Vikan - 28.12.1992, Side 47
# F
Þú hefur séð Ijósadýrð-
ina meðfram aðalgöt-
unni, glæsileika spila-
salanna, stórkostleg skemmti-
atriði skemmtistaðanna, stór
og vel búin hótelherbergi og
matsalina með borð í röðum
að svigna undan öllum þeim
veisluföngum sem sælkerar
girnast mest. Já, þú hefur oft
séð þessum herlegheitum
bregða fyrir, en eflaust ein-
göngu í kvikmyndum. En nú
gætir þú og þinn nánasti kom-
ist í kynni við íburðinn í Las
Vegas af eigin raun - og það
ókeypis ef heppnin er með.
Og að auki gefst tækifæri til
að kynnast Baltimore og
Washington í leiðinni.
Eftir liðlega hálfan mánuð
verður dregið úr nöfnum skuld-
lausra áskrifenda Vikunnar,
það er að segja; þeirra sem
greitt hafa alla áskrift ársins á
því tilboðsverði, sem kynnt er á
blaðsíðu 34. Hinn heppni hlýtur
ofangreinda ferð ef hann getur
svarað einfaldri spurningu sem
fyrir hann verður lögð þegar
dregið hefur verið. Spurt verð-
ur. Hversu gömul er Vikan?
Verðlaunaferðin tekur um
eina viku og er verðlaunahöf-
unum frjálst að framlengja að
vild ef t.d. hugurinn stendur til
að flatmaga í sólinni á Flórída
eða halda áfram til vesturs eftir
heimsóknina til Las Vegas og
skoða sig um í Los Angeles,
en þangað er ekki nema um
klukkutíma flug frá Vegas.
Leiðsögumaður verður vinn-
ingshöfunum til trausts og
halds í verðlaunaferðinni.
LAS VEGAS
í Las Vegas verður gist á nýj-
asta og glæsilegasta hóteli
borgarinnar, Mirage, þar sem
eru yfir þrjú þúsund herbergi.
Sá er þetta ritar gisti þar í
nokkra daga og er til vitnis um
að aðbúnaðurinn og þjónust-
an er með því allra besta sem
gerist. Herbergin eru rúmgóð
og notaleg og úr öllum her-
bergjum er útsýni yfir borgina.
Salarkynnin á jarðhæð eru
á þúsundum fermetra og viss-
ara að hafa með sér kort til að
villast ekki þegar gengið er úr
móttökusalnum (með stærsta
fiskabúri heims) og á milli veit-
ingastaðanna, spilaborðanna,
spilakassanna, verslana, þjón-
ustuborða og síðast en ekki
síst höfrungalaugarinnar og
geysistórs „kattarbúrs" þar
sem gefur að líta fágæti sem
hvít tígrisdýr verða að teljast.
Frægustu sjónhverfinga-
menn heims, þeir Sigfried og
Roy, eru með tvær ótrúlegar
sýningar á hverju kvöldi í Mir-
age. Sýningar þeirra eru svo
stórbrotnar að það er lyginni
líkast. Enda hafa þeir félagarnir
hlotið hver alþjóðlegu verð-
launin á fætur öðrum og gríðar-
legur fjöldi ferðamanna leggur
leið sína til Las Vegas til þess
að verða m.a. vitni að því þeg-
ar þeir félagarnir láta stærðar
fíl hverfa á augabragði af svið-
inu. Góður kunningi undirritaðs
hefur séð sýninguna nokkrum
sinnum og jafnan tekið sér sæti
á fremsta bekk til að eiga frek-
ar möguleika á að sjá hvaða
brögðum er beitt. Niðurstaðan:
„Líklegast er engum brögðum
beitt. Mennimir hljóta að vera
rammgöldróttir."
Að sjálfsögðu verða verð-
launahafar Vikunnar í bestu
sætum á sýningu Sigfried og
Roy í boði Mirage.
Glæsileiki hótelsins er
gengheill ef svo má að orði
komast. Það er Ijóst að hvergi
hefur verið til sparað við
bygginguna og er það ævin-
týri líkast að fara þar um sali.
Gríðarstórir spilasalir og veð-
bankar eru opnir allan sólar-
hringinn og veitingasala söm-
uleiðis. Og þannig er það
raunar með öll spilavíti borg-
arinnar. Það er nefnilega
þannig, að þó hótelin rúmi
auðveldlega alla íslensku
þjóðina og séu jafnan í góðri
nýtingu eru afar margir sem
koma til borgarinnar í þeim til-
gangi einum að sjá svo sem
eina sýningu og spila síðan
allan þann tíma sem þeir
standa í fæturna. Og þegar
þreytan ber þá ofurliði eða
peningarnir eru annaðhvort á
þrotum eða vinningsupphæð-
in orðin nógu stór koma þeir
sér í burtu hið snarasta.
Freistingarnar eru svo yfir-
▲ Gist
verður á
glæsi-
legasta
hóteli Las
Vegas,
Mirage.
▲ Fyrir
dollar
gætir þú
nælt þér í
andviröi
margra
tuga
milljóna
íslenskra
króna.
Eða þá
Cadillac.
FERÐ ÞU OKEYPIS
í ÆVINTÝRAFERÐ TIL
Ótrúlegustu
sjónhverfing-
ar eiga sér
stað á sýn-
ingu. Sigfried
og Roy. Þú
munt ekki
trúa þínum
eigin augum.
26. TBL. 1992 VIKAN 47