Vikan - 11.03.1993, Síða 66
TEXTIOG UOSM.: JOHANN GUÐNIREYNISSON
Café Ope
I
r M
sérmatseðil
E
I
tónleika
Þennan mánuð stendur
veitingahúsið Café
Opera fyrir tónleikum í
minningu Guðmundar Ingólfs-
sonar stórtónlistarmanns.
Nánast allir sem kunnir eru af
flutningi djasstónlistar á íslandi
koma við sögu og má þar
nefna Karl Möller, Árna Elfar,
Friðrik Th., Guðmund Stein-
grímsson, Tómas R. Einars-
son, Eyþór Gunnarsson, Sig-
urð Flosason, Magnús Eiríks-
son, Pálma Gunnarsson, Björn
Thoroddsen, Gunnar Hrafns-
son, James Olsen, Hilmar
Jensson, Matthías Hemstok,
Kjartan Valdimarsson, Þórð
Högnason, Stefán S. Stefáns-
son og söngkonurnar Andreu
Gylfadóttur og Lindu Walker.
Eins og sjá má af upptalning-
unni er um auðugan garð að
gresja og þegar slíkir lista-
menn koma saman þarf vart
að spyrja að leikslokum. Og í
tilefni af Operu-djassi hafa að-
standendur Café Operu sett
saman sérstakan djass-mat-
seðil sem ber sterkan keim af
stemningunni. Þarna má sjá
lambakjötið hennar Bellu
símameyjar, Tondeleyo rifja-
steik, dans með þér, grillsteik
litla tónlistarmannsins, grísa-
hnakka Ruby Baby, Pabba
minn - sem er grillaður skötu-
selur á þessum matseðli - og
margt fleira girnilegt. Maturinn
er borinn fram í líflegu um-
hverfi, á líflegan hátt og meira
að segja á líflegum diskum
sem láta sér raunar nægja að
vera það einungis í útliti. Þetta
er skemmtilegt innlegg í æ lit-
ríkari tilþrifaflóru veitinga- og
skemmtistaða í Reykjavík og
víðar vitaskuld. Sælkerales-
endum Vikunnar til tóns og
tuggu er einarðlega bent á að
gefa framtakinu gaum því mat-
ur og drykkur ásamt tónlist er í
sérflokki. Sérstaklega má hér
nefna laumuforréttinn á mat-
seðlinum en hann kom
skemmtilega á óvart þegar
undirritaður sótti Café Operu
heim. □
DANNY DeVITO
Í EINKAVIÐTAU
VID VIKIINA
BLADAUK!
UM TISKU
66 VIKAN 5. TBL. 1993