Vikan


Vikan - 07.10.1993, Qupperneq 41

Vikan - 07.10.1993, Qupperneq 41
„Þessi gáta á ekki viö mig,“ sagði heims- maðurinn Sir Henry Clithering. „Ég er viss um að lausin felst í einhverju lögfræðilegu bragði." „Þvert á móti,“ sagði Petherick. „Þvert á móti. Þetta er sanngjörn og einföld ráðgáta. Þú mátt ekki láta fröken Marple hafa áhrif á þig. Hún horfir á hlutina með sínum eigin augum.“ „Við ættum að geta leyst gátuna," sagði Raymond West svolítið pirraður. „Staðreynd- irnar eru í það minnsta til staðar. Fimm mann- eskjur snertu umslagið. Spragghjónin hefðu greinilega getaö fiktað eitthvað við það en það er jafnvíst að þau gerðu það ekki. Þá eru þrjár manneskjur eftir. Með brögðin, sem töframenn geta beitt til að blekkja augað, í huga tel ég að Georg Clode hefði getað tekið bréfið úr umslaginu og sett annað í, á meðan hann hélt á frakkanum úr öðrum enda her- bergisins í hinn.“ „Eg held aö það hafi verið María,“ sagði Joyce. „Ég held að þjónustustúlkan hafi hlaupið niður og sagt henni hvað átti sér stað og hún hafi svo náð sér í annað blátt umslag og einfaldlega skipt á umslögum." Sir Henry hristi höfuðið. „Ég er ósammála ykkur báðum," sagði hann hægt. „Þess háttar gera töframenn á sviði og einnig í skáldsög- um en ég held að þetta tækist ekki í alvörunni - sér í lagi þar sem vökul augu Pethericks vinar míns fylgdust með. En ég hef sjálfur hugmynd - sem er ekkert meira en hugmynd. Við vitum að prófessor Longman hafði komið í heimsókn en verið mjög þögull. Því má álykta að Spragghjónin hafi viljað komast að því hvaö prófessornum fannst. Ef Símon Clode hefur ekki sagt þeim frá því, sem er mjög lík- legt, þá getur verið að þau hafi misskilið það þegar hann geröi boð eftir Petherick. Ef til vill trúðu þau því aö Símon hefði verið búinn að gera erfðaskrá sem var Eurydice Spragg í hag en í þessari væri hún gerð arflaus að nýju, sökum einhvers sem prófessor Long- man hefði sagt - eða þá að Philip Garrod hefði haft áhrif á Símon með því að nefna kröfur skyldmenna hans. Ef þetta er rétt skul- um við gera ráð fyrir aö frú Spragg hafi verið tilbúin að skipta um blað. Það gerir hún en Petherick kemur inn i stofuna þegar hún er í miðju kafi svo hún hefur engan tíma til að lesa skjalið heldur flýtir sér aö eyðileggja það í eld- inum til öryggis ef lögfræðingurinn myndi upp- götva stuldinn." Joyce hristi höfuðið ákveðin. „Hún hefði aldrei brennt það án þess að lesa það fyrst." „Ég verð að viðurkenna að þetta er ekki nógu góð lausn," sagöi Sir Henry. „En getur ekki verið að - ég á við - aö Petherick hafi hjálpað til...“ Þetta var hlægileg uppástunga en litli lög- maðurinn virtist vera móðgaður. „Mjög ósmekkleg tillaga," sagði hann hörkulega. „Hvað hefur Pender læknir um málið að segja?“ spuröi Sir Henry. „Ég get ekki sagt að ég hafi neinar skýrar hugmyndir. Ég held að annað hvort Spragg- hjónanna hljóti að hafa skipt um blað og ef til vill hefur Sir Henry rétt fyrir sér hvað varðar tilefnið. Ef hún las ekki erfðaskrána fyrr en Petherick fór þá hefði hún verið í dálítilli klípu því hún færi varla að játa á sig að hafa skipt á blöðum. Það er mögulegt að hún hafi sett SAKAMÁLA- SAGA EFTIR AGÖTHU CHRISTIE blaöið á meðal skjala Símonar Clode, þar sem það myndi finnast eftir andlát hans. Ég veit samt ekki hvers vegna það fannst þá ekki. Það gæti þó verið að þjónustustúlkan, Emma Gaunt, hafi fundiö það og eyðilagt þaö af óverðskuldaðri tryggð við vinnuveitendur sína.“ „Ég held að lausn Penders læknis sé sú besta hingað til,“ sagði listamaðurinn Joyce Lempriére. „Jæja, Petherick. Hefur hann rétt fyrir sér?“ Lögmaðurinn hristi höfuðið. „Ég ætla bara að halda áfram þar sem ég hætti áðan. Ég hafði á sínum tíma ekki meiri hugmynd um rétta lausn en þið hafið nú. Ég held að ég heföi líklega aldrei getað giskað á lausn gátunnar en ég fékk að vita rétta svarið. Það var mjög snjallt. Ég fór í mat til Philips Garrod um það bil mánuði síðar og þegar við spjölluðum saman eftir matinn minntist hann á áhugavert mál sem hann hefði nýlega frétt af. „Mig langar að segja þér frá því, Petherick - að sjálfsögðu í fullum trúnaði.“ „Að sjálfsögðu," svaraði ég. „Vini mínum, sem hafði búist viö arfi frá ein- um ættingja sinna, brá mjög þegar hann frétti að sá ættingi ætlaði að arfleiöa manneskju sem átti engan rétt á því. Ég verð að viður- kenna að vinur minn grípur stundum til dálítið ófyrirleitinna aðgerða. í húsinu var þjónustu- stúlka sem studdi lögmætu erfingjana af heil- um hug. Vinur minn gaf henni skýr fyrirmæli. Hann lét hana fá fullan blekpenna sem hún átti að setja I skúffu í skrifborðinu I herbergi húsbónda síns en ekki í skúffuna þar sem penninn var venjulega. Ef húsbóndinn bæði hana um að vera vott að undirskrift á einhvers konar skjali og bæði hana um að rétta sér pennann sinn átti hún ekki að láta hann fá réttan penna heldur þennan sem leit alveg eins út. Meira þurfti hún ekki að gera. Þetta voru einu fyrirmælin sem hún fékk. Hún var trygg manneskja að eðlisfari og gerði það sem henni hafði verið sagt.“ Philip hætti frásögninni og sagöi við mig: „Ég vona að þér leiöist ekki, Petherick." „Alls ekki,“ sagði ég. „Þetta er mjög áhuga- vert.“ Við horfðumst í augu. „Þú þekkir auövitað ekki vin minn,“ sagði hann. „Auðvitað ekki,“ svaraði ég. „Þá er þetta allt í lagi,“ sagði Philip Garrod. Hann hikaði og sagði brosandi: „Skilurðu hvað ég á við? Penninn hafði verið fylltur með bleki sem hverfur - sterkjuupplausn í vatni, að viðbættu joði. Útkoman er dökkblár vökvi en það sem skrifað er með honum hverfur algjör- lega eftir fjóra eða fimm daga,“ sagði hann.“ Fröken Marple hló lágt. „Blek sem hverfur," sagði hún. „Ég þekki það. Hve oft lék ég mér ekki að því á mínum yngri árum.“ Hún leit á alla sem voru viðstaddir en hikaði þegar hún kom að Petherick og benti á hann ávítandi. „Þessi gáta þín fól samt í sér nokkurs konar gildru,“ sagði hún. „Eitt sinn lögfræöingur..." □ Ragnar Jónasson þýddi þessa sögu fyrir Vikuna úr ensku (Motive v. Opportunity). „Ég held við getum afskrifaö strax þann möguleika að þjónninn hafi gert þaö!“ 20. TBL, 1993 VIKAN 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.