Vikan


Vikan - 16.04.1992, Page 26

Vikan - 16.04.1992, Page 26
um þaö þegar þau voru þar á ferð síðastliðið sumar. „Það er hægt að sjá fjöllin hér og mað- ur er í mjög nánu sambandi við náttúruna. Stærsti munur- inn er ef til vill að hér erum við líka nálægt sjónum en heima búum við langt inni í landi," segir Jonathan. „Við erum búin að hlakka til heimsóknarinnar síðan Guð- rún og Guðlaugur komu til Suður-Dakóta í nóvember á síðasta ári,“ segir Marcell. „Það var mjög spennandi að fá heimsókn frá svona litlu og fjarlægu landi. Þau færðu okk- ur bækur um ísland og þjóð- fánann ykkar sem nú prýðir einn af veggjum setustofu skólans í Kyle. Lakota Sioux þjóðin á sér líka taufána en aðalfáni okkar er arnarfjöður- stafurinn því hann hefur fylgt þjóð okkar frá ómunatíð og er alltaf til staðar þegar við dönsum. Við höfum unnið að undir- búningi ferðarinnar síðan þau komu og þó við höfum ferðast áður til annarra landa höfum við hvergi hlotið eins virðuleg- ar móttökur og hér. Guðrún og Guðlaugur virðast hafa lagt sig fram um að skipuleggja dvöl okkar hér sérlega vel og þess höfum við meðal annars notið með því að fá að heimsækja forsetann ykkar, Vigdísi Finn- bogadóttur. Þaö hefur ekki áður átt sér stað að þjóðhöfö- ingi viðkomandi lands hafi tek- ið á móti okkur og við erum mjög þakklát forseta ykkar. Hún virðist hafa djúpan skiln- ing á stöðu þjóðar okkar og þörfinni fyrir að halda menn- ingunni á lofti, jafnvel þó það séu ekki allir sem kunna tungumálið. Okkur þótti sömu- leiðis mjög vænt um að hún talaði um að öll værum við eins, þó við kæmum frá mis- munandi menningarsvæðum. Við Lakotarnir höfum orðatil- tæki yfir þetta. Það er „Mita- kuye Oyasin" sem þýðir „Við erum öll skyld". Það var okkur og þjóð okkar mikill heiður að fá að heimsækja hana,“ segir Marcell. Hann er elsti meðlim- ur hópsins og því kom það í hans hlut að vera talsmaður allra. HÁDEGISVERÐUR í PERLUNNI Eigendur Perlunnar buðu Lak- ota Sioux indíánunum til há- degisverðar meðan þeir dvöldu hér. Lakotarnir voru undrandi yfir öllu þessu heita vatni sem jörðin hér býr yfir og sögðust ekkert hefðu á móti LAUSN SÍDUSTU GÁTU því að hafa eitthvað af þvi heima hjá sér á veturna en kuldinn hjá þeim getur fariö allt niður í -40 gráður á Celsíus. Þegar komið var í Perluna tók á móti hóþnum Ágústa Péturs- dóttir listakona og færði þeim eina af sínum frægu kríum, unna úr fiskibeinum. Hana sagðist hún færa þeim sem „boöbera friðar og kærleiks- ríkra tilfinninga í garð indíána en hún hefði haft sterka teng- ingu við þá frá því hún var lítil telpa.“ „Það var stórkostlegt að horfa á Reykjavík af útsýnis- svölum Perlunnar," segir Jonathan. „Við gátum líka séö heim á Bessastaöi til forsetans ykkar, þar sem viö vorum ný- búin að vera. Ég held að fæst okkar hafi áður borðað á eins fínum veitingastað og Perlan er. Fátt er um slíka staði í Suður-Dakóta, sem er fátæk- asta fylki Bandaríkjanna, og eins er það að sökum fátæktar og atvinnuleysis eiga fæst okkar peninga til að borða á dýrum stöðum. Ég kom sjálf- um mér á óvart með því að standa upp að loknum hádeg- isverðinum til að segja öllum hversu margt ég hefði þegar lært af þjóð ykkar í þessari ferð.“ MÓTTAKA í „HVÍTA HÚSINU" Á ÍSLANDI í fjarveru borgarstjóra tók Magnús Óskarsson borgarlög- maður á móti Lakota Sioux indíánunum í Höfða. Þar nutu þeir góðra, íslenskra veitinga og brögðuðu meðal annars í fyrsta skipti pönnukökur með rjóma, sem runnu Ijúflega niður. „Guðrún hafði gefið okkur póstkort með „Hvíta húsinu“ og sagt okkur frá tímamótafundi stórveldanna sem þar fór fram, en okkur ór- aði ekki fyrir að eiga eftir að ganga þar um stofur sjálf. Við létum taka mynd af fjölskyld- unni í fundarherberginu. Það verður gaman að eiga hana til minningar seinna meir,“ segir Marcell Bull Bear en hann kom með alla fjölskylduna með sér, eiginkonu og þrjú börn. HANNAÐI OG SKREYTTI KJÓLINN SJÁLF Það vakti athygli margra gesta á sýningum hópsins aö Guð- rún var í sérlega fallegum indíánaleðurkjól og margir höfðu orð á því aö Lakotarnir hefðu áreiðanlega komið með hann með sér fyrir hana. Hið rétta í málinu er að Guðrún teiknaði kjólinn, Tómas Svein- + + + + + + + E + + + + + + + + + K + + + + + S K I TD R E I K A + A + A + + + + + T A R A + K L A F I + E F + + + + + U R T N + K L U N N I Y L + + + + + B E R A + t + S E G I Ð A + + + + + B L + M + B + M A + I N + + + + + U + A A + R Æ K A L L S S + F j A R R A D + L A T A + 0 S K + + L A M I + B I K T N I + A + K E R G 0 T ö T T 4- L A N G F E Ð G A R ó + S A T- + R e: I K U L L + G E P I L + K N A P I R + K + A A + A T A + E + U + + A L I*' + A L T K 0 T + R 0 G + S K A L L I + L A T A R + S I T A S K A L M A + m A U + + S E T + T r? + E L D T + L i K N + F ö G U R + + L Y F I + M .ó S K U R Y K + N Ý A R + T I N N A + T I N A R + G A R R A + I + + A R K A + G R I L L + T E K Æ Ð S T U + U N S + A R i A N + G A + + K E M U R + T T L + M U N D j N G A R P + S E I N + B A M B I N + M Æ R + s E N N A + A + B 0 + H H + 0 F A R + I N N + S K R Æ L N A R G R A N D E S + A N s A + R A U F A S U R T A R B R A N D U T1 + G R T P Það var ekki fyrr en 1978 að Lakota- indíánun- um var leyft með laga- setningu að stunda andlega iðkun sína. Dansinn var hluti af henni. björnsson, hönnuöur á saumastofu þeirra hjóna, saumaði hann og síðan skreytti Guðrún hann sjálf. „Ég var mjög stolt af hand- verki mínu, sérstaklega þegar Lakotarnir hrósuðu því hversu heföbundinn (traditional) kjóll- inn væri. Það er eitt það mesta hrós sem hægt er að fá frá þeirn," segir Guðrún. Eftir álag undanfarinna daga, spennu um það hvort heimsóknin gengi fjárhags- lega upp og alla vinnuna í kringum heimsóknina, er hún þá ánægð með drauminn sem rættist? „Já, við erum bæði mjög ánægð, ég og Gulli. Við lögð- um hart að okkur til að þetta tækist vel og lögðum allan okkar metnað í að gera heim- sóknina sem glæsilegasta og eftirminnilegasta fyrir Lakot- ana. Fjárhagslega áhættan var á okkar herðum og við sleppum með skrekkinn, með- al annars vegna þess að við leituðum eftir stuðningi hér- lendra aðila við heimsóknina og fengum frábærar undirtekt- ir. Það er eins og það ríki sér- stæður skilningur meðal ís- lendinga á málefnum indíána og allir sem við leituðum til tóku mjög jákvætt í beiðni okk- ar um aðstoð. Við getum því sem þjóð verið stolt yfir þeim móttökum sem Lakota Sioux indíánarnir hafa hlotið hjá okk- ur og ef að líkum lætur eiga tengsl okkar við þá ennþá eftir að styrkjast. Þeir eiga sér sérstakt stríðshróp sem er „Hoka Hey“ og kemur frá Crazy Horse sjálfum. Það þýð- ir „Þetta er góður dagur til að deyja" og það vil ég nota i lokin. Við erum frumherjar í stórkostlegu sambandi tveggja þjóða." □ 26 VIKAN 8. TBL.1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.