Vikan - 11.03.1993, Blaðsíða 58
rMEXÍKÓ
ur veiðimaðurinn að koma til
sögu. Hægt er að sigla til ná-
lægra eyja, Isla Mujeres
(Kvennaeyju), Cozumel og
Contoy, og einnig eru í boði
frumskógarferðir og siglingar
um lónið. Fuglaskoðarar hafa
í nógu að snúast þegar siglt
er um lónið eða farið til
Contoy-eyjar þar sem er
verndarsvæði villtra fugla og
dýra.
Ein vinsælasta strand-íþrótt
í heimi er brimbrettasigling. í
Cancún eru hagstæðustu skil-
yrðin til að stunda þessa fþrótt
í Bahía de Mujeres. Mexíkó-
meistarakeppnin á brimbrett-
um er haldin þar á hverju ári.
Vatnskettir geta náð allt að
56 kílómetra hraða á klukku-
AFátækir,
en stoltir
og lífs-
glaóir.
▼ Drifhvít-
ur sandur
viö safír-
bláan sæ-
inn. Örfínn
kalksand-
urinn er
alltaf jafn-
svalur
þótt sólin
skíni á
hann
daglangt.
stund og ná sífellt meiri vin-
sældum. Á hinu víðáttumikla
Nichupté-lóni er að finna full-
komin skilyrði fyrir sjóskíði.
HEILLANDI
HITABELTISFISKAR
Eftir að hafa kannað yfirborðið
er tilvalið að gægjast undir
það. Köfun með snorku (önd-
unarpípu) er góður gluggi að
undursamlegri neðansjávar-
veröldinni.
Yfir fimm hundruð tegundir
af hitabeltisfiskum eiga heim-
kynni sín í kóralrifjunum um-
hverfis Cancún. Sum þeirra
henta vel til köfunar með
snorku. Þeir sem reyna þetta
heillast af litskrúðugu sköpun-
arverkinu í neðri byggðum.
Hægt er að fá leigðan búnað
til að „snorka“ í mörgum hótel-
um og smábátahöfnum. Og
þegar maður er einu sinni
kominn á bragðið er erfitt að
standast freistinguna að kafa
almennilega í „fullum skrúða"
með súrefniskút og allar
græjur. Þannig fæst enn betri
yfirsýn yfir þá fjársjóði sem
leynast I sjónum.
Við létum okkur reyndar
nægja að kafa með snorku
við eyna Cozumel og það er
dásamleg lífsreynsla og ótrú-
lega gaman að horfast I augu
við aragrúa skrautfiska. Þetta
er eins og að synda I gull-
fiskabúri, nema hvað fiskarnir
eru yfirleitt mun stærri! Það er
sannarlega óhætt að mæla
með því við hvern sem er að
láta svona ævintýri ekki fram
hjá sér fara. Allir geta „snork-
að“ þótt þeir treysti sér
kannski ekki til að kafa með
köfunarbúnaði enda krefst
það þekkingar og aðgæslu.
Rifin við Cancún eru þekkt
um allan heim fyrir stórkost-
lega liti, fjölskrúðugt dýralíf og
frábærlega tæran og hreinan
sjó þannig að auðvelt er að
sjá langar leiðir neðansjávar.
Vegna þess að kóralrifin og
sædýralífið við þau eru slíkur
þjóðardýrgripur eru þau
vernduð með lögum. Sam-
kvæmt þeim má ekki raska
neinu í sjónum eða taka neitt
úr honum. „Takið bara mynd-
ir, skiljið bara eftir loftbólur" er
haft við orð þar. Atvinnukafar-
ar standa fyrir kennslu fyrir
byrjendur og þá sem hafa litla
reynslu en reyndir kafarar
geta farið í ævintýralega köf-
un lengra úti í sjó. Þeir sem
vilja hafa allt „á þurru“ geta
tekið sér far með glerbotna
báti og litið undur hafsins
augum.
Við skulum vinda okkur á
land eftir skoðunarferðina
neðansjávar. Ekki er skortur á
verslunum fyrir þá sem hafa
gaman af að kíkja í búðir. Hér
er að finna hlið við hlið inn-
flutta muni heimsfrægra hönn-
uða og vörur framleiddar á
staðnum. Líta má litlar tísku-
og listmunaverslanir á hverju
strái, stór vöruhús, minja-
gripasala og nýtísku verslun-
armiðstöðvar.
SILFURSKART
OG LISTMUNIR
Mexíkóskir listmunir og skart-
gripir eru langvinsælastir
meðal ferðamanna. Víða má
fá afar fallega gripi sem unnir
eru í stíl Maya eða undir áhrif-
um frá þeim, mótaðir í leir,
stein eða tré. Mexíkósk mynd-
list er líka víðfræg og þó að
menn séu ekki endilega á
þeim buxunum að kaupa mál-
verk er ómaksins vert að gefa
sér tíma til að skoða þessi lit-
skrúðugu og flóknu listaverk.
Fáir ná að snúa heim frá
Mexíkó án þess að hafa
krækt sér í einhverja silfur-
muni. Landið er í fararbroddi í
heiminum í framleiðslu á silfri
og það má sjá í þeim aragrúa
verslana sem hafa silfurgripi
til sölu. Mexíkósku silfursmið-
irnir eru sannkallaðir lista-
menn og yfirleitt er verðlagið
mun lægra en gengur og ger-
ist annars staðar. Hér má líka
gera góð kaup í skartgripum
úr gulli.
Handunnir munir keppa
reyndar við skartgripina um
hylli ferðamanna. Listiðn í
Mexíkó á að baki óslitna hefð
allar götur aftur til daga Maya
og Azteka og einkum hefur
þessi hefð haldist í mynstri og
hönnun. Sköpunargáfa hinna
fornu indíánaþjóða gengur í
endurnýjun lífdaganna í ull,
baðmull, silki, glerlist, leirlist
og leðri. Meðal handiðna inn-
58VIKAN 5.TBL.1993