Vikan


Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 60

Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 60
UNGFRÚ SUMMER í VIÐTALI VIÐ VIKUNA: OG TIL ÞESS ÞARF ENGA SÉRSTAKA MENNTUN o cr> E2 Z >- UJ OC z o Z> o z z < X o cy Q z >- o o X LU I un kallar sig Sum- mer og er söngkona I hljómsveitarinnar SNAP sem meðal annars hefur náð heimsfrægð með laginu „l’ve got the powerl". Að vísu er Summer um þessar mundir að syngja sín fyrstu orð með hljómsveitinni en hún hefur starfað með SNAP nú um þriggja mán- aða skeið. Blaðamaður Vik- unnar hitti Summer á Ibiza í september. „Komdu sæl, ég heiti Jó- hann og kem frá íslandi." Hún lítur á mig og endurtek- ur síðasta orðið: „íslandi? Hallooó!" Ég endurgeld kveðjuna fyrir hönd þjóðar- innar. „Hefurðu komið til ís- lands?“ spyr ég síðan að góðum og gegnum sið. „Nei, aldrei," svarar Summer. „Ertu á leið þangað?" spyr ég aftur þegar ég sé að það er eins og hún sé að bíða eftir þess- ari spurningu. Hún svarar áhugasöm: „Ef þið bjóðið mér!“ Ekki málið. Summer var dansari áður en hún lagði sönginn fyrir sig. „Ég hef unnið með Janet Jackson, Paula Abdul, Prince, James Brown og stjóra hljómsveitarinnar. Hún fór síðan til Þýskalands, en þar liggja rætur SNAP, þar sem hún söng með sveitinni. „Þeim líkaði það sem þau heyrðu og ég hélt áfrarn," segir hún, „við gerðum síðan plötuna á tveimur vikum og hér er ég núna,“ bætir Sum- og viðmót er þannig að hún gæti allt eins verið heima hjá sér en ekki úti undir berum himni á spánskri eyju, í ná- grenni við flugvöll með til- heyrandi hreyflaþrumum. Hún er fyrst spurð hvort vænta megi einhverra breyt- inga á tónlistarflutningi Akureyringarnir Guölaugur (t.v.) og Hólmgeir, eöa öllu held- ur Gulli og Holli, létu Summer ekki ganga sér úr greipum fyrr en samfundi þeirra haföi veriö komiö fyrir á filmu til ævarandi geymdar. mer við. Einfaldara getur það varla verið. Titill nýju plötunn- ar er „Welcome to tomorrow“ en hún ber sama nafn og lagið sem dreift er sem „sing- le“ eins og það er kallað. Meö Summer voru tvær dansmeyjar og sviösframkoma SNAP var mjög skemmtileg. Summer gaf sér meira aö segja tíma til aö líta linsuna . . .! mörgum öðrum, meðal ann- ars við gerö myndbanda og kvikmynda," segir hún en margt af því góða fólki er í vinahópi hennar. Það var ein af fyrrverandi söngkonum SNAP sem kynnti Summer fyrir upptöku- SEMUR SJÁLF NOKKURLÖG Summer fær sér sæti. Hún er mjög yfirveguð og róleg þannig að maður veltir fyrir sér hvers sé að vænta á sviði; eintómra vangalaga kannski? Yfirbragð hennar SNAP eftir að hún hefur tek- ið yfir sönginn? „Tónlistarleg breyting verð- ur í rauninni mjög lítil. Ég samdi fimm lög á plötunni og að henni vann sami upptök- ustjóri og áður. Annars er bakgrunnur minn bæði í poppi og djassi og ég vil hafa tónlistina mína meló- díska. Ég legg líka mikla áherslu á sterkan samhljóm bakradda og reikna með að meira muni bera á þessum atriðum í SNAP.“ Hefurðu einhverja mennt- un á tónlistarsviðinu? „Nei, enga sérstaka, þetta kemur frá hjartanu. Að semja Ijóð er að skrifa tilfinn- ingar og maður þarf ekki að hafa lært neitt í tónlist til þess að geta samið. Þú þarft bara að geta skrifað hvernig þér líður. Og þannig gerði ég lögin mín fimm sem eru á nýju SNAP-plötunni.” Leikurðu á einhver hljóð- færi? „Nei,“ svarar Summer og lítur á mig eins og henni þyki ógurlega leitt að hún geti ekki státað af einhverjum gráðum í tónfræði og leik á hljóðfæri sem heita óskap- lega fínum nöfnum. En henni þykir það ekkert leitt sjálfri. „Eg hef mjög gott tón- eyra,“ segir Summer. Finnst þér óþægilegt þeg- ar talað er um nýju SNAP og gömlu SNAP? „Nei, alls ekki. Tvær þeirra, sem voru í SNAP, eru góðar vinkonur mínar og ég er stolt af því að feta í fót- spor þeirra." UPPÁHALDSLÖGIN Eru einhver sérstök lög sem kveikja með þér sér- stakar minningar? „Já, mörg lög eru tengd minningum. Til dæmis minn- ir lag Madonnu, „La Isla Bonita" mig alltaf á það þeg- ar ég var í sumarfríi í Puerto Rico. En þetta er bara eitt lít- ið dæmi.“ Hvernig tónlist verður helst til þess að þig langar til að dansa? „House-tónlist finnst mér skemmtileg." Hvaða lag vildirðu helst hafa samið? Summer þarf ekki að hugsa sig lengi um og svarið kemur um hæl: „Það er „I will always love You“ eftir Dolly Parton. Mér finnst það mjög fallegt, sér- staklega eins og Whitney Huston flytur lagið. Það hefði ég viljað hafa samið og ég vildi gjarnan hafa svipað- ar tekjur og þær tvær!“ svar- ar Summer og hlær við. TRÚUÐ GRÆNMETISÆTA Finnst þér þú hafa breyst eitthvað upp á síðkastið við þær þreytingar sem orðið hafa á högum þínum? „Já, meiri streita! Vissu- lega er ég í mjög þreytandi starfi en um leið er það mjög skemmtilegt. Ferðalög eru ráðandi þáttur í lífi mínu, ég bý bæði í New York og Los Angeles en vinn mest hér í Evrópu. Dagskráin er alltaf þéttbókuð og ég eyði mjög miklum tíma í flugvélum." 60 VIKAN 10. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.