Vikan


Vikan - 11.03.1993, Qupperneq 20

Vikan - 11.03.1993, Qupperneq 20
TEXTI ÞORDIS BACHMANN í fyrstu virðist hér um sveitasælu að ræöa en barnið, sem teiknaöi myndina, lýsir henni svona: „Ég kemst stundum yfir brúna en hann kemur alltaf og sækir mig. Mín megin í dalnum nær sólin aldrei aö skína.“ KYNFERDISLEG - HVERNIG VERNDARÐU BARNIÐ ÞITT? FYRIR LÖNGU Einhverntíma fyrir löngu horföi ég á sólina koma upp fyrir brekkubrúnina og velta út himininn. Alltafá hverjum morgni birti og hlýnaöi og ég horföi á brekkuna grænka og túniö og ég hljóp og elti kisu niöur litla hóiinn. Sæl og örugg milli blómanna horföi ég á lömbin fæöast og leika sér. Ef þau villtust frá mömmu sinni fór ég aö gráta. Þegarpabbi meiddi mig hætti sólin aö koma upp. Sara Flestum foreldrum finnast kynferðisglæpir gegn börnum of mikil fólskuverk til aö hægt sé að hugleiöa þá. Vegna þess að fólk getur ekki horfst í augu við raunveru- leikann gerir það lítiö í því að kynna sér málin og enn minna til að vernda börnin sín. Án þess að gera sér grein fyrir því stendur fólk i vegi fyrir lausn vandans með þessari afneitun. I Reykjavík einni leituðu 250 manns til Stígamóta árið 1990. 306 leituðu þangað árið 1991 en raunveruleg mál eru talin miklu fleiri. 416 ofbeldismenn, flestir á aldrinum 21 til 30 ára, höfðu misnotað þá 306 einstaklinga sem leituðu hjálpar árið 1991. 11,5 prósent voru feður barnanna, 8 prósent voru stjúpfeður, 22 prósent afar, bræður eða frændur, 14,5 prósent vinir og kunningjar fjölskyldunnar. 18,5 prósent lentu í flokknum „aörir vel kunnugir fjölskyldunni", það er að segja nágrannar, kennarar, eöa prestar en einungis 17 prósent ofbeldismannanna voru ókunnugir. 59 prósent barna, sem beitt eru kynferöislegu ofbeldi innan fjölskyldu, eru tólf ára eða yngri, 37 prósent sex ára eða yngri. Veröi barn frá heilbrigðri fjölskyldu fyrir kynferðislegri áreitni í eitt skipti, en fái hjálp eftir á og einhvern til aö stöðva áreitnina, er þaö vitanlega áfall. Þaö verður fyrst að ævilöngu vandamáli ef ekki er hægt aö tala um það og ef það er ekki stöðvað og ábyrgðin færð yfir á þann fullorðna sem rauf bannhelgina. Sifjaspell eða kynferðisleg misnotkun á börnum hefur þær alvarlegu afleiðingar sem raun ber vitni vegna þess að oftast er brotið á tilfinningasveltum börnum, börnum frá fjölskyldum sem sjá illa um börnin sín fyrir, fjölskyldum þar sem börnin hafa verið misnotuö tilfinningalega vegna þess að foreldrarnir eru óþroskaðir eða voru sjálfir misnotaðir sem börn. Fatlaöar og vangefnar konur eru augljóslega í mjög veikri stöðu og ótrúlegur fjöldi kvenna á stofnunum hefur verið misnotaður, ýmist af vistmönnum eða starfsmönnum. Erlendar kannanir sýna að frá 96 prósent til 99 prósent ofbeldismannanna eru karlar. Þær fáu konur sem hafa veriö dæmdar fyrir kynferðislega misnotkun á börnum hafa í engu tilfellanna átt frumkvæði að brotinu eða staðið einar að því. Tölfræðilegar upplýsingar um misnotkun á drengjum eru óljósari en á íslandi eru drengir 21 prósent meintra þolenda en stúlkur 79 prósent. Drengjum er kennt að „harka af sér“ og síðar á ævinni kjósa þeir því fremur að 20 VIKAN 5.TBL. 1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.