Vikan - 16.05.1991, Page 31
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON
FLOGAVEIKI
Frh. af bls. 27
annars man ég eftir að hafa heyrf hvemig floga-
veikum var útskúfað úr fjölskyldum sínum og til
eru dæmi þess að fólk, sem nú er orðið fullorðið,
kannist ekkert viö systkini sitt sem er flogaveikt.
En slíkt ástand er ekki eingöngu að finna á ís-
landi. í Noregi er til dæmis mikil barátta við
fordóma gagnvart flogaveikum. Aftur á móti er
aðra sögu að segja frá Svíþjóð. Ég tel að við
getum margt lært af Svíum I þessum efnum
því viðhorf þeirra til flogaveikra eru svo allt
önnur en við eigum að venjast. Þó margt megi
án efa finna að Svíum þá standa þeir sig ótrú-
lega vel hvað varðar allan aðbúnað og stuðn-
ing við flogaveika. Þar er þörfum þeirra mætt
án þess að þeim finnist þeir á einhvern hátt
skera sig úr fjöldanum. En ef við víkjum aftur
að ástandinu hér á landi er óhætt að segja að
fordómarnir komi víða fram. Við vitum meöal
annars af fjölda flogaveikra sem enn hafa ekki
gengið í félagið okkar einfaldlega vegna þess
að þeir vilja ekki láta bendla sig við flogaveiki.
Þannig að oft eru þeir flogaveiku einnig haldnir
fordómum. Þetta erfurðulegt ástand því floga-
veiki hefur alltaf verið til, margir þekktir ein-
staklingar úr mannkynssögunni voru flogaveik-
ir. Nægir þar aö nefna Sókrates, Sesar og
Napóleon sem allir voru flogaveikir. Einnig er
talið að John F. Kennedy hafi verið flogaveik-
ur. Ugglaust eru margir af frammámönnum
þessa lands einnig flogaveikir, þeir bara fela
það vegna hræðslu og fordóma.
- Hvaða aðferðum telur þú best að beita
til að sigrast á þessum fordómum?
Fyrst og fremst þarf þekking á þessum mál-
um að síast hægt og bítandi inn í þjóðarsálina.
Ég hef enga trú á áróðursherferðum, þær
springa alltaf eins og blöðrur og ekkert situr
eftir. Best væri að markviss kennsla ætti sér
staö sem víðast í þjóðfélaginu, til dæmis í
skólakerfinu. Það verður ekki fyrr en vanþekk-
ingin víkur fyrir þekkingunni að við vinnum á
fordómum gagnvart flogaveiki.
STARFSEMI LAUF
- Hver er megintilgangur Landssamtaka
áhugamanna um flogaveiki?
Að fræða og upplýsa félagsmenn og al-
menning um flogaveiki. Að bæta félagslega
aðstöðu flogaveikra og styðja rannsóknir á
flogaveiki. í sámtökunum eru jafnt þeir sem
eru sjálfir flogaveikir, aðstandendur og aðrir
sem hafa áhuga á málefninu.
- Veitið þið fólki, sem til ykkar leitar, ráð-
gjöf varðandi flogaveiki?
Við reynum að greiöa götu þeirra sem til
okkar leita sem best við getum. Við getum yfir-
leitt vísað fólki hvert það á að leita varðandi
þær spurningar sem upp kunna að koma.
Einnig eigum við mikið lesefni á erlendum mál-
um sem við lánum fólki vilji það fræðast um
flogaveiki.
- Hvernig er starfsemi samtakanna
háttað?
Við höfum haldið uppi fræðslu og upplýs-
ingamiðlun sem hefur nær eingöngu beinst að
félagsmönnum. Við fræðum þá meðal annars
um réttindamál flogaveikra, um lyf, um floga-
veiki almennt, mataræði og tannhirðu svo
eitthvað sé nefnt. En öllum er velkomið að
sækja fundi okkar hafi þeir áhuga á.
- Eru samtökin aðili að Öryrkjabanda-
lagi íslands?
Já og félagsmenn leita oft til Öryrkjabanda-
lagsins, til dæmis hvað varðar húsnæðismál.
- Hvert er helsta baráttumál samtakanna
um þessar mundir?
Það er að geta safnað nægilegu fé til kaupa
á greiningartæki sem notað er í Bandaríkjunum
og gerir það að verkum að eftir greiningu er
hægt að lækna um tíu prósent flogaveikra með
einfaldri skurðaðgerð. Tækið kostar um sex
milljónir króna og eins og gefur að skilja er af-
skaplega mikilvægt fyrir okkur að fá það hing-
að til lands.
- Lokaorð, Þorlákur.
Ég vil nota tækifærið og beina orðum mínum
til foreldra flogaveikra barna. Það er mjög mik-
ils virði að flogaveik börn séu að öllu leyti alin
upp sem önnur börn. Miklu skiptir að þau verði
eins sjálfstæð og sjálfbjarga og hægt er. Því
miður hefur mér virst sumir foreldrar vilja af
misskilinni góðmennsku hlífa börnum sínum
um of og ofvernda þau. Þetta er að mínu mat
stórhættulegt og barninu síst til góðs.
Um leið og Vikan þakkar Þorláki viðtalið er
rétt að benda á að skrifstofa LAUF er til húsa að
Ármúla 5 í Reykjavík. Símatímar eru á mið-
vikudögum og föstudögum frá kl. 13 til 17 í
síma 91-82833. Á Akureyri er símatími á
föstudögum kl. 10 til 12 í símum 96-25880 og
96-25881. □
GlAÐuR 2. £i/J$ SKS-RU- Li-öA 7? SPjoTi HHLvA HRRLaJ þoFi KA&l
c> / n
iP?1 Jí(\uc.kZ KUEJJ' íJAFfJ Z s >
m'al FUC.L- í/VaJ S&MÍIE-CiT s > v/
DXoPi Kejra bRuSLfí l'i tíl DRfíuip b H y/ >
MÍME^ SoL- (JuiÐ 5 > \ / Sumd /M/’ZXf- 'ATT ClK-ÍT) PiRi/VAJ
dótöJ 5 Vi K HAF V > > ?
5TAR.F~ ^Ti STi-js/6* SLAGc > > sA z/.
/ z s~ é> ? FPi-BiK 3
Lausnarorð í síðasta blaði 1-8: SUMARFRÍ
10.TBL.1991 VIKAN 31