Vikan


Vikan - 16.04.1992, Page 58

Vikan - 16.04.1992, Page 58
TEXTI OG LJÓSM.: JOHANN GUÐNI REYNISSON EN FJJGLINN FUUGANDI Ingibjörg Björnsdótt- ir og Jón Ragnars- son útskýra fyrir blaöa- mönnum stefnu Hót- el Arkar og markmiðin með heilsu- dvölinni. Lengi hefur þaö legiö í loftinu aö Hótel Örk tæki undir merki heilsustefn- unnar sem lengi hefur loöað viö litla bæjarfélagiö, Hvera- gerði. Nú hefur einkaframtakiö tekið til hendinni og sett á fót heilsuviku til að mæta síauk- inni eftirspurn eftir þessari teg- und ferðaþjónustu, heilsudvöl á Hótel Örk er í boði. íslend- ingar eru nú aö taka við sér hvaö heilsusamlegt líferni varðar þó skiptar skoðanir séu um það eins og annað. Þó ekki sé nema til þess að skipta um umhverfi, fæðu og jafnvel hugsanagang í tiltekinn tíma þá getur það vel verið þess virði; umhugsunin í sjálfri sér. Mörgu utanborgarfólki þykir borgarbúar allt of spenntir og æstir í daglegu lífi, nokkuð sem vel getur staðist en eigin barmur er oftar en ekki síðasti staðurinn sem fólk grandskoð- ar í tilveru sinni. Samt sem áður flykkist það af mölinni, þegar veður og vinna leyfir, til að komast í friðsæld sveitar- innar, fá að sofa til hádegis dag eftir dag og byrja síðan að vasast í garðyrkju eða bústað- arsmíð í unaðsreitnum. Fyrir einhverja getur slíkt atferli tal- ist til afslöppunar og hvíldar en umhyggja fyrir huga jafnt sem hönd sem tækjum í daglegu lífi virðist bera skarðan hlut frá borði; ræktun sjálfsins getur orðið útundan. Helmingur íbúa landsins býr á höfuðborgarsvæðinu sem afmarkast annars vegar af borgarmörkunum austan Elliðaáa og hins vegar af Hafnarfirði. Fyrir mörgum virð- ist aksturinn austur yfir fjall hið mesta ferðalag þrátt fyrir að vegalengdin sé einungis um það bil 35 kilómetrar eða rétt um hálftíma akstur miðað við 90 kilómetra hraða. Þetta er i raun ágætis bíltúr, sérstaklega ef heiðskírt er og björt fjalla- sýn. Þegar í Hveragerði er komið getur heilsudvölin hafist fyrir alvöru því að þá þegar hefur óróleiki borgarinnar ver- ið skilinn eftir þar sem hann á heima. EKKI DÝRT Hótel Örk er þægilegur dvalar- staöur með rúmgóðum tveggja manna herbergjum, búnum síma og sjónvarpi, sófasetti og baðherbergi. Fimm daga dvöl, fjögurra nátta, í slíkum heimkynnum, með öllu því sem heilsudvöl- inni fylgir kostar 15.400 krónur á mann eða 19.400 krónurfyr- ir eins manns herbergi. Innifal- ið í verði eru til að mynda frjáls afnot af sundlaug, gufubaði og þreksal. Sérstakt heilsufæði er á boðstólum. Undirstaða þess er grænmeti, matreitt á mis- munandi hátt og [ raun er ótrúlegt hvað hægt er að fram- reiða margar tegundir af mat með hráefni sem hingað til hefur að meginhluta talist til meðlætis. Meðtalið ( matseðli dagsins eru morgunverður, salatbar í hádegi, síðdegiste og kvöldverður. Jógaleikfimi og hugrækt er í boði, innifalið í verði, og fá dvalargestir þjálfun í slíku meðan á heilsudvölinni stendur. Meginmarkmiðið með þessu er að kenna fólki að hvila og rækta huga sinn en heilinn er það líffæri sem fáir gefa raunverulegan gaum í líkamsræktinni þó hann sé reyndar það sem mestu máli 58 VIKAN 8. TBL. 1992 UÓSM.: RAFN HAFNFJÖRÐ

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.