Vikan - 19.05.1993, Qupperneq 52
Á fegurö-
arsam-
keppninni
var Linda
meö
óvenju-
legan og
skraut-
legan
höfuö-
búnaö.
„Já, við ábyrgjumst vinnu
fyrir hana að andvirði tvö
hundruð þúsund króna á ár-
inu. Svo förum við með hana
til London líka og þar fer hún í
prufumyndatökur hjá góðum
ijósmyndara. Við kynnum
hana á umboðsskrifstofum
þar og sýnum henni lífið í
London, svo það verður áreið-
anlega spennandi."
- Ert þú sjálf alveg hætt að
sitja fyrir í augiýsingum og á
tískumyndum?
„Nei, ekki alveg, en ég geri
voða lítið af því. Ég vil ekki
vera í hverju sem er. Ég vil
helst vera á samningi í lengri
tíma hjá fyrirtækjum eða taka
að mér einhver stærri verk-
efni.“
- Ertu með einhvern þannig
samning í farteskinu?
„Já, við Hófí erum á árs-
samningi fyrir Oroblu sokka-
buxur hjá íslensk-austur-
lenska."
- Nú hefur ein enn bæst í
þann hóp, erþað ekki?
„Jú, Andrea sem var valin
með fallegustu fótleggina í
fegurðarsamkeppninni.“
- Er hún á skrá hjá Wild?
„Nei, því miður," svaraði
Linda og er greinilega til í að
breyta því.
- Vindum okkur yfir í aðra
sálma. Hvað varð um Fashion
Bureau sem stóð fyrir nám-
skeiðinu með þér í fyrra og
Les rak?
„Það er enn í gangi úti í
London, með námskeiðahald
og fleira. Námskeiðið í mars
var líka haldið í samvinnu við
Fashion Bureau. Meðeigandi
Les rekur það að mestu einn
síðan Les kom hingað til ís-
lands en Les fer alltaf út
reglulega."
- Er hann alveg sestur að
hér?
„Já, í bili. Við erum samt
alls ekki komin til að vera
hérna.“ Linda leit út um glugg-
ann þar sem maíveðrið,
snjómugga og kaldi, blasti við.
„Ómögulega, takk. Veðrið
hérna er svo ömurlegt. Hins
vegar er Wild komið til að
vera. Við getum alltaf fengið
einhvern til að sinna rekstrin-
um þegar og ef við förum. Les
sinnir þó ennþá fyrirsætustörf-
um fyrir umboðsskrifstofuna
sína í London og flýgur út
þegar eitthvað gott er í boði.
Svo fer hann líka við og við til
að hitta vini sína og þriggja
ára son sinn.“
- Það hefur heyrst að hann
sé stundum í skotapilsi á
skrifstofu Wild!
Linda hló við. „Já, hann er
stundum í skotapilsi. Hann er
Skoti og er stoltur af því.“
- Þá var komið að hinni sí-
gildu spurningu: Erhann í ein-
hverju undir?
Svarið reyndist líka sígilt:
„Það er leyndarmál," svaraði
Linda og skellihló.
Nú er fegurðarsamkeppnin
nýlega afstaðin og Linda sat
að þessu sinni meðal áhorf-
enda og fylgdist með. Hvernig
fannst henni og hvernig líkuðu
henni úrslitin?
„Mér fannst mjög gaman.
Ég fékk alveg fiðring í mag-
ann þegar stefið, sem spilað
er þegar á að fara að tilkynna
úrslitin, var spilað. Þá upplifði
ég aftur augnablikið þegar ég
var kosin.“ Linda brosti að til-
hugsuninni. „Málið var bara
að ég var svo lítið inni í
þessu, ég hafði svo lítið fylgst
með stelpunum svo ég þekkti
lítið til þeirra en hún átti þetta
örugglega skilið." Linda á við
Svölu Björk, nýkjörna fegurð-
ardrottningu.
- Varst þú búin að velja
einhverja aðra í sigursætið?
Linda hugsaði sig um. „Mér
fannst Andrea ofsalega falleg
og elegant og finnst að hún
hefði átt að vera í einhverju af
efstu sætunum. Hún er svona
„moviestar-týpa“,“ bætti hún
við.
Eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum frá krýningar-
kvöldinu var Linda óvenjulega
búin. Hún var í hvítum, síðum
kjól með reimum á hliðunum
og bar allsérstakan höfuðbún-
að. Hvar fékk hún þennan
búning?
„Hann var sérstaklega
saumaður á mig. Mér finnst
ofsalega gaman að klæða
mig kvenlega, sérstaklega í
síða kjóla. Mér finnst gaman
að vera kona og fel það ekki.“
Þetta svar gaf tilefni til að
tæpa á máli sem marga fýsir
að vita nánar um. Ekki hefur
farið fram hjá mörgum íslend-
ingum umræðan um að Linda
ætli að sitja nakin fyrir á síð-
um þekkts, bandarísks tíma-
rits. Þegar er helmingur
myndatökunnar afstaðinn en
hún fór fram f London nú ný-
lega. Því miður er Lindu ekki
heimilt að upplýsa okkur strax
52 VIKAN 10. TBL. 1993