Vikan - 16.04.1992, Síða 59
skiptir. Leiðbeinandi á nám-
skeiðinu verður Júgóslavi,
Mile að nafni. Hann talar
ágæta íslensku og er íþrótta-
kennari að mennt en hefur
sérhæft sig í fyrirbyggjandi að-
gerðum vegna atvinnusjúk-
dóma. Hann leggur áherslu á
samhæfingu slökunar, öndun-
ar og hreyfingar og bendir á að
allt of margir eyði óþarflega
mikilli orku í það sem þeir taka
sér fyrir hendur, margt sé
hægt að gera jafnvel með
minni fyrirhöfn ef hugur og
hönd fylgjast að og ákveðið
jafnvægi er til staðar. Þá verða
kenndar mismunandi æfingar
fyrir þá sem vinna annaðhvort
sitjandi eða standandi. Þessi
leikfimi verður á dagskránni
um tíuleytið á morgnana alla
dagana fimm.
LEIR OG HEKLUVIKUR
Wolfgang Roling er þýskur
sjúkranuddari og sem slíkur
hefur hann fengið löggildingu
heilbrigðisráðuneytisins til
starfa á íslandi. Hann býður
meðal annars upp á nudd-
meðferð til að auka virkni sog-
æðakerfis sem á til dæmis að
hafa í för með sér minni bjúg.
Hjá Wolfgang er einnig hægt
að fá meðferð með hveraleir
og Hekluvikur en þessum efn-
um er blandað saman og þau
hituð upp í fjörutíu og fimm til
fimmtíu gráður. Á þetta er til
dæmis hægt að leggjast og fá
síðan nudd á eftir. Þá eru
vöðvar heitir, afslappaðir og
tilbúnir fyrir nuddið. Til að vikur
og leir festist ekki við húðina er
parafíni blandað saman við.
Einnig er hægt að fá leirmaska
í andlit, sem sagt er hafa frísk-
andi og mýkjandi áhrif, örva
blóðrás ásamt því að gera
hrukkum erfitt að festa rætur.
Sjúkranuddið, leirbakstrar og
andlitsmaskarnir er reyndar
ekki innifalið i verði heilsudval-
arinnar en hægt er aö fá
keypta þrjá mismunandi
„meðferðarpakka", alls fjögur
skipti hvern, fyrir fimm þúsund
krónur. Wolfgang hefur flutt
með sér sjúkranuddstofu sína
í þessum tilgangi og sett hana
upp í kjallara hótelsins.
Auk þess sem hér hefur ver-
ið upp talið munu heilsudval-
argestum bjóðast ýmsar kynn-
ingar og fræðsla. Þar má
nefna fyrirlestra sérfræðinga
um ónæmiskerfið og kynning-
ar á heilsuvörum eins og oli-
um og möskum úr náttúruleg-
um efnum.
Þá hefur verið samið við
Heilsustofnun Náttúrulækn-
ingafélags íslands, sem styður
framtak Hótel Arkar, um lækn-
isþjónustu fyrir dvalargesti
sem þess óska. Það felur í sér
læknavakt allan sólarhringinn.
Athygli verður einnig vakin á
útivist og undir leiðsögn verða
kynntar fjölbreyttar gönguleiðir
við Hveragerði. Einnig má
nefna púttvöll viö hótelið og
tennisvelli.
Ljóst er að ekki þarf að leita
langt yfir skammt til að komast
f heilsuparadís og er Hvera-
gerði þar rétt innan seilingar.
Þessi tilraun Jóns Ragnars-
sonar hótelstjóra lofar góðu
um framhaldið en hann hefur
notið aðstoðar Ingibjargar
Björnsdóttur, meðal annarra.
Hún hefur haft veg og vanda
af því að hóa saman fagfólki á
hverju því sviði sem ætlað er
að sinna og hefur eitthvað
með heilsu að gera. Afslöppun
og lífsstíll eru á dagskránni og
nú er að sjá hvernig íslending-
artaka þessari þjónustu. Einn-
ig stendur til að höfða til er-
lendra ferðamanna I framtíð-
inni og reyna þannig að gera
ísland að heilsuparadís
heimsins. Það ætti ekki að
vera fjarlægur möguleiki því
hér eru ýmis jarðvegsefni, loft
og vatn af lítt skornum
skammti. Allt á þetta að
minnsta kosti tvennt sameigin-
legt; það er hreint og tært. □
Bjarni Sig-
tryggsson
útvarps-
maður lét
sig hafa
það að
leggjast á
leir- og vik-
urblöndu
sjúkra-
nuddarans
en hún var
um það bil
fimmtíu
gráða heit.
Andlit
Brynju
Tomer gert
klárt fyrir
leirmask-
ann en
hann er
borinn á og
látinn liggja
á andlitinu
nokkra
stund.
SNIÐ FRÁ
NEWLGÐK'
burdo
PLÍSERUÐ PILS
EFNI í BLÚSSUR
GLANSGALLAEFNI
ÝMSARSMÁVÖRUR
DÖMU&
Herrabúðin
LAUGAVEGI 55 ■ REYKJAVÍK SÍMI 1 88 90
8. TBL.1992 VIKAN 59