Vikan


Vikan - 11.03.1993, Page 10

Vikan - 11.03.1993, Page 10
• Rás 2 er eina dægurmenningar- og popprásin sem nær til allra Islend- inga. • Deilan um afnota- gjöldin er að kom- ast í hálfgerða blindgötu. • Fólki finnst mis- rétti ab borga fyrir eina stöð en ekki aðra. En þá spyr ég: Eigum við að hafa ríkisútvarp með íslenskri menn- ingarpólitík eða ekki? • Afskaplega skemmtilegt fólk í útvarpsráði, víðsýnt og vel heima. • Hef reynt að kenna útvarpsráði að líta á sig sem brjóstvörn stofnun- arinnar. • Maður veit aldrei hvort setið er í fíla- beinsturni. • Útbreiddur mis- skilningur að ég hafi fyrst og fremst verið prestur. • Osköp gaman að Dóra mín gat fengið hér starf. Hún hef- ur alltaf sómt sér vel innan um fólk. • Samkeppnis- áhuginn ekki meiri en svo að þegar tvær einkareknar sjónvarpsstöðvar ætluðu að keppa keypti Stöð 2 Sýn. stæður hér fyrir ykkur hjónin að þessu leyti? „Jú, vissulega en það var ósköp gaman að Dóra mín gat fengið hér starf við að sitja niðri í anddyri, svara í símann og taka á móti gest- um. Hún hefur alltaf sómt sér vel innan um fóik og ég held að þetta farist henni vel úr hendi, eins og öllum öðrum sem þar sitja. Búsetan í Skál- holti og á Þingvöllum var auðvitað mjög sórstæð. Þetta er eins og að vera eins konar herragarðshaldari, endalaus- ar gestakomur og fyrirgreiðsl- ur af öllu mögulegu tagi. Og þetta var í raun og veru fjarskalega gaman en um leið lýjandi. Við hlæjum oft að því núna að við þykjumst vera ham- ingjusamari í starfi heldur en búsetu í Reykjavík. Við erum bæði tvö ósköp ánægð með starfið hér í Ríkisútvarpinu en við erum ekki eins vel búin að finna fótfestu í Reykjavík. Hins vegar er áberandi munur að þegar við komum heim á kvöldin núna er friður en það var aldrei á Þingvöllum. Þar voru eilífar hringingar á kvöld- in og gestakomur auðvitað líka. Sérstaklega erum við nú kampakát yfir helgunum því að nú höfum við frí á laugar- dögum og sunnudögum eins og annað fólk. Það höfðum við aldrei á Þingvöllum eða í Skálholti." BRÝNT AÐ BÆTA ÞJÓNUSTU VIÐ HEYRNARSKERTA - Heyrnarlausir hafa heldur betur látið í sér heyra að und- anförnu. Þeim þykir Rfkisút- varpið ekki sinna þörfum sín- um nærri nógu vel. Er sæm- andi fyrir „útvarp allra lands- manna" að veita heyrnarskert- um ekki betri þjónustu en gert er? „Nei, það er feikilega brýnt að gera eitthvað í því máli. Við höfum reyndar gert lítið eitt eftir að ég kom til starfa, tókum að okkur að greiða kostnað vegna aðstoðar- manna flytjenda táknmáls- frétta. En hér þarf að gera miklu meira. Það sem er næst í tímaröð, vona óg, er að heyrnleysingjar geti hag- nýtt sér textavarpið. Þetta á að geta orðið að veruleika á næstunni. Núna ráðgerum við að verða okkur úti um búnað sem gerir það að verkum að unnt er að kalla textavarpið á skjáinn ofan f það sem þar er fyrir. Þannig á að vera hægt að lesa til dæmis ræðu sem flutt er jafnóðum af skjánum með aðstoð textavarpsins. Á móti þessu kemur svo að margir heyrnarskertir hafa ekki gagn af texta yfirleitt og verða að fá allt á táknmáli. Það eru því svolitlar mót- sagnir í þessu. En þetta á- stand er óviðunandi, ég segi það umbúðalaust og við verðum að bæta úr þessu á komandi mánuðum og miss- erum ef við höfum nokkur fjárráð til. Ég var að virða fyrir mér fréttir í sjónvarpi í Danmörku á dögunum, þar sem fréttirnar klukkan sex eru textaðar. Eitt- hvað þessu líkt verðum við að fara að gera en það kostar peninga." DEILUR VEGNA MANNARÁÐNINGA -Þú hefur komist í hann krappan vegna starfsmanna- mála. Nægir að nefna starf forstöðumanns Ríkisútvarps- ins á Akureyri, íþróttafrétta- manns og nú síðast starf mál- farsráðunautar. Geta slíkar deilur ekki veikt innviði stofn- unarinnar og jafnvel orðstír hennar? „Jú, þær eru sjálfsagt vara- samar fyrir orðstírinn! En sannleikurinn er nú sá að ég hef komist farsællega frá öll- um þessum málum. Fyrn/er- andi deildarstjóri RÚV á Akur- eyri starfar hér á Rás 1 og unir hag sínum vel, að ég hygg. Varðandi starf íþrótta- fréttamanns þá var útvarpsráð einróma í stuðningi við ákveð- inn mann. Ég kann ekki við að gera mig svo digran að hafa slíkt einróma álit að engu. Þetta eru prýðismenn, báðir tveir, en þarna lét ég útvarps- ráð einfaldlega ráða - og mun gera það. Um málfarsráðu- nautinn er kannski best að segja sem minnst svo að ég ekki lofi einn en lasti annan. En núverandi málfarsráðu- nautur er afburða náms- og fræðimaður í íslenskum fræð- um. Það réð úrslitum um val mitt.“ - Starfsmenn mótmæltu þeirri ráðningu kröftuglega... „Jú, það voru heilmikil mót- mæli í einn eða tvo daga en þau hjöðnuðu fljótt og yfirleitt hafa svona mál tilhneigingu til að hjaðna nokkuð fljótt. UMDEILDAR BREYTING- AR Á VEÐURFREGNUM - Þú hefur líka staðið í ströngu vegna breytinga á veðurfregnatímum. Var nauð- synlegt að breyta veður- fregnatímunum og þá hvers vegna? „Þetta er spurning sem þú verður að bera fram við Pál Bergþórsson veðurstofu- stjóra. Hann taldi þetta afar nauðsynlegt og taldi sig hafa gild rök og stuðning manna víðs vegar um land til þess arna. Þetta hefur nú sem bet- ur fer ekki valdið neinum illindum. Meginrök Páls voru þau að þetta væri einfaldlega betri þjónusta og vísindalega nákvæmari. Við höfum í sjálfu sér engin tök á að and- mæla því. Það sem fór hins vegar dálítið fyrir brjóstið á starfsmönnum hér var breyt- ing á veðurfregnatímum og sú breyting hefur farið fyrir brjóstið á fólki um allt land. Ég féllst á það við veður- stofustjóra að lokum að hann fengi alla þessa nýju tíma gegn því að hann færi hvergi fram úr fimm mínútum. Á þessu hefur orðið mikill mis- brestur ocj þetta ruglar dag- skrána. Ut af þessu er út- varpsráð búið að samþykkja áskorun til mín um að taka þetta upp að nýju við veður- stofustjóra. Málinu er sem sagt ekki lokið.“ HERDUM SULTARÓLINA EFTIR FÖNGUM - Auglýsingatekjur RÚV hafa minnkað verulega á liönu ári og ég hef heyrt talað um tíu til fimmtán prósenta samdrátt í jólamánuðinum miðað við fyrra ár. Þá bendir allt til enn frekari samdráttar á næstunni. Hvernig er unnt að bregðast við þessu? „Þarna sitjum við í sömu súpunni og allir aðrir. Það er allsherjar samdráttur f þjóðfé- laginu. Við reynum að herða sultarólina eftir föngum. Rætt er um að samsenda nokkuð af dagskrá beggja rása út- varpsins í sparnaðarskyni. Ég er andvígur því að við séum að kosta upp á dýrt og fínt út- varp á þeim tímum sólar- hringsins þegar við vitum að 10VIKAN 5.TBL.1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.