Vikan


Vikan - 28.12.1992, Side 72

Vikan - 28.12.1992, Side 72
Efni í samkvœmis- fatnað! Flauel • Siffon Brokade og sívinsœlu plíseruðu efnin. Dömu- & Herrabúðin LAUGAVEGI 55 • REYKJAVÍK • SÍMI: 91-18890 CkC on CkC t= 'O :CD OO /EVINTYRI VERULEIKANS ▼TTTTTTTVTTTTYTTTTTVTTTTTTTTT 1 HJi IANU Slundum vil ég láta segja mér sögur. Ein vinkona mín hefur einstaka hæfileika til aö segja mér hneykslissögur af sjálfri sér og stundum öörum. Ein sagan fjallaöi um kveðjustund henn- ar og kvennaflagara sem langaði að fara frá konunni sinni en hún skaffaði of vel svo þau urðu að kveðjast. Stundin rann upp fyrir framan fallegt tré í besta hluta bæjar- ins. Þaö var kalt veöur en um leið og vinkona mín ætlaði að fara aö gráta braust sólin fram úr skýjaþykkninu og skein beint á nef ástvinarins og rauöar æðar gamla brenni- vínsnefsins komu greinilega í Ijós. Hún missti sorgina og hefur aldrei séð eftir rauöa brennivínsnefinu hans, hvorki fyrr né síðar. Svona getur farið fyrir ást- inni, þessu viðkvæma blómi. Af hverju virðist hún svo oft endaslepp hjá fólki þótt það reyni allt hugsanlegt til að halda henni hjá sér? Er ástin ekki bara villiblóm sem vill fá að vaxa frjálst i hjörtum mann- anna og þolir enga ógnun, enga stjórnun. Að elska er aö gefast og taka það svo aftur, gefast svo aftur og taka þaö svo til athugunar og þannig mætti lengi telja. Þeir sem gefa ekki lausan tauminn inn á milli verða kvalarar eigin ástar og missa allt þótt enginn skilnaður fari fram. Það er ef til vill öllu verst, vegna þess að þeir geta oft ekki fengiö annaö tækifæri til að reyna aftur og takast þrautin að elska og leyfa. Já, þetta var svona hug- vekja á gömlu ári sem hefur verið mér undurgott, þótt mik- ið hafi gengið á. En þaö er ekki verst fyrir þann sem skrif- ar. Hann þarf að lifa upp í hugarflugið sitt, þarf aö leita ævintýrin uppi eða að minnsta kosti hjálpa þeim til sín og muna allar stundir aö verða ekki of vanafastur því það er sama og að deyja fyrir tím- ann. Svo kemur það stundum fyrir raig aö fólk viíl sýna mér hvaö þaö hefur eignast. Þá kemur vel á vondan því ég hef nefnilega engan áhuga á því aö sjá hvaö fólk hefur ver- ið duglegt að - ekki lifa og ekki gefa. Mér finnst það ekk- ert skemmtilegt en ég er nú líka hálfgeröur öreigi svo þaö er von að mér finnist þetta ó- þægilegt. Ég upplifi mig þó ekki fátæka, hef svo helvíti gaman af að hugsa og þegar ég flyt úr landi, eins og ég hef áætlaö aö gera í fyllingu tím- ans, veröur farangurinn svo léttur, nokkur málverk og ég sit í flugvélinni og hugsa og hlæ meö sjálfri mér. Ekkert hús, enginn bíll, engin hús- gögn. Aðeins ég og pappírinn minn svo ég geti skrifað og ástin, villiblómið mitt, fær að fara með og þolir vonandi nýj- an jarðveg í nýjum heimkynn- um. Ég vildi óska að ég ætti níu líf eins og kötturinn er sagður eiga, þá myndi ég... Framhald síðar á nýju ári. Hittumst heil. ÁRAMÓTAHEIT Ég lofa sjálfri mér aö lofa engu hlæja mikiö elska enn meira elska enn meira elska enn meira. 72 VIKAN 26TBL. 1992

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.