Vikan - 16.04.1992, Blaðsíða 10
Ég uni mér vel
úti í náttúrunni
< Fríða
með sonum
sfnum, Agli
t.v. og
Jakobi Jón-
assonum.
Hér á eftir fáum við að
kynnast ævintýrakon-
unni og listakokknum
Fríðu Sophie Böðvarsdóttur.
Hún býr ( Kópavogi ásamt
tveimur ungum sonum sínum
og tók því alúðlega að veita
viðtal, þar sem rætt yrði um allt
milli himins og jarðar, ef til vill
minnst á ástina og vináttuna,
auk þess að kynna hana sem
frábæran kokk og hörkuvinnu-
þjark.
- Af hverju ertu svona dug-
leg, Fríða?
Hún hlær við og spyr á móti.
„Er ég það? Ég hef nú ekkert
hugsað út í það en strax sem
unglingur vildi ég fara að
standa á eigin fótum og sautj-
án ára að aldri réð ég mig sem
au pair til Englands. Mamma
og pabbi voru nú ekkert
ánægð með þetta en ég fór
mínu fram. Ekki var ég sérlega
heppin með fyrstu fjölskylduna
sem ég dvaldi hjá, konan gerði
ekkert nema að borða og fara
í búðir og var vöxturinn eftir
því. Varð ég að draga af henni
skóna á kvöldin og borða ein
eftir að hafa eldað fyrir þau
hjónin og boriö þeim matinn.
Þetta féll mér ekki alls kostar
svo ég skiþti bara um fjöl-
skyldu og var heppin eftir það.
Ég dvaldist í eitt ár í Englandi.
Þá kom ég heim og var á ís-
landi í hálft ár en lagöi síöan
land undir fót og fór vestur um
haf til Kaliforníu.
Þar bjó ég í eitt ár og vann
aftur fyrir mér sem au pair, sá
um heimili og börn. Ég lærði
mikið á þessum árum og tel
þau hafa lagt grunn aö sjálf-
stæði mínu.“
Blaðamanni verður hugsað
til eigin unglingsára. Aldrei
hefði hann þorað í slík ferða-
lög á þessum aldri og svo
hefði mamma gamla mótmælt
harðlega og sett stólinn fyrir
dyrnar.
Fríða viðurkennir að þetta
hafi stundum verið erfitt en
hún vissi strax á unga aldri
hvað hún vildi og í stað þess
að láta sig dreyma fram-
kvæmdi hún.
Hún er alin upp í Kópavogi,
f glöðum systkinahópi. Árið
1974 útskrifaðist hún sem
sjúkraliði og vann við skyld
störf en árið 1977 var útþráin
aftur farin að segja til sín og
fluttist Fríða til Danmerkur og
bjó þar í ein sex ár.
„Það var yndislegt að búa í
Danmörku. Ég átti hús á Ama-
ger og hafði minn eigin mat-
jurtagarð þar sem uxu ótal
plöntur ásamt ávaxtatrjám."
- Varstu þá farin að mat-
Frh. á næstu opnu
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR / LJÓSM.: BINNI