Vikan


Vikan - 01.11.1994, Síða 13

Vikan - 01.11.1994, Síða 13
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: æfð verði brot úr ýmsum verkum, og starfað eins og í danssmiðju. MARGT AÐ GEFA Hanna tók að sér sjálf- boðastarf í kirkju Páls post- ula á 10. breiðgötu, við að kenna börnum barnaheim- speki. „Það var mjög nauð- synlegt fyrir mig að læra að taka fókusinn af sjálfri mér og fara að fókusera á aðra, sjá hvað ég gæti gefið fólk- inu í kringum mig. Ég hef varið miklum tíma í að reyna að skílja og melta reynslu mína. Það sem ég lærði á öllum þessum vonbrigðum var að ég var í rauninni bara að brjóta mig niður allan þann tíma sem ég sá sjálfa mig í neikvæðu ljósi.“ I Bronxhverfinu kennir Hanna börnum og unglings- stelpum að dansa á táskóm. Hún sá sjálfa sig í stelpunum og fann aftur kærleikann til listarinnar. „Það var mjög erfitt þegar ég fann að löng- unin fór að koma aftur,“ segir hún. Hanna segist vera hvetjandi kennari og við eina hvatninguna rann upp Ijós fyrir henni sjálfri. „Ég gerði mér allt í einu grein fyrir þvf hve mikilli þekkingu á eigin líkama ég bjó yfir og að ég hafði margt að gefa og segja. Þess vegna hefur kennslan gengið svona vel. Hún gefur mér gott jafnvægi. Það er svo lýjandi að vera sjálfsgagnrýninn dansari sem er að fókusera á sjálfan sig. Mér Ifður betur þegar ég fæ líka að gefa af mér og flissa með börnunum. Full- komnunarárátta mín hefur rjátlast af mér við að sjá hvað börnin eru falleg, ein- læg og blíð í sinni sköpun, því ekki eru þau fullkomin." ÞRJÓSKAN HJÁLPAÐI HENNI Hvað stendur til á næst- unni? „Ég hef ekki verið tilbúin til þess að takast á við neina stóra hluti. Þétta verður að koma hægt og rólega og á þann hátt byggi ég upp mitt eigið sjálfstraust, því innst inni er ég fremur feimin og óörugg," segir hún. Þetta er heldur ekki auðveldasta borgin til að vera að finna sjálfan sig og sinn stað í líf- inu - í ballett í New York! Það er því ekkert skrftið að hafa verið svolítið áttavillt og stundum hugsað: „Ég fer bara heim og gleymi þessu.“ Maður fer vitanlega í sínar sveiflur, ég er bara venjuleg manneskja. Það hefur þó hjálpað mér ótrúlega mikið að beita heilbrigðri skynsemi og vera ekkert að flýta mér. Stundum er ég eins og þrjósk, Iftil stelpa og var það áreiðanlega, spurðu systkini mín. Þrjóskan er góður eig- inleiki og hefur hjálpað mér vel hér. Ég mæti oft úrtölu- fólki í mínu daglega lífi og starfi en svara á móti: „Hvers vegna ekki?“ Þrjóska hjálpar manni líka við að láta ekki vaða yfir sig og ekki segja sér að maður komi aldrei til með að láta drauminn ræt- ast. Kannski er það góðlát- lega meint en þetta er kann- ski fólk sem gafst upp, tolldi ekki nógu lengi á staðnum, beið ekki eftir því að hlutirnir kæmu eðlilega. Það er svo- lítið íslenskt að vilja allt á stundinni. Það sem ég hef í dag hef- ur komið eðlilega en ég hef þurft að standa mig og vinna fyrir því og það hefur gefið mér mikið. í morgun var mér boðið að taka að mér tvo strákahópa. Ég þykist aldrei vita meira en ég veit svo ég talaði við stjórnanda skólans og bað hann að segja mér hvað ég þyrfti að hafa í huga við að kenna strákum. Mér var þá strax bent á að hafa svolitla keppni á milli þeirra og svona vinn óg; játa það að ég er ekki fullkomin og hef ekki allt á hreinu og þá kynnist ég svo mörgu fallegu fólki sem gefur mér mikið og sýnir mér að það er líka þakklátt fyrir að þekkja mig. Ég veit ekki hvort mín leið er á einhvern hátt falleg eða mjúk, en hún er að verða auðveldari. Ég er sjálf að verða sáttari og mýkri og þessi skemmandi metnaður er ekki lengur til staðar. Þá fara draumarnir einhvern veginn að rætast. Maður þykist hafa svörin, þykist vita hvernig næsta hálfa ár verður en svo þegar upp er staðið hefur maður ekki hugmynd. Ég hefði ekki getað séð fyrir að ég færi í þetta sem ég fór síðan í. Þegar ég lít til baka þakka ég Guði fyrir það að hafa ekki vitað meira um út í hvað ég var að fara. Þá er ég ekk- ert viss um að ég hefði látið verða af því.“ □ Úrval af dúnsængum Við bjóðum dúnsængur með 100% hreinum dún, dúnheldum verum í hæsta gæðaflokki og vönduðum frágangi. Dúnsængurnar frá okkur má þvo (40°) og setja í þurrkara (60°) - að undanskildum æðardúnsængunum. §œngurfatagerBin BALDURSGÖTU 36 101 REYKJAVÍK SÍMl 16738 Þjáist þú af — vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka, gigt, tognun eða viltu bara grennast. Trimm-form getur hjálpað. Bjóðum einn prufutíma VERÐ FRÁ 6000 KR. SNYRTISTOFU ARBÆJAR HRAUNBÆ 102 - SIMI 68-93-10 HULDA HÁRSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 62 61 62 REYKJAVÍKURVEGl 64 ■ HAFNARFIRÐI ■ SÍMI 652620 • HEIMASÍMI 52030 Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl. HVERFISGÖTU 62 • 101 REYKJAVÍK 10. TBL. 1994 VIKAN 1 3 NAFNSPJOLD

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.