Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 14
„NAUÐSYNLEGT AD SKREPPA
TIL REYKJAVÍKUR AP OO TIL"
- segir Rannveig Helgadóttir, fjórði keppandinn
í forsíðustúlkukeppni SAM-útgófunnar
Rannveig er Akureyringur og á meðan reykvisku keppendurnir styrkja kroppa sina i GYM 80 og sóla sig
hjá Sólbaðsstofu Reykjavikur stundar Rannveig sólbekki og líkamsrækt hjá Stjörnusól og Stjörnurækt
Geislagötu 12 á Akureyri.
Akureyringurinn Rann-
veig Helgadóttir er
fjóröa stúlkan sem
kynnt er í keppninni um titilinn
forsíöustúlka SAM-útgáfunn-
ar. Hún er fædd á Akureyri 5.
september 1971 og er því ný-
orðin tvítug.
„Ég er mjög nákvaem," segir
meyjan Rannveig, „eins og
margt fólk í meyjarmerkinu og
vil helst hafa allt fullkomiö. Það
á líka viö um mig aö vilja oft
breyta í herberginu mínu og
geri það stundum vikulega."
Rannveig útskrifast næsta
vor af myndlistarsviði Mennta-
skólans á Akureyri. í vetur hef-
ur hún jafnframt nám við
Myndlistarskólann á Akureyri
en þaö nám verður metið í
Menntaskólanum þar sem hún
hefur þegar lokið öllum bók-
legum fögum. Hún á ekki langt
að sækja myndlistaráhugann
því faðirhennar, Helgi Vilberg,
er skólastjóri Myndlistarskól-
ans á Akureyri. Móðir hennar,
Soffía Sævarsdóttir, vinnur á
skrifstofu skólans og systkini
hennar tvö sækja líka tíma
þar.
„Ég hef teiknað og málað
frá því ég mán eftir mér,“ segir
Rannveig, „og Myndlistarskól-
inn hefur eiginlega verið mitt
annað heimili."
Hvaða grein myndlistar ætl-
ar hún aö leggja fyrir sig?
„Ég veit það ekki enn.
Fyrsta áriö er fornám og síðan
kemur að því að velja sérnám.
Eina sérnámsdeildin á Akur-
eyri er málunardeild þannig að
ef ég vel eitthvað annaö, svo
sem auglýsingateikningu, verð
ég að fara suður og halda
áfram þar.“
Hvernig líst henni á þá
hugmynd?
„Bara vel. Ég á margt
frændfólk í Reykjavík og afi
minn og amma búa þar. Það
er gott að búa á Akureyri en
nauðsynlegt að skreppa til
Reykjavíkur af og til og breyta
um umhverfi. Raunar er ég
viss um að ég á eftir að fara
suður."
Er þá enginn sem heldur í
hana fyrir norðan - enginn
sérstakur vinur?
Rannveig hlær. „Nei, ég er
alveg ólofuð og er voða róleg í
þeim efnum. Það kemur sjálf-
sagt að því að ég eignast fjöl-
skyldu einhvern tíma en það
er nógur tími.“
Framtíðardrauma sína segir
Rannveig vera þá að fara utan
I framhaldsnám en hefur ekk-
ert sérstakt land í huga. Hún
segir mikilvægast að njóta
þess að vera til og lifa lífinu lif-
andi.
„Ég hef gaman af að ferðast
og á sjálfsagt eftir að gera
meira að því. Ég hef komið til
London, Amsterdam, Kaup-
mannahafnar og til Spánar en
langar mikið að komast til
Egyptalands og skoða pýra-
mídana. Vonandi rætist sú ósk
einhvern tíma.“
Tómstundum segist Rann-
veig verja til að synda og fara
á skíði enda sé Hlíðarfjall al-
veg við bæjardyrnar. Hún hef-
ur gaman af að fara í bíó og
finnst stórmyndir og spennu-
myndir skemmtilegastar. Hún
á þrjá síamsketti sem sjálfsagt
tekur líka drjúgan tíma að
sinna.
„Það er yndislegt að hafa
ketti enda hef ég alltaf átt
kött.“
Hvað gerir Rannveig um
helgar?
„Ég fer stundum á 1929,
sem er nýr skemmtistaður á
Akureyri, en mér finnst líka
gott að vera heima með fjöl-
skyldunni og slappa af.“
í sumar vann Rannveig í
bakaríi á Akureyri en hún hef-
ur líka unnið við að kynna Kók
og Sprite fyrir norðan og finnst
það skemmtilegt því það býð-
ur upp á að hitta margt fólk.
„Ég hef gaman af samskipt-
um við fólk og finnst spenn-
andi að kynnast nýju fólki. Það
er einmitt það sem mér þykir
spennandi við aö taka þátt í
þessari keppni. Ég hlakka til
að kynnast hinum stelpunum
og öllu í kringum þetta.“
Og ef hún vinnur, vílar hún
ekkerf fyrir sér að taka þátt í
fegurðarsamkeppni í útlönd-
um?
„Ég er ekkert spennt fyrir
fegurðarsamkeppnum en ég
hef áhuga á Ijósmyndun og
fyrirsætustörfum. Auðvitað
væri samt gaman að fara út ef
til þess kemur."
Svo er Rannveig rokin. Hún
ætlar að nota tímann í höfuð-
borginni vel og tekur stefnuna
á Kringluna. □
14 VIKAN 19. TBL1991
TEXTI: HELGA MÖLLER / LJÓSM ■ MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
HÁR: EYVI I HÁRÞINGI MEÐ JOICO OG MATRIX HÁRSNYRTIVÖRUM. FÖRÐUN: KRISTlN STEFÁNSDÓTTIR MEÐ NO NAME COSMETICS