Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 34
BLAÐAUKI
Slaufur eru bundar úr efninu utan um
hvern hring á stönginni.
stólum af alls konar skrauti
fyrir gluggatjöld og kappa.
Dúskar og snúrur þekkja allir
en einnig er fariö aö taka til
dæmis kappana saman meö
klemmum og eru þá til dæm-
is notaðir klemmuhringir
sem áöur voru notaöir í
tengslum viö gardínusteng-
ur. Hringklemman var
klemmd í efnisbrúnina og
hringnum svo rennt upp á
stöngina. Einnig er mikiö til
af alls kyns dúllum, slaufum
og hnöppum sem allt er fest
eöa klemmt til skrauts i efn-
in. Auk þess sem glugga-
tjaldavængir eru teknir til
hliðar meö snúrum og dúsk-
um eru notaðar málmfjaðrir
og margvíslegt málmskraut (
sama tilgangi. Þaö er því
mikið hægt aö hressa upp á
gluggatjöldin bæöi þau
gömlu ef við viljum ekki láta
þau sigla sinn sjó og þau
nýju til aö gera þau enn fínni
en ella.
Köflótt og dením fer vel saman og er toppurinn í dag.
SAMHUÓMUR
LITANNA
Mikil áhersla er nú al-
mennt lögö á aö velja vel
saman hluti á heimilinu.
Tp
Gluggatjöld og húsgögn ■ stíl. Takiö eftir boganum á kappanum. Hann kemur vegna lags stangarinnar.
Gluggatjöld, rúmfatnaður,
rúmgaflar, rúmteppi eru val-
in í stíl í svefnherberginu. Á
baöherbergi eru gluggatjöld,
sturtuhengi og mottur sem
og handklæði líka höfö í
sama litatón, ef hægt er. í
eldhúsinu eru gluggatjöldin,
borödúkar, pottaleppar og
svuntur valiö saman ef
hægt er. í stofunni verða
gluggatjöidin sömuleiöis aö
fara vel viö húsgögn og þaö
sem á gólfum er. Líklega
hefur aldrei veriö lagt jafn-
mikið upp úr þessum sam-
hljómi litanna hér á landi og
einmitt nú.
Ekki eru allir jafnhand-
lagnir og veröa því að leita
aðstoðar í verslunum þegar
keypt eru gluggatjöld. Víö-
ast hvar er hægt að fá
gluggatjöld saumuð fyrir sig.
Sumar verslanir fara heim á
heimili og leiöbeina um efn-
isval, uppsetningu, taka mál
og aðstoða svo í lokin viö
aö koma gluggatjöldunum
fyrir ef þess er óskaö. Á
stöku staö er meira að
segja gengið svo langt aö
teknar eru vídeómyndir af
gluggunum áður en saumað
er og síðan aftur þegar
tjöldin eru komin fyrir.
Saumakonur geta þá betur
gert sér grein fyrir hvernig
leysa má vandamál, sem
koma kunna upp, þegar
þær geta horft á gluggana
og umhverfi þeirra á mynd-
bandi og svo er aö sjálf-
sögðu líka hægt aö bjóða
nýjum viðskiptavinum að
skoða velheppnaðar upp-
setningar. □
34 VIKAN 10. TBL. 1994