Vikan - 19.05.1993, Blaðsíða 56
KVIKMYNDIR
Nýjasta kvikmynd Taylors
Hackford heitir Blood in...
Blood out - og hver er nú
aftur þessi Hackford? Jú,
hann er frægur fyrir myndir
eins og An Officer and a
Gentleman (1982), Against
All Odds (1984), White
Nights (1985) og Every-
bodys All American (1989).
Hann hefur auk þess framleitt
Bræðurnir í myndinni Blood in... Blood Out.
Atriöi úr
myndinni
Blood in...
Blodd out.
fáum smjörþefinn af tíu ára
baráttu Miklos, Pacos og
Cruz. Þeir vilja ekki falla f
sömu eymdargryfju og foreldr-
arnir, vilja betra hlutskipti í líf-
inu.' Vonbrigði, ástir, sigrar og
alvara lífsins er það sem við
áhorfendum blasir. Myndin
verður sýnd (Sambíóunum á
næstunni.
Þess má geta að f Holly-
kvikmyndir upp á síðkastið, til
að mynda Mortal Thoughts
með Demi Moore og Bruce
Willis og The Long Walk
Home með Sissy Spacek og
Whoopi Goldberg.
Blood in... Blood out er
hjartnæm og áhrifarík frásögn
af þremur suður-amerískum
bræðrum sem flytjast ásamt
foreldrum sínum til drauma-
landsins Norður-Ameríku.
Foreldrarnir eru fátækir og því
er lifsbaráttan hörð í nýja
landinu eins og þvi gamla. Við
wood er nú töluvert um að
gerðar séu myndir sem fjalla
um minnihlutahópa og hlut-
skipti þeirra í lífinu. Segja má
að sú þróun hafi hafist með
mynd Barrys Levinson, Ava-
lon (1990). Bandarískir kvik-
myndagerðarmenn beina nú
sem sé sjónum sínum að
raunum innflytjenda sem lögðu
land undir fót í Bandaríkjunum
á síðustu öld og þessari. Þetta
er hinn nýi og ótæmandi sögu-
brunnur draumaverksmiðjunn-
ar Hollywood.
FYRIRTÆKIÐ
Sidney Pollack, leikstjóri Out
of Africa og Havana, hefur
nú leikstýrt nýrri mynd sem
heitir The Firm og státar af
Tom Cruise, Gene Hackman
og Jeanne Tripplethorn
(Basic Instinct). Þetta er
hörkuspennandi kvikmynd
sem fjallar um saksóknara
sem sérhæfir sig í skattsvik-
um. Tom Cruise leikur hann
og lögfræðingafyrirtæki í
Memphis ræður hann til starfa
sem í raun felast í því að hvít-
þvo illa fengið fé fyrir mafíuna
f Chicago. Jeanne Tripple-
thorn leikur eiginkonu sak-
sóknarans og í sameiningu
taka þau sér fyrir hendur að
kveða niður þessa mafíustarf-
semi fyrirtækisins.
HIMINN OG JÖRÐ
Nýja myndin hans Olivers
Stone heitir Heaven and
Earth og er síðasta Víetnam-
myndin sem kappinn ætlar að
gera. Áður hafði hann gert
Platoon (1986) og Born on
the 4th of July (1989). Þessi
er þó með öðruvísi sniði því
hún fjallar um hinn stríðsaðil-
ann, nefnilega Norður-Víet-
nama. Norður-víetnömsk
skæruliðakona berst hatrammri
baráttu gegn amerískum dát-
um. Að stríðinu loknu, 1976,
flyst þessi kona til Bandaríkj-
anna. Við kynnumst fordómum
af beggja hálfu. Tommy Lee
Jones (Under Siege), Hiep
Thi Le, Joan Chen (The Last
Emperor) og Debbie Reyn-
olds leika í myndinni sem
verður eflaust tilnefnd til ósk-
arsverðlauna árið 1994.
SKOTLÍNA
Þýski leikstjórinn Wolfgang
Petersen hlaut verðskuldaða
athygli fyrir Das Boot (1981)
og hafði áður gert myndirnar
Never Ending Story (1984),
Enemy Mine (1985) og
Shattered (1991). Nú hefur
hann sent frá sér mynd sem
heitir In the Line of Fire og er
sögð síðasta myndin sem
Clint Eastwood ætlar að
leika í en hann hyggst víst
eingöngu einbeita sér að leik-
stjórn. Ásamt honum leika f
myndinni John Malkovich
(Sheltering Sky) og Rene
Russo (Lethal Weapon 3,
Freejack). Clint Eastwood
leikur fyrrverandi leyniþjón-
ustumann sem fenginn er til
þess að elta uppi tilræðis-
mann sem leikinn er af John
Malkovich. Sá myrti forsetann
í upphafi myndarinnar. Þetta
er án efa hörkuspennandi
tryllir.
SKEMMTIGARDURINN
JURASSIC
Eflaust bíða margir óþreyju-
fullir eftir risaeðlumynd Stev-
ens Spielberg, Jurassic
Park, dýrustu mynd sem um
getur í kvikmyndasögunni.
Tæknibrellurnar eru víst með
ólíkindum og leikaraliðið stór-
kostlegt. Má í því sambandi
nefna Sam Neill (Dead Calm,
Memoirs of an Invisible Man),
Laura Dem (Rambling Rose,
Wild at Heart) og Jeff Gold-
blum (The Fly, Deep Cover).
Þetta veröur etlaust aösóknarmynd hin mesta.
>6 VIKAN 10. TBL. 1993