldur Ifka framandi í skemmt- analífinu. Þotuliðið, sem hefur farið flugleiðis til Ibiza, Amster- dam, New York og víðar til að skemmta sér um helgar, hefur nú fengið brennandi áhuga á íslandi. Ibiza var aðaltísku- staðurinn árið 1989 en nú er svo komið að ísland er komið efst á listann yfir þá staði sem efnað, ungt fólk hefur mestan áhuga á að heimsækja til að spá í næturlífið. Það skiptir því miklu máli að hægt sé að halda uppi ákveðnum gæða- kröfum hérna því nú er svo komið að ísland er ekki aðeins á heimsmælikvarða hvaö skemmtanalíf snertir; heims- mælikvarðinn er beinlínis far- inn að taka mið af (slandi. □ 30 VIKAN 10. TBL. 1991 Svo virðist sem tími tískujöfranna sé smám saman að líða undir lok en um leið gefst nýjum hönn- uðum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Tísku- og handa- vinnuklúbburinn Nýtt af nálinni hefur nú efnt til spennandi, op- innar samkeppni um hönnun og útfærslu á nýjum, íslensk- ^ um fatnaði og er þátttakan öll- ^ um heimil. Verulega vegleg Y^> verðlaun verða veitt fyrir bestu hugmyndirnar. (j) Skilyrði fyrir þátttöku eru (j) þau ein að hugmyndin sé Li-J frumunnin og hafi ekki birst ~Z. áður, hvorki hér á landi né er- Z lendis. Þær hugmyndir sem }i! hljóta verðlaun og viðurkenn- 'iQ. ingarverðasíðanbirtarítíma- O riti klúbbsins, Nýtt af nálinni, d. ásamt vinnuleiðbeiningum og pf sniði til að sem flestir geti út- Q fært hugmyndirnar. Flíkum og 1= öðrum útfærslum þarf að skila fullbúnum ásamt góðri vinnu- lýsingu og/eða sniði. Það er til mikils að vinna því að fyrstu verðlaun verða vikuferð til Dublin á írlandi fyrirtvo, ásamt gistingu á vegum Samvinnu- ferða-Landsýnar. Önnur verð- laun verða Overlook saumavél SPENNANDI SAMKEPPNI UM HÖNNUN Á ÍSLENSKUM FATNAÐI frá Pfaff. Einnig verða nokkrir módelskartgripir veittir sem viðurkenningar. Tísku- og handavinnuklúbb- urinn Nýtt af nálinni var stofn- aður árið 1987 á vegum bóka- forlagsins Vöku-Helgafells. Klúbbfélagar eru nú um sjö þúsund og fer þeim ört fjölg- andi. í tímariti klúbbsins eru birtar fjölbreyttar sauma- og prjónauppskriftir auk umfjöll- unar um fatatískuna á hverjum tíma. Klúbburinn tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, meðal annars við hin þekktu tísku- og saumablöð Knipp og Marion. Auk þess gengst hann fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf. Ritstjóri Nýs af nálinni er Ragna Þórhallsdóttir ásamt Unni Steinsson. En svo að við snúum okkur aftur að hönnunarsamkeppn- inni, þá þarf að skila fullbúnum hugmyndum til trúnaðarmanns dómnefndar, Rögnu Þórhalls- dóttur hjá Vöku-Helgafelli, Síðumúla 6 í Reykjavík, í sið- asta lagi föstudaginn 14. júni 1991. Ragna veitir allar nánari upplýsingar í síma 91-688300 á skrifstofutíma. í dómnefnd- inni sitja Arna Kristjánsdóttir hönnuður, Hulda Kristín Magnúsdóttir hönnuður og Unnur Steinsson ritstjórnarfull- trúi Nýs af nálinni. Og þá er bara að leggja höfuðið í bleyti og taka fram skærin og blýantana. □
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.