Vikan


Vikan - 28.12.1992, Síða 19

Vikan - 28.12.1992, Síða 19
er rétt. Þetta gildir ekki um alla hópa en því miður um marga. Oft eru þetta líka glæfra- ferðir. Til dæmis í Súdan - þegar allir aðrir voru að draga sig út þar, þá héldu MSF (Læknar án landamæra) áfram í samvinnu við ASF eða Flugmenn án landamæra. Og það sama gerðist í Mósambik.“ EINS OG ENDALAUS ÚTILEGA - Myndast ekki dálítið sérkennilegt andlegt á- stand hjá fólki í svona starfi? „jú, það sagði mér geðlæknir að það væri ákveðin dauöaósk hjá fólki sem væri í svona vinnuferð. Ég ætla samt ekki að leggja neinn dóm á það.“ Ég var eina konan í karlasamfélagi og hitti nær aldrei aðra konu. Indverjarnir fóru inn í þorpin, drógu út nokkra þorpsbúa og skutu á staðnum. Það einkennir öll samtök á þessu sviði að alltaf er talað um magn en ekki gæði. Friðargæslusveitirnar drápu íbúa heils þorps, sjötíu manns, á einu bretti. - Hvernig er félagsskapurinn annars? Er andrúmsloftið í hópnum ekki dálítið sérstakt? „Jú, þetta er mjög sérstakt andrúmsloft. Ég segi oft að þetta sé eins og að vera í stans- lausri útilegu. Fólk býr saman, vaknar saman á morgnana, borðar saman, vinnur saman og eyðir kvöldunum saman. Það er því gífur- legt álag sem þessu fylgir. Maður kemst ekk- ert í burtu. Það eina sem maður getur gert er að draga sig í hlé ef maður hefur sitt eigið herbergi, sem er ekki alltaf. Þetta hefur mér fundist einna erfiðast - að eiga ekkert einka- líf.“ - Menn blanda ekki mikið geði við inn- fædda - er gamla stéttaskiptingin þarna við lýði? „Já, þetta er stundum kallað nútíma ný- lendustefna (neo-kolonialism). Þetta fer auð- vitað dálítið eftir starfinu og fólkinu sem er í vinnuhópnum. Það fer líka eftir þjóðum. Það er ekki auðvelt að blanda geði við allar þjóðir og sumar kæra sig ekki um að blanda geði við okkur. Og þegar maður er búinn að vera með innfæddum allan daginn þarf maður að komast heim og pústa." FRÁ ÚGANDA TIL PAKISTANS - Hvert fórstu svo eftir Úganda-dvölina? „Ég fór til Pakistans. Það var mjög skemmtileg ferð. Við vorum í dal sem er skammt frá landamærum Afganistans og Kína, nálægt Kasmír. Vegurinn þangað er lok- aður frá þvf í nóvember fram í maí eða júní og því er eingöngu um flugsamgöngur að ræða. Þær eru mjög strjálar því að dalurinn er í um 1500 metra hæð. Fjöllin í kring eru allt að 7500 metra há. í mars liðu til dæmis 22 dagar án þess að nokkur flugvél kæmi. Þetta er ein- angrað líf. Við vorum að vinna í afgönskum flóttamannabúðum við að endurskipuleggja heilbrigðisþjónustuna. Fleilsugæslustöðvarnar voru í tjöldum. Þarna veröur geysilega kalt en sólin er svo sterk á daginn að hún bræðir snjóinn, tjöldin verða blaut og frjósa svo um nóttina. Það er því óhuggulegt að koma að þessu á morgnana, þegar þetta er að byrja að bráðna. Starfsliðið var frá Pakistan og sinnti lítið sínum störfum. Það var ekkert eftirlit með því hvort fólk fór í vinnuna eða ekki. Hlutverk okkar var að endurskipuleggja bólusetningar- og berklaáætlunina og þjálfa starfsfólkið en margt af þessu fólki kunni lítið til verka. Og svo að byggja heilsugæslustöðv- ar. Enginn ofn var í tjöldunum og það var eitt af því fyrsta sem við gerðum að setja ofna í tjöldin. Á tveim stöðum voru reyndar lítil hús. Flóttamennirnir frá Afganistan bjuggu við sömu aðstæður, í tjöldum.“ VANÞAKKLÆTID SLÓ MIG „Það sem ég kalla vanþakklæti flóttamann- anna sló mig í fyrstu. Ég átti erfitt meö að sætta mig við viljaleysi þeirra og endalausar kröfur. Og þeir vildu ákveða hvaða meðferð þeir fengju. Þeir vildu sprautur, ekki töflur. Og þeir vildu marglitar töflur, ekki bara einhverjar hvítar. Og alls konar svona hluti þurftum við að berjast við. Það voru mjög fáar flótta- mannabúðir sem höfðu kamra. Vatnið í brunnunum var uppurið þannig að nota varð vatnið úr ánni. Við prófuðum það og það reyndist eins mengað og hugsast gat. Það var mikið um niðurgangspestir, mikið um lungna- bólgu og berkla og fleira vegna þess að fólkið bjó svo þétt og það var svo kalt. Við höfðum samband við samtökin sem grófu brunnana upphaflega til að athuga hvort eitthvað væri hægt að gera. Þau sögðu okkur að grafa brunnana dýpri og við báðum flótta- mennina um að gera það, snerum okkur að hópi karlmanna sem var að leika sér að kasta steinum, voru í nokkurs konar kúluvarpi. En þeir sögðu bara: Hver ætlar að borga okkur fyrir þetta? Ég skil þetta kannski núna en það var afar erfitt að skilja þetta á staðnum. Ég held að ástæða þessa sé meðal annars sú að það lendir alltaf á þeim sömu að vinna sjálf- boðaliðastörfin í búðunum og þeir verða þreyttir á því. Eitt vandamálið var líka að þeir sem eiga að sjá um innkaup, viðgerðir og fleira eru strákar' sem hafa bara verið í skóla en aldrei unnið. Margir hverjir eru atvinnulausir Frakkar og þeir kunna ekki til verka. Ég óskaði þess oft að við hefðum svona ekta íslendinga þarna, „altmulig- menn“ sem hafa verið í byggingarvinnu á sumrin og vita hvað það er að vinna. Svo má líka nefna vanda fólksins sem býr á svæðinu þar sem flóttafólk kemur inn. í Pakistan er tii dæmis verið að reyna að byggja upp skóginn vegna þess að hann hef- ur verið höggvinn miskunnarlaust. En það var ekki hægt þvi að eldsneytið, sem flóttamönn- unum var úthlutað til að elda og halda á sér hita, var svo lítið að þeir urðu að ná sér i við. Á nóttunni fóru þeir því á stjá og hjuggu í eld- inn. Það er erfitt að ráða við þetta. Annað er það að heilsugæsla er mjög léleg þarna. Og allt í einu spretta upp nýjar heilsu- gæslustöðvar, bólusetningarprógrömm og allt mögulegt fyrir flóttafólkið. Flóttamennirnir fengu smávegis peningagreiðslu á hverri viku en jafnframt tóku þeir vinnu frá staðarfólki vegna þess að þeim var leyft að fara inn í bæ- inn og þá undirbuðu þeir fólkið á staðnum þannig að laun lækkuðu. Það myndaðist því mikil spenna þarna á milli. Samt er mér sagt að spennan þarna á milli sé mun minni en á mörgum öðrum stöðum. Það er vegna þess að þetta er í raun sama þjóðin. Skiptingin á milli Afganistan og Pakistan, sem Englendingar gerðu á sínum tíma, er tilbúin og oft er þjóðflokkum skipt niður í tvennt." TIL AFGANISTANS - Hvenær varstu í Pakistan? „Það var 1987-88. Ég var þarna í sex mán- uði og vildi síðan fara yfir til Afganistans og sjá hvernig þeir væru þeim megin. Ég vildi ekki fara burt og vera svona ósátt við Afgan- ana. Ég fór fyrst til Pessjavar í Norður-Pakist- an, þar sem hóparnir eru búnir undir hjálpar- starfið. Við þurftum fyrst að læra að sitja hest. Ég hef alltaf veriö sveitarskömm af því að ég var svo geysilega hrædd við hesta. Þetta var því rosalega erfitt fyrir mig. Afganskir hestar eru stórir og slægir. Þeir bíta hver annan og slást þegar þeir koma saman og mér fannst Stórverslun í rúst eftir að kveikt haföi veriö í henni. Þetta er í þorpinu á Sri Lanka sem ind- versku „friöargæsluliöarnir" lögöu í rúst og stráfelldu sjötíu þorpsbúa. 26. TBL. 1992 VIKAN 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.