Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 48
þyrmandi í Las Vegas. Því er
ekki að neita.
Þú getur verið með í spila-
mennskunni án þess að eyða
miklu. Spilakassarnir sjá til
þess. Þarna eru fjölmargir
kassar sem taka góðfúslega
við svo litlu sem fimm centum.
En það eru líka nokkrir kassar
í borginni sem eru tilbúnir að
gleypa f sig fimm hundruð
dollara í einu. Og við rúllett-
una getur þú kvatt í einu veð-
▼ Ljósa-
dýröin viö
aöalgötu
Las Vegas
er yfir-
þyrmandi
og áhrifin
ólýsanleg
meö
oröum.
máli allt frá fimm dollurum upp
í fimm þúsund dollara.
En vinningarnir eru líka
freistandi. Ef þú t.d. leggur
spilapeninginn á réttu töluna
getur hún svo mikið sem þrjá-
tíu og fimm faldast. Og í spila-
kössum sem taka einn dollar
áttu sumstaðar möguleika á
að vinna Cadillac eða aðra
eðalbifreið, sem að sjálfsögðu
er uppstillt við hlið kassans og
bíður eigandans.
Það eru fjölmargar sögur til
um þá sem hafa unnið stórt í
Las Vegas, nú eða tapað. Ein
segir frá manni nokkrum sem
kom til borgarinnar á níu-
hundruð kílóa bifreið sinni, en
eftir að hann hafði spilað í sól-
arhring ók hann aftur til síns
heima í margfalt stærri bíl,
langferðabifreið!
Fæstir fara ríkari frá Vegas
en þeir eru þó orðnir margir
sem á liðnum árum hafa feng-
ið milljón dollara eða meira úr
spilakassa. Jafnvirði sextíu ís-
lenskra milljóna. Ekki amalegt
það.
Spilavítin keppast um hylli
ferðamannanna og aðdráttar-
aflið er íburður, mikill matur
fyrir hlægilega lágt verð,
mestu vinningslíkurnar og síð-
▼ Loft-
mynd af
Inner
Harbor
eöa innri
höfninni í
Baltimore.
Þar er afar
friösælt og
skemmti-
legt.
Verslunarmiöstööin Gallery viö Inner Harbor. í Baltimore er
fjöldi stórra og áhugaverðra verslunarmiöstööva þar sem
hægt er aö gera betri kaup en víöast í Evrópu.
Tæknivæddasta sædýrasafn Bandarikjanna, The National
Aquarium.
1729 er borgin var stofnuð.
Tvær snotrar verslunarmið-
stöðvar er þar að finna og enn
fleirri og stærri í næsta ná-
grenni. Sömuleiðis notalega
veitingastaði með yfirsýn yfir
höfnina, nú eða þá að þú fáir
þér að borða í myndarlegri,
gamalli skútu sem þar liggur.
Og ekki má gleyma Maryland
Science Center and Davis
Planetarium, sem er eitt af
stærstu og fullkomnustu nátt-
úru- og dýrafræðisöfnum
Bandaríkjanna eða einu
stærsta og tæknivæddasta
sædýrasafni landsins, National
Aquarium.
Fjölmargt annað er að sjá í
Baltimore og verða því gerð
nánari skil f Vikunni síðar.
Eins er ekki hægt í stuttum
pistli sem þessum að gera
öllu því skil sem Washington
hefur að bjóða og bíður það
einnig betri tíma. En Wash-
ington er einnig á dagskrá
verðlaunahafanna okkar.
ast en ekki síst frægustu
skemmtikraftar heims. í Veg-
as hélt Elvis Presley nokkra af
sínum frægustu tónleikum og
enn í dag er Frank Sinatra tíð-
ur gestur þar á sviði og Bill
Cosby spaugar þar líka.
Las Vegas Boulevard eða
the Stip eins og breiðgatan
með flestum spilavítunum er
jafnan nefnd, er fimm mílur að
lengd. Neon-ljósin eru þar svo
þétt og skær að þú færð of-
birtu í augun. Áhrifin eru ólýs-
anleg og hiklaust hægt að
taka undir með öllum þeim
sem komast þannig að orði,
að þú verðir að koma til borg-
arinnar að minnsta kosti einu
sinni áður en þú deyrð.
Og fyrst verðlaunahafamir
okkar eru komnir til Nevada er
ómögulegt annað en að fara
með þyrlu eða bifreið að
Miklagljúfri og berja augum
eitthvert mesta náttúruundur
veraldar. Nokkuð sem flestir
þekkja úr kvikmyndum en
mega ekki láta hjá líða að sjá
þegar svo kjörið tækifæri
gefst. Skoðunarferð í boði
Vikunnar að sjálfsögðu.
BALTIMORE
Flogið verður með Flugleiðum
til Bandaríkjanna og höfð við-
dvöl í Baltimore þar sem skipt
er yfir í innanlandsflug USAir.
í bakaleiðinni verður gerður
þar stuttur stans til að skoða
sig um í borginni og gist á
meðan á úrvals hóteli með
bestu verslunarmiðstöðina við
húsgaflinn. Og þá er einstakt
tækifæri til að gera stórgóð
kaup á hagstæðu verði. Jafn-
vel á betra verði en þekkist í
Dublin, Newcastle og Glas-
gow. Ótrúlegt en satt.
Rómantíkin blómstrar við
innri höfnina í Baltimore, en
höfnin sú hefur verið mikil-
vægur ákvörðunarstaður skipa
frá Evrópu frá því fyrir árið
48 VIKAN 26. TBL. 1992