Vikan - 19.09.1991, Side 36
LAXASNEIÐ FYLLT MEÐ
ÍSLENSKUM VILLISVEPP-
UM OG OSTI
4 sneiðar úr roöflettum og beinhreinsuðum
laxaflökum, ca 200 g stk.
200 g villtir íslenskir sveppir (furusveppir, lerki-
sveppir, rauðhetta, kantarella). Flestir villtir
sveppir henta í þessa uppskrift, ýmist einir sér
eða með öðrum
2 vorlaukar
1 msk. brauðrasp
1 egg
60 g hnetuostur
Sveppir og laukur steiktir í dálitlu smjöri og
kryddaö með salti og pipar. Tekið af hita og
raspinu og egginu hellt saman við. Vasi skor-
inn í laxasneiðar og fyllingin sett í ásamt ostin-
um. Grillað.
KJÖTSÓSA
MEÐ SKARFAKÁLI
2 dl sýrður rjómi
1 dl rjómi
2 msk skarfakál
1 tsk piparrót
1 tsk sítrónusafi
1 tsk sykur
Smakkað til með salti og pipar.
KÖLD HUNDASÚRUSÓSA
2 dl smátt saxaðar hundasúrur
2 dl sýrður rjómi
1 dl rjómi
1 tsk. sítrónusafi
1 tsk. sykur
Öllu blandað saman. Bragðbætt með salti og
pipar.
KÖLD BLÁBERJASÓSA
2 dl sýrður rjómi
1 dl þeyttur rjómi
3 dl bláber (hreinsuð)
1 msk sykur
1 msk sítrónusafi
salt og pipar
Öllu blandað saman nema bláberjunum. Blá-
berin eru kramin saman við. Sósan er látin
standa í 2 tíma í lokuðu íláti.
GRÁDAOSTASMJÖR
200 g gráðaostur
250 g smjör
50 g rifsber
Smjörið og gráðaostinum er hrært saman og
sett í sprautupoka. Sprautað í litla toppa og
nokkrum rifsberjum stungið í hvern topp. Síð-
an er þetta kælt.
36 VIKAN 19. TBL. 1991
▲ Myndin sýnir
sósurnar sem
uppskriftirnar hér
til vinstri eru að.
Talið frá vinstri:
Kjötsósa með
skarfakali, þá köld
hundasúrusósa,
köld bláberjasósa
og gráðaosta-
smjör með rifs-
berjum.
► Matreiðslu-
meistararnir í
beinni útsendingu
hjá Þorgeiri Ást-
valdssyni á Rás 2.
GRILLAÐAR
GÆSABRINGUR
Fyrir tvo
Tvær gæsabringur eru snyrtar, smurðar örlitið
með olíu og kryddaðar með salti og pipar. Þær
eru steiktar í fjórar til fimm mínútur á hvorri hlið
(miðlungssteiking). Sósan með þessu er eftir-
farandi.
BLÓÐBERGSÞURR-
KRYDDAÐ LAMBAUERI
3 msk fínt saxað blóðberg
2 msk steinselja
2 msk graslaukur
2 msk hundasúrur
Vz tsk. mulinn svartur pipar
1 tsk. rautt paprikuduft
Lærið er snyrt og smurt þunnu lagi af ólífuolíu
og kryddinu makað á lærið. Tein er stungið í
gegnum lærið og grillað á kolagrilli. Barrnálum
stráð yfir.
BERJABLÁTT
LAMBAKJÖT
1 lambalæri
250 g bláber (marin)
250 g krækiber (marin)
Lambalærið er látið liggja í berjunum í 1 til 3
daga.
RÍFIÐ HÉR