Vikan - 16.04.1992, Side 62
SKYGGNST
BAKVIÐ
TJÖLDIN - ANNAR HLUTI
Uppskeran heldur áfram og því skulum við halda áfram að
kynna þær myndir sem verða sýndar á þessu herrans ári.
CHARLIE CHAPLIN
írlandi. Tom Cruise leikur fá-
◄ Svip-
mynd úr
kvikmynd-
inni Charlie
Chaplin. Já,
hann Ro-
bert nær
þessu
nokkuð vel.
Spennandi
verður að
sjá afrak-
sturinn hjá
leikstjóran-
um Sir Ric-
hard Atten-
borough.
Helgina 7.-9. febrúar lauk tök-
um á myndinni Charlie
Chaplin. Hinn virti leikstjóri
Sir Richard Attenborough er
leikstjóri og fjallar myndin um
ævi grínistans Charlie
Chaplin. Bretar voru dálítið
sárir yfir leikaravalinu en með
aðalhlutverkið fer ekki Eng-
lendingur heldur bandaríski
leikarinn Robert Downey Jr
(Less than Zero, Air America).
Hvers vegna valdi svo breski
leikstjórinn amerískan leikara
í hlutverk Charlie Chaplin? Jú,
það var vegna þess að hann
þótti nauðalíkur Chaplin. Og
það er alveg ótrúlegt hve vel
þessi ameríski leikari nær
töktum og framburði Charlie
Chaplin. Greinarhöfundur sá
nefnilega úr myndinni í febrúar
en myndin sjálf verður ekki
frumsýnd fyrr en í nóvember á
þessu ári.
TOM CRUISE OG
EIGINKONAN SAMAN
í KVIKMYND
Tom Cruise og Nicole Kid-
man (Dead Calm, Billy Bath-
gate) leika í nýjustu kvikmynd
Rons Howard (Willow, Par-
enthood) sem heitir Far and
Away. Þetta er hjartnæm og
dramatísk ástarsaga sem
gerist um síðustu aldamót á
tækan leiguliða sem ákveður
að fylgja ástmey sinni til fyrir-
heitna landsins, Ameríku.
Stúlkan, sem hann hrifst svo
af, er hins vegar komin af
heldra fólki. Faðir stúlkunnar
vill ekkert vita af leiguliðanum
fátæka og reynir að fyrirbyggja
að hann hitti dóttur sína. Þetta
er sígild ástarsaga þar sem
hið góða sigrar í lokin. Myndin
verður sýnd í Laugarásbíói.
▼ William
Hurt og
Elizabeth
Perkins í
The Doctor
sem verður
ein páska-
myndin.
BEINT FRÁ HJARTANU
Sveitasöngkonan Dolly Part-
on hefur endrum og eins tekið
að sér að leika í kvikmyndum.
Árið 1982 lék hún mellu-
mömmu í The Best Little
Whorehouse in Texas. Árið
áður lék hún í myndinni From
9 to 5 og árið 1984 lék hún f
Rhinestone Cowboy sem þótti
mislukkuð. í þeirri mynd lék
Sylvester Stallone leigubíl-
stjóra sem langar að gerast
sveitasöngvari. Tók hann þar
nokkur lög og var þaö hræði-
legt gaul.
Dolly Parton er nú búin að
leika í nýrri mynd sem heitir
Straight Talk. Leikur hún
persónuna Shirlee Kenyon
sem flyst úr litlu sveitasam-
félagi til stórborgarinnar Chi-
cago. Af slysni veröur hún
nafntoguð sem útvarpsþulur.
Síðan fær hún að stýra út-
varpsþætti sem verður afskap-
lega vinsæll. Þátturinn verður
loks einn sá vinsælasti á stöð-
inni. Útvarpshlustendur kunna
nefnilega vel að meta hversu
frökk hún er og hreinskilin.
James Woods (The Hard
Way) leikur blaðamann sem
ákveður að taka við hana við-
tal og auðvitað fellur hann fyrir
henni, verður ástfanginn af
sveitastúlkunni sem hefur
hjartað á réttum stað. Þetta er
mynd sem lofar góðu.
BARNSRÁNIÐ
John Lithgow (Distant
Thunder, Memphis Belle) leik-
ur barnasálfræðing í kvik-
myndinni Raising Caine. Tek-
ur hann upp á þvi að ræna
sinni eigin dóttur. Siðan býr
hann þannig um hnútana að
svo virðist sem þaö hafi veriö
ástmaður eiginkonu hans sem
rændi barninu. Hvers vegna
hann rænir dóttur sinni fáum
við að vita þegar myndin kem-
ur til landsins. Raising Caine
▲ Hin
barmfagra
og snoppu-
friða
sveitasöng-
kona og
leikkona
Dolly Par-
ton í mynd-
inni Stra-
ight Talk.
■< John
Lithgow að
ræna sinni
eigindóttur.
Svipmynd
úr mynd-
inni Rais-
ing Caine.
verður sýnd i Laugarásbíói
og því er við að bæta að það
er enginn annar en Brian D’
Palma sem leikstýrir. Síðast
gerði hann myndina Bonfire of
the Vanities eða Bálköstur
hégómans. í Raising Caine
leikur auk Johns Lithgow
leikkonan Lolita Davidovich
en hún lék á móti stórleikaran-
um Paul Newman í myndinni
Blaze sem gerð var árið 1989.
62 VIKAN 8. TBL. 1992