Vikan


Vikan - 11.03.1993, Page 45

Vikan - 11.03.1993, Page 45
◄ París; kaffihús, Eiffel- turninn, Notre Dame, Signu- bakkar- og ýmis- legt fleira. Yfir vetrarmánuðina er því miður ekki unnt að fljúga frá íslandi beint til Parísar. Því er nauðsynlegt að fara fyrst til Amsterdam, Kaupmannahafnar eða Lúx- emborgar til þess að komast á leiðarenda. Slíkt gerir það að verkum að fólk þarf að bíða í lengri eða skemmri tíma eftir Parísarfluginu og síðan aftur á leiðinni heim. Þetta lengir ferðina óhjá- kvæmilega. Við setjum það samt ekki fyrir okkur. HÓTEL Blaðamaður Vikunnar þurfti starfs síns vegna að skreppa yfir helgi til Parísar í vetur. Til- gangurinn var reyndar að taka viðtal við ekki ómerkari menn en leikarana Danny DeVito og Jack Nicholson. Fundar- staðurinn var lúxushótelið Plaza Athenee, eitt af bestu hótelum Evrópu, en Ijóst var að blaðamaðurinn hafði ekki efni á að gista undir sama þaki og þeir. Hótelið er í róm- aðri götu, Avenue Montaigne, þar sem nokkur þekktustu tískuhús borgar- innar er að finna. Hann hafði aftur á móti fengið pata af því að í nágrenninu væri annað hótel sem ekki kostaði svo mikið en byði í raun upp á svipuð þægindi og þjónustu og Plaza þeirra efnameiri. Reyndar er úr vöndu að ráða þegar hótel eru annars veg- ar. Ferðalangar þurfa nú einu sinni að verja þar nóttunni og því er þeim ekki alveg sama hvernig híbýlin eru. Hótelið, sem um ræðir, heitir California og státar af fjórum stjörnum. Það er þó ekki um sama hótelið að ræða og hljómsveitin Eagles söng svo skemmtilega um á sínum tíma. Hótel California í París hóf starfsemi 1925 og hefur því hýst margan gest- inn um dagana. Nýlega var lokið við gagngerar endur- bætur sem tekið hafa nokkur ár. Það var sjálfur hóteleig- andinn sem hafði umsjón með því mikla verki auk þess sem hann er höfundur hönn- unarinnar sem er sérstaklega vel af hendi leyst. Engin tvö hinna 160 herbergja eru ná- kvæmlega eins. Þar við bæt- ast þrettán svokallaðar svítur af ýmsum stærðum og gerð- um. Það mátti ennþá finna nýjabrumslyktina i anddyrinu þegar tíðindamaður Vikunnar steig þar inn með pjönkur sínar. Það verður að viður- kennast að hann hafði gert boð á undan sér því að á- gætur maður hafði lagt inn gott orð fyrir hann með þeirri bón jafnframt að honum yrði sýnt hótelið hátt og lágt með það fyrir augum að einhverjir landar hans myndu ef til vill eiga eftir að búa þarna um stundarsakir. Hótelið minnti ' ► Lista- menn á hverju strái - fortíöinn kölluö fram á listrænan háttá gang- stéttum og torgum. 5.TBL. 1993 VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.