Vikan - 11.03.1993, Blaðsíða 41
ara á borð við Brendan Fra-
ser, Chris O’Donnell, Andr-
ew Lowery og IVIatt Damon.
Margir vilja líkja þessari mynd
við mynd Peters Weir, Dead
Poets Society með Robin
Williams í aðalhlutverki.
LEIKFÖNG
Barry Levinson (Bugsy,
Rainman, Diner, Good Morn-
ing Vietnam) hefur nú leikstýrt
nýrri mynd sem heitir Toys
eða Leikföng og hefur á að
skipa grínleikaranum og skap-
Eddie Murphy sem tilvonandi þingmaóur aö sverja hollustu-
eiö í Distinguished Gentleman.
Robin Williams dýrkar
leikföngin i Toys.
gerðarleikaranum Robin
Williams (Dead Poets Soci-
ety, Good Morning Vietnam,
The Fisher King). Margir kvik-
myndasælkerar bíða eflaust í
ofvæni eftir þessari mynd
enda ekkert skrýtið þar sem
það hefur sýnt sig á undan-
förnum árum að Barry Levin-
son er firnagóður leikstjóri.
Myndin fjallar um leikfanga-
framleiðanda sem leikinn er af
Robin Williams, fulltíða mann
með barnssál. Hann vill fyrir
alla muni halda rekstrinum á-
fram eftir að faðir hans deyr
en frændi hans er á annarri
skoðun, vill selja vopnafram-
leiðanda leikfangaverksmiðj-
una. Á það getur síungi leik-
fangaframleiðandinn ekki fall-
ist.
Robin Williams kemur
sterklega til greina fyrir næstu
óskarstilnefningu. Barry Lev-
inson, leikstjóri myndarinnar,
sagði það hafa verið hreina
unun að vinna aftur með
Robin Williams en þeir unnu
einmitt saman að myndinni
Good Morning Vietnam árið
1986.
HÆSTVIRTUR
HERRAMAÐUR
Sambíóin munu brátt sýna
The Distinguished Gentle-
man, nýjustu mynd grínist-
ans Eddies Murphy. Hann
leikur skálk og svindlara
mikinn sem nær því að kom-
ast í fulltrúadeildina í Was-
hington sem þingmaður fyrir
Flórídarfki. I Washington,
borg stjórnsýslu og stjórn-
mála, virðist sá nýkjörni
finna sig og hann tekur hlut-
verk sitt alvarlega þegar
hann hittir fagra konu sem
gerir kröfur. Eddie Murphy
er í essinu sfnu í þessari
mynd. Með honum leika Joe
Don Baker (Living
Daylights), Lane Smith og
Sheryl Lee Ralph.
HÁSKALEIKUR Í
FJÖLLUM COLORADO
Hinn villti, síðhærði og Ijós-
hærði Finni Renny Harlin
hefur nú leikstýrt nýrri mynd
sem heitir á frummálinu Cliff-
hanger og er þetta útilegu-
tryllir eins og best gerist. Hver
ætli leiki svo í þessum útilegu-
hasar nema Sylvester Stall-
one sem nú ætlar að taka sig
alvarlega eftir að hafa að und-
anförnu leikið í gamanmynd-
um á borð við Oscar og Stop
or My Mom Will Shoot sem
gengu að vísu misvel (senni-
lega vegna þess að áhorfend-
ur og aðdáendur kappans
kunna betur við hann sem
hasar- og ævintýraleikara).
Myndin var tekin í ítölsku ölp-
unum og í Cinecetta Studios
kvikmyndaverinu í Róm.
Sylvester Stallone leikur
fjallgöngugarpinn Gabe Walk-
er sem lagt hefur fjallgöngu-
skóna á hilluna vegna sorg-
legs atburðar sem gerðist í
fortíðinni. Björgunaraðgerð,
sem hann hafði tekið að sér
að stjórna, hafði mistekist.
Gabe Walker (pælið ( eftir-
nafninu) þarf þó að grípa til
fjallgöngubúnaðarins vegna
þess að fyrrum kærasta hans,
Jessica Deighan, er í mikilli
hættu. Hryðjuverkamenn hafa
Svalur kappi og svöl kona í
Cliffhanger.
hana í haldi á fjallstindi þar
sem flugvél, sem þeir rændu,
hefur brotlent. Kappinn þarf
því að bretta upp ermarnar og
láta til skarar skríða. Það gerir
hann líka með stæl. Mörg
klifuratriðin og áhættuatriðin
eru ótrúlega vel sviðsett og
lyginni líkust. Myndin verður
sýnd í Stjörnubíói. Auk
Stallones leika John Lithgow
(Raising Cain, Memphis
Belle), Michael Rooker (Sea
of Love, Henry: A Portrait of a
Serial Killer) og Janine Turn-
er en við hana kannast eflaust
flestir úr sjónvarpsþáttaröðinni
Northern Exposure sem
sýnd hefur verið á Stöð 2.
HERRA
LAUGARDAGSKVÖLD
Hver man ekki eftir ærsla-
fenginni mynd sem hét City
Slickers eða Fjörkálfar? Nú
er þríteymið, sem stóð að
þeirri mynd, aftur komið á
kreik, Billy Crystal, Lowell
Klifurkappinn Sylvester
Stallone ■ Cliffhanger.
henni. Allt er þegar þrennt er
eins og máltækið segir. Billy
Crystal er þegar búinn að
sanna að hann er einn efni-
legasti grínleikarinn í Banda-
ríkjunum. Hver man ekki eftir
honum í Throw Your Moma
from the Train og When
Harry Met Sally? Nýjasta
myndin hans fjallar um
skemmtikraftinn Buddy Young
jr. sem hóf að skemmta fólki á
fimmta áratugnum. Leið hans
lá til Hollywood þar sem hann
stýrði skemmtiþáttum í sjón-
varpi og tróð upp í nafntoguð-
ustu næturklúbbum Banda-
Ganz og Babaloo Mandel.
Nýja myndin þeirra heitir Mr.
Saturday Night en Billy Crys-
tal gerði handritið að mynd-
inni, leikstýrði og leikur f
■$m»x
5. TBL. 1993