Vikan - 11.03.1993, Page 21
Telpan, sem teiknaöi myndina, var spurö hvaö hún vildi láta gera viö ofbeldismanninn. í stuttu máli vill hún láta reka hann rýtingi, hengja
hann, skera úr honum hjartaö með skeiö (svo þaö taki sem lengstan tíma) og jaröa hann.
bera harm sinn í hljóöi en aö segja frá. Þaö er
brot á karlmennskuímyndinni aö viðurkenna
aö hafa verið misnotaður kynferöislega.
Algengt er aö misgjörðamenn sæki á
drengi sem þarfnast athygli fullorðins' manns.
Misgjöröamaðurinn byrjar gjarnan á því að
vingast viö drenginn, gefur honum gjafir eða
peninga og þegar sambandiö veröur
kynferðislegt er drengurinn oröinn svo flæktur
í þaö aö hann heldur því leyndu, ýmist af
trygglyndi, vegna þess aö hann veit hvorki
upp né niöur eöa hann óttast aö hann sé eöa
veröi hommi.
Slíkir misgjörðamenn eru sjaldnast
samkynhneigöir; oft eru þeir kvæntir menn
sem eiga sjálfir börn. Ekkert bendir heldur til
þess að þessi tegund misnotkunar valdi
samkynhneigö.
Ein af ástæðunum fyrir því aö svo margir
geta haldiö misnotkuninni áfram án þess aö
upp komist er þetta skref- fyrir-skref ferli sem
er mynstur í flestum langvarandi málum, þar á
meðal sifjaspellum. Misnotkunin nær oft yfir
margra ára tímabil og eykst meö tímanum og
eftir því sem barniö þroskast.
„Ég neita aö trúa því aö kynferðisleg
misnotkun sé svona algeng,“ voru viöbrögö
einnar móöur. Vönduö dönsk könnun leiddi í
Ijós aö tæp fjögur prósent allra telpna væru
misnotaöar kynferöislega. Það þýðir aö í
skóla meö 400 nemendum eru átta telpur
misnotaðar heima fyrir hér og nú.
Átta eyðilögð líf og áhættuhópurinn enn
stærri.
■ 59 prósent barna, sem
beitt eru kynferðislegu
ofbeldi innan fjölskyldu,
eru tólf ára eða yngri, 37
prósent sex ára eða yngri.
■ Það verður fyrst að
ævilöngu vandamáli ef ekki
er hægt að tala um það og
ef það er ekki stöðvað og
ábyrgðin færð yfir á þann
fulloröna sem rauf
bannhelgina.
Margar þessara telpna eiga eftir að ganga í
gegnum þunglyndi, sjálfsmoröstilraunir, verða
ofdrykkjukonur og háöar lyfjum. Telpa, sem
hefur verið misnotuö í bernsku, ræöur ekki viö
þær kröfur sem fylgja því aö standa á eigin
fótum. Vandinn eykst meö aldrinum og
auknum kröfum.
HVERNIG GERIST ÞAO?
Kynferöisleg misnotkun á börnum hefur átt
sér staö í gegnum alla mannkynssöguna og í
mörgum menningarsamfélögum. Það var þó
ekki fyrr en snemma á áttunda áratugnum,
þegar fulloröin fórnarlömb nauðgana fóru aö
tala um bernsku sína, aö almenningsvitundin
opnaði augun fyrir sifjaspellum. Til skamms
tíma (og hugsanlega enn) var tekið fram í
kennslubók fyrir veröandi geðlækna að „sifja-
spell væru ekki til nema í hugarheimi kvenna“.
Káf, þukl, óeðlilegir kossar, samfarir og
sódómska. Þetta er þaö sem misnotað barn
býr viö. Ofbeldismennirnir fróa sér í munn
barns, láta barnið fróa sér meö höndum,
stinga limnum milli læra barnsins án þess aö
fara inn i kynfærin og einnig er um samræði
aö ræða.
Stundum er beitt valdi en oftar eru börn
göbbuö, þeim mútaö og þau lokkuð til
þessara athafna yfir nokkurra mánaöa tímabil,
stundum jafnvel í mörg ár. Þess er krafist aö
5. TBL. 1993 VIKAN 2 1