Vikan


Vikan - 28.12.1992, Síða 23

Vikan - 28.12.1992, Síða 23
gagn en þegar ég fór heim og leit um öxl fannst mér þetta einhvern veginn ekki hafa verið nógu gott. Á Sri Lanka vann ég miklu meira meö öörum samtökum, bæði Rauða krossinum og Save the Children Fund og líka með samtökum heimamanna.” FRIÐARGÆSLULIÐAR DRÁPU 70 MANNS „Þarna er mikið af litlum samtökum áhuga- manna og það er oft mjög gott að vinna með þeim. Á Sri Lanka urðum við vitni að því að friðargæslusveitirnar stráfelldu íbúa heils þorps, drápu sjötíu manns á einu bretti. Okkur var meinað að fara inn af því að þeir vissu að við gætum hugsanlega sagt frá þessu út á við ,og hefðum of mikil tengsl við fjölmiðla. Samtök heimamanna fóru þá fyrst inn og gátu hugsan- lega komið mat til fólksins. Þá fyrst vissi ég að þessi samtök væru til. Og síðan unnum við mikið með þeim. Þau voru fljót að frétta ef eitt- hvað amaði að og þau vantaði peninga, sem við höfðum, þannig að við gátum látið þau hafa fé til að kaupa mat og dreifa honum. Mannréttindabrot voru mjög algeng á Sri Lanka og það var mjög erfitt að eiga við þau. Þegar þetta gerðist vorum við bara með tal- stöðvarsamband og maður varð að tala gæti- lega í talstööina þannig að hjúkrunarfræðing- urinn sagði mér bara að eitthvað hefði gerst og vildi að ég kæmi. Þetta var nyrst í landinu og ekki hægt að fara á bíl vegna harðra bar- daga um miðbik landsins. Her Sri Lanka flutti okkur á þessum tíma. Þá fórum við í stórri herflugvél og sátum á gólfinu innan um alla hermennina. Við komumst loks til þorpsins þremur dög- um eftir að árásin var gerð. Sjötíu lík lágu þarna á víð og dreif, fólk allt frá tveggja ára börnum og til sjötugs. Flest hús höfðu verið brennd, einnig allar verslanir, allir fiskibátar og öll net. Mikið var af særöu fólki og mikið af gömlum konum sem höfðu stór fleiður á bak- inu, þannig að það vantaði stykki úr bakinu. Þær sögðu okkur frá því að indversku her- mennirnir hefðu skipað þeim að leggjast á magann og skotið svo á þær til þess að hræða þær en án þess að ætla að drepa. Af mörgum þurfti að taka fætur eða hendur. Þeir höfðu verið skotnir með sprengikúlum sem tæta út- limi þannig að ekki er unnt að bjarga þeim. Við mótmæltum viö hershöfðingjann á svæðinu, sem við höfðum alla jafna ágætt samband við. Hann sagðist hafa misst stjórn á mönnum sínum. Þegar ég kom síðan til Colombo, mjög slegin yfir þessu, beið mín þar maður frá BBC. Ég var auðvitað miður mín og sagði honum alla söguna. Hann flutti síðan fréttina á BBC um kvöldið og eftir það hringdu fulltrúar margra fjölmiðla og samtaka í mig. Við vorum einu samtökin sem máttu vinna á þessu svæði og fréttamönnum var ekki hleypt þangað inn. Ég talaöi við yfirmann minn í Rarís og okkur kom saman um að mót- mæla við yfirmann indverska herliðsins. Sá sagöi við mig i stuttu máli: Ef þú hættir ekki að leka svona upplýsingum kemur eitthvað fyrir þig eða þinn hóp á svæðinu. Skæruliðarnir eru heldur ekki saklausir í svona málum og þeir gera gjarnan árásir á Indverjana þegar þeir eru I mannfjölda. Seinna gerðu skæruliðar árás á barnaskóla og hörfuðu svo í gegnum skólann þannig að Indverjarnir fóru á eftir þeim og margar konur og börn voru drepin í skotbardaganum. Dag- inn eftir fór ég í þennan skóla. Þar var eitt her- bergi þar sem skólastjórinn sagði mér að hefðu flúið inn tíu mæður og mörg börn og læst að sér. Hurðin var brotin upp og allir drepnir. Við fengum á sjúkrahúsið tíu til fimmt- án börn sem höfðu lifað árásina af. Þarna kom yfirmaður Save the Children Fund til mín og sagði: Ertu tilbúin að mótmæla með mér aftur? En ég þorði það ekki. Hún hafði ekki kjark til að mótmæla ein svo að ekkert varð úr því. Mörg hundruð svona atburðir hafa sannfært mig um að friðargæslusveitir eru ekki nema nafnið tómt nema allir aðilar viðurkenni þær sem slíkar. Oft geta þær verið enn einn árás- araðili á varnarlaust fólk.“ - Þarna er hjálparfólkiö sett í mjög erfiöa aöstööu? „Já, spurningin er hvort við ætlum að vera þarna áfram og aðstoða fólkið og þegja þar með - eða ætlum við að segja frá því sem er að gerast og stefna hjálparstarfinu og þar með þjónustu okkar við fólkið í hættu? Eg hef komist að þeirri niðurstöðu með sjálfri mér að það borgi sig að lauma upplýsingum innan vissra marka en vera ekki að mótmæla opin- berlega. Það er mín skoðun núna.“ EKKI EINS OG Í BÍÓMYNDUNUM - Hvaö mundir þú ráöieggja þeim sem vilja fara út í hjáiparstörf? „Ég held að maður veröi að ráðleggja þeim að fara ekki með neinar gyllivonir um að þetta sé eins og í bíómyndunum. Þetta er ekki svona fallegt og gott og fólk gerir ekki allt það gagn sem því finnst það vera að gera. Oft kemur upp ákveðið vonleysi, manni finnst maður ekki vera að gera neitt gagn. Samt mundi ég ráðlegga fólki að halda bjartsýninni og búa sig jafnframt undir erfiöar persónuleg- ar aðstæður. En þetta er skemmtilegt, þetta er gaman, þegar upp er staðið. Það er miklu meiri lífsfylling í þessu, finnst mér, heldur en að vinna þar sem allir vilja vera.“ - Hvaö er framundan hjá þér nú? „Ég er ekki tilbúin í hvað sem er núna þannig að ég er bara að bíða eftir því að finna mér „missjón" (hjálparstarf) sem hentar mín- um aðstæðum. Það er erfitt að finna einhvern sem vill meta menntun manns og reynslu, nema gömlu samtökin. Þau byggja á sjálf- boðastarfi en ég get ekki leyft mér þann lúxus að vera sjálfboðaliði lengur, eftir dýrt fram- haldsnám í Bandaríkjunum." ÞRÓUNARHJÁLP ER BISNISS - Eitthvaö spaklegt aö lokum? „Að lokum vil ég nefna að í þróunarhjálp er alltaf verið að tala um peningaleysi en til dæmis í vanþróuðum löndum var hluti stjórn- valda af fjárlögum 1987 til hernaðar 19 pró- sent. Það sem veldur mestum vonbrigöum hjá því fólki sem vinnur að þessum málum er að stjórnir í vanþróuðum löndum leggja lítiö til menntamála og heilbrigðismála en eiga nóga peninga til hernaðaruppbyggingar. Og þaö er ekki bara þeim aö kenna - Vesturlönd og önnur þau lönd sem framleiða vopn verða að halda við átökum einhvers staðar til að geta selt vopnin. Þróunarhjálp er bisniss og það er mikið af „þotufólki" í þessu, fólki sem flýgur á fyrsta klassa og býr á Hilton. Það fer til landsins í tvo daga og flýgur síðan heim til New York, Genfar eða hvar sem það er nú - og semur stórar skýrslur um ástand mála. Á þessu byggist svo hvar stórar fjárhæðir lenda. Það fer í taugarnar á mér hvernig fjölmiðlar nota myndina af vannærða barninu með flug- urnar í augunum en því miður, það er þetta sem fólk kaupir, þetta er það sem fólk vill sjá. Það þýðir ekkert að birta eitthvert línurit um hve margar milljónir barna farast á hverju ári, enginn tekur eftir því. Ég veit ekki alveg hvernig hægt er að breyta þessu og ég hugsa að það sé erfitt." Jóhanna segist ekki vilja vinna með banda- rískum hjálparsamtökum. Hún segir að þau láti oft stjórnast af pólitík og aðstoð þeirra sé skilyrt. „Mikið af hjálpinni er eyrnamerkt pólitískt þannig að ef einhver ríkisstjórn fer að verða óþæg við Bandaríkjamenn, eins og gerðist í „Tígrarnir" - tamílsku skæruliöasamtökin - á útifundi á Sri Lanka. Níkaragúa á sínum tíma, þá fellur öll hjálp nið- ur. Ef þú hagar þér ekki pólitískt eins og Banda- ríkjamenn vilja þá færðu sem sé enga hjálp.“ Jóhanna Lárusdóttir læknir er á leið til Bret- lands í viðtöl vegna umsókna um hjálparstörf í fjarlægum heimshlutum, tveim dögum eftir þetta spjall okkar. Hver veit hvar hún er niður- komin nú? Það halda henni engin landamæri - í umdæmi hennar eru allir þeir sem mest þarfn- ast læknishjálpar, hvar sem þeir fyrirfinnast. □ HAFNARSTRÆTI 15 REYKJAVÍK ■ SÍMl 13340 26.TBL. 1992 VIKAN 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.