Vikan


Vikan - 01.11.1994, Síða 12

Vikan - 01.11.1994, Síða 12
legt stuðlaði að þessari ákvörðun. „Ég hafði verið mikið ein hérna úti og átti fáa vini sem ég gat rætt líðan mína við. Ég hélt andlitinu í skólanum, var dugleg, stóð mig vel og sendi þau skila- boð að allt væri í lagi með mig. Fjölskyldunni sýndi ég þetta sama andlit. „Hafið engar áhyggjur þótt ég sé ein hérna í stórborginni, ég pluma mig vel.“ Innra með mér óx þó alltaf sú vissa að þetta væri ekki rétta leiðin. „Það var svolítið skrítið að koma aftur vegna þess að ég var svo breytt og hafði ekki lengur þennan rosalega metnað. Það að komast á tindinn skipti mig ekki svo miklu máli lengur. Mig langaði enn að vera hluti af listinni en gat ekki tekið mark á þeirri löngun minni vegna þess að ég hafði upplifað svo margt neikvætt,11 segir hún. Hanna útskrifaðist í febrúar ’94 og bauðst fljótlega vinna við að höndum ber á jákvæðan eða neikvæðan hátt,“ segir hún. Reyndar er hún að starfa með dansflokki, undir stjórn Unu Maríu Haranen, „þegar við fáum eitthvað gera,“ seg- ir hún. „Þetta er lítill flokkur sem er að fara af stað með sýningar og ég var send þangað í inntökupróf. Ég segi send, því ég hefði ekki farið af sjálfsdáðum. Mér fannst ég ekki vera tilbúin og óg hugsa alltaf: „Nei, ég er ekki nógu góð.“ Við vorum „Þegar ég lít til baka þakka ég Guöi fyrir aö hafa ekki vitað betur út í hvaö ég var aö fara.“ Þegar ég loks sættist við þá rödd, fór ég heim. Ég gaf mér góðan tíma til að hvíla mig og fitna um tiu kíló, sem sáust varla á mér. Ég ein- beitti mér að því að ná heilsu, ná aftur sambandi við vinina og efla tengslin við fjölskylduna. Ég var orðin eðlileg og laus við tog- streituna og skoðanir ann- arra á því hvað óg ætti að gera. Þarna lærði ég líka að taka mark á sjálfri mér.“ DANSAÐÁ NÝ Meðan Hanna stóð við á íslandi kenndi hún börnum við Dansstúdíó Sóleyjar, auk þess að taka að sér hreyfikennslu á barnaheim- ili og kenna börnum í sunnudagaskóla Langholts- kirkju. Tveir vetur liðu og aginn og ástin á listinni tog- aði enn. Hanna ákvað að Ijúka náminu ytra og fór aft- ur út sumarið '93. kenna. Hvers vegna reyndi hún ekki fyrir sér í dans- flokki? „Þegar maður er farinn að sjá í gegnum þessa glamor- mynd; þekkir dansarana, hefur kynnst meiðslunum, baráttunni, uppgjöfinni og þreytunni, þá fer maður að spyrja sig: Vil ég hafa líf mitt svona? Það er svo mikil óhamingja og óheilbrigði í þessari grein. Ég hef sjálf prófað þá leið og hún er ekki eftirsóknarverð," segir Hanna. Hún segir miklu líklegra að manneskju, sem er heil- steypt og hamingjusöm, eigi eftir að ganga vel því hún geti gefið af sér. „í dag geng- ur mér vel vegna þess að ég er hamingjusöm. Trúin og bænin hafa líka hjálpað mér að verða jarðbundnari. Ég get betur horfst í augu við sjálfa mig og gert mér grein fyrir minni ábyrgð. Ég ræð sjálf hvort ég tek því sem að 20 sem tókum prófið og þrjár sem komust inn. Una stríðir mér í dag og segir: „Jó- hanna, þú varst svo drama- tísk að ég gat ekki annað en tekið þig.“ TVEIR MENNINGARHEIMAR Hanna kennir hópi í Bronx og öðrum í Kínahverfinu. Hóparnir eru jafn ólíkir og bandarísk og kínversk menning. í Bronx er mikil samkeppni og ýtt undir sýni- þörf krakkanna. Mörg þeirra eru í keppnishóp sem keppir við aðra dansskóla. Á nem- endasýningu þeirra gat að líta hvert steppatriðið á fætur öðru sem hefði verið boðlegt á Broadway. „Þetta var eins og að sjá ekkert nema glass- úrinn á kökunni og mjög þreytandi," segir Hanna. „Barnið veit nákvæmlega hvenær það á að brosa eða skjóta mjöðminni út, svo þetta sé svolítið kjút. Þetta gekk ekki inn í mig. Það er næstum ekki andað á svið- inu því það er verið að halda uppi svo miklu tempói, spennu og brosum.11 í Kínahverfinu eru börnin rólegri og sýna meiri virð- ingu. Allt er ofureinfalt, rólegt og smærra í sniðum en í Bronx. Dans barnanna var afar einfaldur en „svo falleg- ur að ég þurfti að snúa mér undan til þess að fólk sæi ekki tárin í augunum á mér,“ segir Hanna. „Þarna sá ég fegurðina í listinni og þetta barnslega sem við höfum öll í okkur. Við lifum svo hratt að við náum ekki að þroska þann þátt I okkur. Allar þess- ar kröfur um meira, betra, stærra! Þegar fólk slakar á og viðurkennir fegurð lítils blóms kemst það inn í heim þar sem allt er einfaldara og mýkra. Þetta finn ég bæði í börnunum og sjálfri mér en ég missti tengslin við það út af allri spennunni, áráttunni að gera betur og lyfta fótun- um hærra. Ég var svo föst í því að ég var orðin algerlega innantóm. Ég er fylgjandi því að „minna sé rneira" en segðu það fólki sem gengur á hraða og upplifir veröldina þannig! Dansinn er svo tengdur innblæstri og upplifun. Mað- ur upplifir sig samtengda tónlistinni, leiðir hana í gegn- um sig, gleymir sér. Ég er al- veg sannfærð um að maður verður að hafa tengingu við auðmýkt, hlýju og fegurð hjartans. Ég vil vinna út frá hjartanu og virðingu fyrir hinu smáa sem og hinu stóra. Þetta litla í veröldinni má ekki gleymast, þetta sem er til staðar án þess að hrópa um hvað það sé æðis- legt. Hafir þú augu til að sjá það, gefur það þér eitthvað, blessar þig. Börnin í Kína- hverfinu hafa gefið mér þetta. Ef ég get skilað ein- hverju sem snertir aðra og skilið eftir lítið blóm hjá þeim, þá hafa öll mín ár verið þess virði." Hönnu hefur einnig boðist að taka tíma með kínversk- um dansflokki sem sýnir um öll Bandaríkin en hún kennir í skóla dansflokksins. „Þetta er mikill heiður og mjög gaman fyrir mig,“ segir hún og nefnir að meðal annars fái hún þar að kynnast kín- verskum óperuhreyfingum, 1 2 VIKAN 10. TBL. 1994

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.