Vikan


Vikan - 20.02.1995, Síða 12

Vikan - 20.02.1995, Síða 12
STJORNUSPEKI vera ábyrg. Hver og einn þarf að taka af skarið til að koma sér í þá aðstöðu að vera sólarmegin," segir Gunnlaugur. Hann bætir þvf við að hann hafi síður en svo alist upp sólarmegin. Faðir hans var sjómaður sem drukknaði á togaranum Júlí árið 1959. Gunnlaugur var þá tæplega fimm ára, átti ársgamlan bróður og átta ára systur. „Ég var settur í fóstur hjá móðurömmu minni í Reykjavík og mamma fór að vinna í Keflavík. Systkini mín voru send upp á Akra- nes þannig að ég missti í raun föður, móður og bæði systkini mín á einu bretti. (Auðvitað skapar svona reynsla ótta og óöryggi sem situr eftir. Dauði föður míns var aldrei ræddur við mig. Svo liðu 30 ár og ég var allt- af með óróa og verk fyrir brjósti sem ég ýmist reyndi að horfa framhjá eða rakti til kaffidrykkju. Þegar ég fór að rekja málin til baka uppgötv- aði ég að ég var með tilfinn- ingahnút í brjóstinu og þjáð- ist af sorg.“ Gunnlaugur þjáðist einnig af kvíða og hræðslu, alveg sama hversu vel honum gekk. „Þótt nóg væri að gera var ég með í maganum að þá yrði bara minna að gera f næsta mánuði eða eitthvað áfall henti. Þetta rek ég beint til öryggisleysis í bernsku," segir hann. HÆTTI AÐ FLÝJA SORGINA Fyrir þremur árum sat hann við í átta mánuði og undirbjó sjálfsræktarnámskeið. Þá segist hann hafa hætt að flýja þessa sáru reynslu. „Ég leyfði sorginni að koma upp, horfði á hana hlutlaust og bara syrgði. Óuppgerð sorg, sem ég bar innra með mér, hafði staðið mér fyrir þrifum. Ég syrgði pabba aldrei al- mennilega og var reiður út í hann fyrir að hafa dáið og brugðist okkur. Það er órétt- látt að vera reiður út í mann, sem deyr við skyldustörf, en sú reiði var til staðar og ég þurfti að gera hana upp. Þess vegna finnst mér stór- kostleg þessi áfallahjálp sem boðin er í dag. Það er svo mikilvægt að fá útrás," segir Gunnlaugur. Amma Gunnlaugs lést þegar hann var 14 ára. Móð- ursystir hans fékk krabba- - mein þegar hann var 17 ára og lést eftir tveggja ára erfið veikindi. Móðir hans hafði nokkru áður flust til Reykja- víkur en um þetta leyti veikt- ist hún einnig. 19 ára hélt hann því út í lífið, án stuðn- ings frá fjölskyldunni en samband við föðurfjölskyld- una, sem bjó á Suðurnesjum og á Skaganum, hafði verið litið. „Ég átti sem sagt enga föð- urfjölskyldu, enga föðurímynd og engan pabba en svo hurfu konurnar líka úr lífi mínu áður en ég varð tvítug- ur,“ segir Gunnlaugur. „Þetta er náttúrlega eins og Lax- ness sagði: „Næst því að missa móður sína er fátt hollara ungum börnum en missa föður sinn.“ Það er dýpri sannleikur í þessu. Fólk, sem lendir í svona missi, verður einhvern veg- inn að bjarga sér út úr hon- um. Ég hef bara þurft að spjara mig sjálfur." Gunn- laugur nefnir að hann hafi meðal annars þurft að kom- ast yfir sektarkennd sem er algeng hjá eftirlifendum. Hann segist hafa spurt sig: Missi ég ástvini mína vegna þess að ég er svona vond- ur? Er verið að refsa mér? HNEYKSLI! SEGIR KIRKJUÞING Fyrir nokkrum árum fékk Gunnlaugur 350 þúsund króna styrk frá Reykjavíkur- borg til að vinna að mark- aðssetningu á Bókinni um þig erlendis. Styrkveitingin vakti athygli sem Gunnlaug- ur hefði getað verið án. „Kirkjunnar menn urðu æfir og kváðu hneyksli að vera að styrkja „hjátrú og hindur- vitni“. Kirkjuþing ályktaði um málið og ályktun þess var birt í Morgunblaðinu. „Kirkju- þing hefur ekki séð önnur vandamál í þjóðfélaginu. Væntanlega hefur allt annað verið í himnalagi," segir hann. Það, að Gunnlaugur ætl- aði að selja sína þekkingu og hugvit úr landi og fá inn gjaldeyri, var semsé talið til- efni til sérstaks fundar á þriggja daga kirkjuþingi 1992. Gunnlaugur segist hafa fengið blaðamenn yfir sig í haugum og öll hafi at- hyglin verið neikvæð. Þetta var erfiður tími og Gunnlaug- ur segir að kannski hafi 350 þúsundin farið fyrir lítið vegna þess að hann eyddi 2 - 3 mánuðum í að verja sig í stað þess að hafa næði til þess að vinna. Af þessu tilefni hafði Gunnlaugur samband við sinn sóknarprest og óskaði eftir viðtali við klerkinn sem hafði tekið málið upp á kirkjuþingi. „Kirkjunnar menn virtu mig hins vegar ekki við- lits,“ segir hann og viðtalið átti sér aldrei stað. Hann segir sér hafa sárnað þessi árás og upplifað þetta eins og verið væri að útskúfa honum úr kirkjunni. „Ég er kristinn og reyndar mjög trúaður og þess vegna sárnaði mér þetta enn meira. Ég hlaut kristilegt uppeldi hjá ömmu minni sem var kirkj- uorganisti og átti stórt, trúar- legt bókasafn. Svo kemur klerkur með tóma kirkju og segir: „Það sem þú ert að gera er vitleysa og blekking!" Það má spyrja sig hvort þetta séu menn sem hafi reynt eitthvað í lífinu. Það lýsir skorti á samhygð og samúð að ráðast gegn mönnum, sem eru að reyna að bjarga sér, og neita svo að hlusta á þeirra sjónarmið. Það er töluverð ábyrgð að banna fólki að bjarga sér, hvort sem björgunarleiðin heitir jóga, sálfræði eða stjörnuspeki. Ég er sonur sjómanns sem drukknaði við skyldustörf. Sjómenn eru þeir sem halda uppi þjóðfé- laginu og hætta lífi sínu fyrir hina. Ekki fékk ég neina áfallahjálp. Ég hef sjálfur þurft að berjast út úr þeirri sorg og þeim erfiðleikum sem komu upp. Það var stjörnuspekin sem bjargaði mér; sjálfsþekkingin. Núorðið er ég góður í þessari vinnu og hef hjálpað mörgum. Ég þurfti að móta mína eigin sið- fræði; faðir minn var látinn og ekki fékk ég neina sið- fræðiþekkingu frá kirkjunni þótt ég hafi leitað hennar." Á unglingsárunum reyndi Gunnlaugur að leita til prests með sína innibyrgðu sorg, en fékk enga hjálp. Honum er líka ógleymanlegt að þeg- ar hann fermdist rifust prest- arnir í kirkjunni og kölluðu hvor annan skíthæl fyrir framan fermingarbörnin! „Hvernig átti ég að bjarga mér? Ég hefði auðvitað átt að leggjast í drykkju niðri á Hallærisplani, það er viður- kennd leið. Ef andlegu hjálp- ræðisleiðunum er lokað þá er ekkert annað eftir en brennivínið og víman. Þess vegna er svo sorglegt að banna fólki að leita andlegu hjálpræðisieiðanna,“ segir hann. SKAPA MINN HEIM SJÁLFUR Gunnlaugur leitaði siðfræði- þekkingar í bókum og fann sumt í kristni og annað í austrænum fræðum. Hann undirstrikar að stjörnuspeki sé sálfræði og sjálfsþekking- arleið en ekki trúarbrögð og því ekki í samkeppni við þjóðkirkjuna sem hann, þrátt fyrir allt, vill allt hið besta. Gunnlaugur og Svana, kona hans, styrkja t.d. tvö ind- versk börn með mánaðar- legu framlagi í gegnum Hjálparstofnun kirkjunnar og hafa gert í mörg ár. „Kirkjan er að gera marga góða hluti,“ segir hann. Stóru, brúnu augun minna á sjá- andaaugu; augu einhvers sem hefur séð flest og um- borið enn meira. „Ég er sterkur í dag en ég er fer- tugur og hef verið að vinna með sjálfan mig í 20 ár. Ég þurfti að takast á við sektar- kennd og minnimáttarkennd. Þegar ég var um tvítugt, svalt ég á tímabili og þjáðist af næringarskorti. Ég átti enga peninga og engin föt, það vantaði allt. Ég var i al- geru rusli þegar ég ákvað að taka mér tak, 24 ára gamall. Ég var í Kaupmannahöfn, atvinnulaus, í febrúar, í kaldri risíbúð, veikur og vinafár. Ég þurfti að vinna mig upp úr myrkrinu. Það gerði ég með ýmsum aðferðum, m.a. því að fara í viðtöl til sálfræð- inga, breyta mataræði og taka upp reglulega líkams- rækt.“ Lífið er fullt af atvikum sem ekki er hægt að kanna með skilningarvitunum fimm einum saman. Lífið á sér leyndardóma og lagskiptan tilgang sem reynist óskiljan- legur þeim sem ætla að beita tölfræði og raunsæis- tökum. Það er hægt að gefa sér að maður með reynslu Gunnlaugs geti orðið góður sálusorgari. Það er jafn Ijóst að einungis sterkur persónu- leiki hefði getað yfirunnið þá reynslu án þess að láta þug- ast. Sjálfur segir hann: „í dag finnst mér allt hægt. Ég skapa minn heim sjálfur." □ 12

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.