Vikan - 28.12.1992, Side 58
SALARKIMINN
SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR
SVARAR LESENDUM
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam-
skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og
annaö þaö sem lýtur aö sálfræöi og sálfræöilegum vanda-
málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
Sigtryggur Jónsson sálfræöingur, Álftamýri 3,108 Reykjavík
Kæri sálfræöingur
Ég er 19 ára stúlka og skrifa
þér vegna vandamála minna
en ég hef engan til að tala við.
Ég á enga vini og hef enga átt
síðan stitnaði upp úr síðasta
vinasambandi mínu fyrir rúmu
einu og hálfu ári. Þó á ég
kunningja sem ég hitti í skói-
anum en ég á frekar yfir-
borðskennt samband við þá.
Mér finnst ég ekki geta eign-
ast vini því mér finnst ég eitt-
hvað gölluð og er oft þung-
lynd út af því. Ég er að hluta
til hrædd um að fólk uppgötvi
hvað líf mitt er innantómt og
að ég er alltaf ein og finnist þá
ekkert varið í að kynnast mér.
Alltaf þegar ég kemst I
kynni viö nýtt fólk, hvort sem
það er í skólanum eða annars
staðar, finnst mér að kynnin
verði að þróast áður en ég get
kynnst einhverjum sérstökum
eitthvað nánar. Ég veit bara
ekki hve lengi þau þurfa að
þróast. Ég loka mig líka oft af
frá fólki út af vandamálum
mínum sem ég get ekki leyst.
Mér líður mjög illa því það
er mjög niðurdrepandi til
lengdar að vera svona ein.
Einmanaleikinn er að gera út
af við mig og ekki hjáipar það
að ég hef ekkert sjálfstraust.
Ég vona að þú getir hjálpað
mér eitthvað því ég er alveg
úrræðalaus.
Ein einmana.
■ Ég á enga
vini og hef enga
átt síðan slitn-
aði upp úr síð-
asta vinasam-
bandi mínu fyrir
rúmu einu og
hálfu ári.
■ Mér líður
mjög illa því
það er mjög
niðurdrepandi
til lengdar að
vera svona ein.
■ Einmanaleik-
inn er að gera
út af við mig og
ekki hjálpar
það að ég hef
ekkert sjálfs-
traust.
Kæra einmana.
Ég get vel ímyndað mér aö
þér líði illa og sórt einmana en
þó að ég gefi þér einhver ráð
endar það ætíð með því að
það verður þú sem þarft að
gera eitthvað til að breyta líf-
inu þínu. Spurningin er bara
hvort þú hefur þor til þess,
ekki þor vegna þess sem aðrir
gætu hugsanlega gert þér
heldur þor gagnvart þínum
eigin kvíða.
AÐ FELA SJÁLFA SIG
Þú ert í raun að fela sjálfa þig
fyrir öðrum og því eignast þú
ekki vini. Þeir mega ekki
kynnast þér eins og þú ert
heldur vilt þú láta „kynnin þró-
ast“ svo þú getir leikið það
„hlutverk“ sem þú heldur að
falli þeim í geð, svo að þeim
líki við þig. Þú hefur bara
enga orku lengur til að leika
slíkt hlutverk. Þú ert sennilega
búin að verða það oft fyrir
vonbrigðum að þú hefur gefist
upp á að treysta á hugmyndir
þínar um hvernig þú „eigir að
vera“. Þú ert greinilega löngu
búin að ýta þeim möguleika
frá þér að vera bara þú sjálf.
Þú ert einmana og líður illa
yfir því og vilt eignast vini en
þeir mega bara ekki vita hver
þú ert í raun og veru. Hvernig
á þetta að ganga upp? Þú ert
hrædd um að fólk uppgötvi
hvað líf þitt er innantómt, en
hvað gerir þú til þess að gera
það ríkt? Hvað gerir þú til
þess að lifa skemmtilegu og
spennandi lífi?
Mér virðist þú svo upptekin
af því að fela sjálfa þig, velta
þér upp úr því að hugsanlega
sértu gölluð og aö líklega vilji
58 VIKAN 26. TBL, 1992