Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 24
TEXTl: ÞÓRUNN HELGADÓTTIR
Fjöldi hjónaskilnaða hefur
meira en tvöfaldast á tuttugu
og fimm árum. Fólk byrjar
samband, skilur, prófar aftur
o.s.frv. Ég sá lýsingu á
ástandinu í ágætri bók þar
sem segir að flest fólk sé
eins og hálfhringir á sveimi í
leit að öðrum hálfhring.
Þessir tveir hálfhringir reyna
síðan að mynda heilhring.
Vandamálið er hinsvegar
það að hringurinn hefur tvö
höfuð sem bæði vilja stjórna.
En kannski er eitthvað já-
kvætt við þessa þróun. Fólk
er ekki lengur tilbúið til þess
að þrauka ævina í óham-
ingjusömu hjónabandi og
leitar að nýjum aðferðum tii
þess að tengjast öðrum. En
hvernig eru þessar nýju að-
ferðir? í þessari grein er fjall-
að um hvað konur geta gert
til þess að mynda gott sam-
band við makann. Sumt af
þessu á sjálfsagt við um karl-
menn líka en til þess að ein-
falda málið þá höldum við
okkur við kvenkynið. En lít-
um fyrst á aðstæður.
Sambandið er búið að
vera í daufara lagi í dálítinn
tíma. Það er eins og áhugi
hans, og jafnvel þinn Ifka, sé
lítill. Hvað gerir þú? Hér
koma nokkrar mikið notaðar
en misheppnaðar aðferðir:
a Þú kvartar! Þú kvartar
yfir því að hann bjóöi þér
aldrei út aö borða, kaupi
aldrei blóm, sé fjarlægur, til-
finningalega lokaöur, sé
aldrei heima, vaski ekki rétt
upp, boröi ekki nóg og raöi
handklæðunum ekki rétt í
skápinn.
Þú kvartar yfir ótrúlegustu
smáatriðum. þú kvartar á þig
gat. Maðurinn þinn er þessi
yfírvegaða, þögla týpa sem
felur sig á bak viö dagblað-
iö. Svona getur þetta gengið
dögum saman þangaö til
þig langar til þess að garga
og allt springur i loft upp.
b Þú notar þöglu aöferö-
ina til þess að fá þinu fram-
gengt. Þú sýnir honum enga
athygli og ert kuldaleg í við-
móti. Það gefur skýr skila-
boö um aö þú hafir veriö
hræðilegu órétti beitt. Maö-
urinn þinn þolir þetta aldrei
til lengdar og lætur undan
að lokum. Á sama tíma og
þú ert ánægð meö aö hafa
unnið orustuna þá hatarðu
hann fyrir að láta stjórna sér.
c þú notar þetta líka þegar
þig vantar athygli frá honum.
Meiningin er að hann færi að
sakna þín og komi til þín
skríðandi á hnjánum með
ástarljóð á vör. Hann sjái
hversu ómetanlegur gim-
steinn þú ert. Þegar aö þessi
aðferð dugar ekki til þá get-
urðu alltaf reynt að hóta að
flytja til mömmu.
d Þú hefnir þín til þess að
kenna honum að koma ekki
svona fram við þig framar.
Þú gerir honum lífiö óbæri-
legt, segist hafa höfuðverk
eða notar einmitt þá refsingu
sem aö þessi maður hatar.
e Þú reynir stöðugt aö
benda honum á hvað hann
sé að gera rangt. Hún:
„Veistu að þessi leið sem aö
þú ert aö fara er miklu lengri
en heldur en hin leiöin?"
Hann: „já en mér finnst
útsýniö svo miklu skemmti-
legra hérna megin." Hún:
„Gerir þú þér grein fyrir hvaö
bíllinn eyðir rosalega miklu?"
Þú reynir aö taka við þar
sem mamma hans gafst
upp.
Aðferðirnar geta verið
óteljandi. Ef að þú kannast
við eitthvaö af þeim geturöu
huggað þig við að þú ert al-
veg eins og miljónir annara
kvenna. En þetta þarf ekki
aö vera svona. Ef aö þú leit-
ar að leið út þá koma hér
nokkrar skotheldar hug-
myndir sem aö þú gætir
prófað.
1 Snúðu dæminu við.
Gerðu fyrir hann allt sem að
þú vilt að hann geri fyrir þig.
2 Segðu honum á hverj-
um degi aö hann sé fallegur
og dásamlegur og hversu
mikils virði hann sé þér. Karl-
menn elska að heyra að þeir
séu það besta sem þú veist.
Það skemmtilega er aö um
leið og þú ferð að segja
þetta oftar við hann þá fer
þér líka að finnast meira var-
iö í hann.
3 Ef hann bregst ekki við
blíðuhótum þínum eins og
skot skaltu ekki fara að
ásaka hann og skammast.
Hann er ábyggilega mjög
viðkvæmur fyrir stjórnsemi.
Það er sennilega það sem
hann hatar mest af öllu.
4 Gefðu honum frið. Ekki
hnýsast í allt sem hann gerir.
Karlmenn þurfa aö eiga sína
hluti og sinn tíma út af fyrir
sig.
5 Bjóddu honum út að
borða. Veldu stað sem hann
langar til þess aö fara á og
dekraðu við hann. Blóma-
sendingar af og til geta líka
gert kraftaverk. Aðalmálið er
að hann finni að hann sé ein-
hvers metinn. Stöðugur hiti
getur brætt jafnvel stærstu
jökla. Snjókoma og hríö
bæta ofan á fargið.
6 Reiknaðu með að
leggja sjálf 75% í samband-
ið en fá aðeins 25% til baka.
Á þann hátt verður allt sem
þú færö umfram þaö óvænt
ánægja. Eitthvað sem hann
gerir af því aö hann langar til
þess en ekki vegna þess aö
þú ætlast til þess. Mundu að
þú uppskerð eins og þú sáir.
7 Njóttu þess að vera
kvenleg. Ekki fyrir hann
heldur þig. (Að vera kvenieg
er ekki spurning um líkams-
stæröir heldur orkuútgeislun.
8 Keyptu þér falleg undir-
föt og notaðu þau. . .oft!
9 Ekki sálgreina manninn
þinn. Sálgreindu sjálfa þig. í
hvert skipti sem að þú finnur
aö þú ert farin aö laga „gall-
ana hans“ líttu þá I eigin
barm. Lagaöu þína eigin
galla. Það er ekkert eins
þreytandi eins og fólk sem
er sífellt aö reyna aö breyta
öðrum: „Sko, það sem er að
hjá þér er aö þú opnar þig
ekki nóg tilfinningalega. Þér
liði miklu betur ef að þú að-
eins opnaðir þig tilfinninga-
lega." Eða: „Vandamáliö
meö þig er að þú ert alls
ekki nógu ákveðinn. Þú veist
aldrei hvað þú villt." Þú ert
föst í því að ef aðeins „hann“
væri öðruvísi þá liöi þér bet-
ur og þá myndi sambandið
ganga upp.
10 Ekki hóta skilnaði í
tíma og ótíma. Segöu þaö
aðeins ef aö þú meinar það.
T.d. „Ég þoli ekki lengur
þessi partý um hverja helgi
svo að ég er að hugsa um
að flytja út.“ Þú getur líka
sett þér viðmiðunarreglur um
hvað sé skilnaðarorsök. T.d.
framhjáhald, fullur á hverjum
degi, skrúfar aldrei lokið á
tannkremstúpuna o.s.frv. Ef
að hluturinn er ekki skilnað-
arorsök skaltu ekki reyna að
nota þessa hötun sem
stjórntæki á manninn þinn.
Þaö skapar aöeins vantraust
og sárindi.
11 Hugsið ykkur öll þau
leiðindi sem hægt er aö
spara sér með því að finna
lausnir á smáatriðum. Segj-
um t.d. að hann kreisti alltaf
tannkremstúpuna í miðjunni.
Keyptu þá tvær túpur, eina
fyrir þig aðra fyrir hann. Ég
kom einu sinni til eldri hjóna
sem voru búin aö vera gift í
45 ár. inni á baðherberginu
voru tvær handlaugar, ná-
kvæmlega eins, hlið við hlið.
„Við nenntum ekki að rífast
yfir þessu lengur svo að viö
leystum máliö svona," sögðu
þau sallaglöð. Á sama hátt
má leysa ýmis þrifnaðarrifr-
ildi meö því að fá einhvern til
þess aö koma heim einu
sinni í viku og laga til. Kostar
ekki mikið en sparar tíma og
vandamál. Uppvaskið? það
sama. Uppþvottavél. Hættiö
pexi og finniö lausnir sem
duga. Hvort sem um er að
ræöa fjármál, ættingja eða
uppeldi. Förum t.d. aðeins í
annaðhvert jólaboð. Höldum
aðskildum fjárhag o.s.fr.v.
12 Ekki hætta að sinna
þínu eigin lífi og áhugamál-
um þó að þú hafir fundið
draumaprinsinn. Það er fátt
jafn óspennandi og mann-
eskja sem gufast í gegnum
lífið án þess að sinna sjálfri
sér, án þess að hafa skoðan-
ir og án þess að hafa sjálf-
stæðan vilja. Ræktaðu eigin
garö, finndu metnað og kjark
með sjálfri þér til þess að
gera það sem þig dreymir
um ( lífinu. Og umfram allt
ekki hanga á honum.
13 Sýndu honum kurteisi.
Þú gargar ekki á vinnufélag-
ana, því þá aö gera það við
manninn sem þú elskar.
14 Sparaðu nöldrið.
Hvort er þér meira virði
þessi yndislegi karlmaöur
eða gólfteppið sem hann
sporar út?
15 Líttu á það jákvæða
sem þið hafið. Ef um þaö bil
helmingurinn af tímanum
sem þiö eyðið saman er já-
kvæður þá er þaö gott, allt
umfram það er mjög gott.
Þaö er nefnilega þannig að
það er eölilegt að það verði
árekstrar á milli tveggja ein-
staklinga. Ekkert samband
býður upp á stanslausa
hamingju.
16 Vertu hrein og bein
með það sem þú vilt og
gefðu félaga þínum jafnframt
færi á að segja nei.
17 Lærðu að taka neitun.
Að fá nei þýðir að félagi þinn
hefur sjálfstæðan vilja, er
raunveruleg manneskja.
Gleðstu yfir því og teldu svo
öll jáin sem að þú færö.
Hafðu á takteinum fleira fólk
sem getur mætt þörfum þín-
um þegar félagi þinn getur
það ekki. Ef hann er ekki til-
búinn til þess aö ræða við
24 VIKAN 10. TBl. 1994