Vikan - 01.08.1994, Blaðsíða 34
ATVINNUGREIN
MEÐ HERÐI FORMANNI BARÞJÓNAKLÚBBS ÍSLANDS
GEGNU
ÞURRT
Höröur Sigurjónsson
er í forsvari fyrir stétt
fólks sem flest okkar
hafa haft einhver kynni af.
Okkur þykir mjög vænt um
þaö þegar viö náum athygli
þessa fólks, a.m.k. meðan
það er í vinnunni, en getum
stundum þurft aö bíða eftir
því nokkra stund. Einkum
kemur biöin til af því aö þetta
fólk er með afbrigðum vin-
sælt viö vinnu sína, einkum
á kvöldin og þá helst um
helgar. Höröur Sigurjónsson
er formaður Barþjónaklúbbs
íslands. Hörður fylgir okkur
hér gegnum súrt, þurrt og
sætt á vettvangi íslenskra
barþjóna.
Höröur á nú og rekur veit-
ingahúsiö Naustiö í félagi viö
Hafstein Egilsson. Hann á
25 ára starfsafmæli um
þessar mundir því hann lauk
framreiðslunámi áriö 1969.
Sem barþjónn hefur Höröur
starfaö síöan 1974. Munur-
inn á barþjóni og „venjuleg-
um“ þjóni var meiri þegar
Hörður var aö byrja í faginu
og þá unnu barþjónar ein-
göngu á bar. Nú er starfið
fjölþættara og almenn fram-
reiösla oröin ríkari þáttur í
því.
HVAÐ UNGUR
NEMUR. . .
. . . gamall temur, segir
máltækiö. Það á ágætlega
við um Hörö Sigurjónsson
sem og bróöur hans, Sigþór
Sigurjónsson sem rekur
Kringlukrána. Faðir þeirra,
Sigurjón Jónasson, var
þjónn til margra ára og
þekktur sem slíkur. Móöir
Harðar og og Sigþórs, Krist-
ín María Sigþórsdóttir, starf-
aði einnig lengi viö fram-
reiðslu, m.a. á Gildaskálan-
um. Hingaö og ekki lengra,
gæti einhver sagt, en Höröur
getur haldið áfram:
„Nú, konan mín, Rannveig
Ingvarsdóttir, vinnur við
þetta líka. Hún byrjaði með
mér í þessu 1981 þegar hún
kom eitt kvöld að hjálpa til
viö opnun Broadway. Hún
hefur ekki stoppað síöan og
vinnur meö mér hér í Naust-
inu.“
Skyldi engan undra þótt
ég spyrji: Hvað með börnin
ykkar tvö?
„Nei, þau eru alveg laus
viö þetta."
Aðspurður um áhugamál
segist Hörður safna smávín-
flöskum (miniatures) eins og
þeim sem fram eru bornar í
flugvélum. Hann á nú dágott
safn en hefur stundum
gengið illa aö sannfæra toll-
verði um aö flöskunum haldi
hann óopnuðum til haga en
selji ekki.
„Ég man eftir því aö einu
sinni sat ég lengi á rökstól-
um við varöstjóra tollgæsl-
unnar á Keflavíkurflugvelli út
af nokkrum smáflöskum þar
sem aðeins var ein af hverri
tegund. Svo fór aö lokum aö
ég slapp meö þær í gegn en
þurfti aö borga af þeim toll
þótt Ijóst væri aö um safn
væri aö ræða.“
Önnur áhugamál Harðar
eru knattspyrna, aðallega frá
sjónarhóli áhorfandans, og
Höröur er að taka viö for-
mennsku í Lionsklúbbnum
Nirði. „Ætli þetta sé ekki
TEXTI:
JÓHANN
GUÐNI
REYNISSON
UÓSM.:
GUNNAR
GUNNARSSON
bara ólæknandi félagsmála-
baktería í mér,“ segir for-
maðurinn.
MINNA VODKA MEÐ
MAT
Á undanförnum aldarfjórö-
ungi hafa barþjónar gengið í
gegnum róttækar breytingar.
Áfengislöggjöfin og innflutn-
ingur áfengistegunda eru
óheftari, bjórinn mætti á
svæðiö, skemmtanamynstrið
hefur breyst og skemmti-
staöir einnig og þeim hefur
fjölgað um fleiri þúsund pró-
sent. Höröur er samtíðar-
maður allra þessara breyt-
inga og hefur því upplifaö
tímana tvenna. Hann tók
meöal annars þátt í ævin-
týralegum uppgangi Ólafs
Laufdal þegar hann opnaði
Broadway og Hótel ísland.
Hvaöa mun séröu nú
helstan ef miðað er við það
þegar þú varst aö byrja?
„Mesta breytingin varð
þegar stóru skemmtistaöirnir
hófu starfsemi sína. Þá fór
fólk á sama staðinn til aö
boröa og skemmta sér viö
stórsýningar og dans. Neysl-
an breyttist líka þegar bjór-
34 VIKAN 6. TBL. 1994