Vikan


Vikan - 20.02.1995, Blaðsíða 21

Vikan - 20.02.1995, Blaðsíða 21
aö ég hafi komið af fjöllum. Diddú var samt ekkert aö kenna mér hitt og þetta með einhverjum vísifingri. Hún tók mig bara meö sér og ég var bara á svæðinu. Og það var náttúrlega æðislegt. Hún hefur heldur ekkert verið að gefa mér heilræði í sam- bandi við skemmtanabrans- ann. Það hafa því ekki verið nein „drastísk" heilræði eða nein dramatík þarna á ferð- inni.“ HLUSTAÐI EKKI Á ÓPERUR Þegar Diddú var unglingur hlustaði hún á hippalög, eða „hippastöff“ eins og Páll Óskar kallar það, Joan Baez og Joni Mitchell. „Annað man ég ekki,“ segir Páll Ósk- ar. „Það eina sem ég veit, er að hún var ekkert voðalega gefin fyrir klassíska tónlist þegar hún var unglingur. Það var oftar en ekki hún sjálf sem slökkti á útvarpinu þegar eitthvað svoleiðis byrj- aði á Rás eitt. En Diddú er MEÐ PÁL ÓSKAR Í EFTIRDRAGI Fyrstu minningar Páls Ósk- ars um Diddú eru þegar hún var að skamma hann. Hún hafði þá kynnst eiginmanni sínum, Þorkeli Jóelssyni hornleikara, og var hjá hon- um í Mosfellssveitinni. Páll Óskar var í pössun hjá þeim Diddú hafði mikið að gera. Hún var í Sál leikhúsinu og var söngkona í Spilverki þjóðanna. „Af einhverjum or- sökum drattaðist Diddú með mig hvert sem hún fór. Ég veit ekki hvort ég hafi verið í svona miklu uppáhaldi eða hvað. En ég bý að því í dag að hafa kynnst því út á hvað „show business" virkilega son og bjuggu þau mæðgin- in áfram á Sólvallagötunni. „í rauninni fíla ég mig aldrei eins og ég sé yngsta barnið. Ég átti alltaf einn yngri bróð- ur sem í rauninni var frændi minn. Þegar svona margt er um manninn er náttúrlega hvert herbergi fullskipað og það var voðalega lítið um næði. Við mamma vorum bara ein heima þegar eldri krakkarnir voru í skólanum. En mamma var starfandi húsmóðir allan þennan tíma. Hún fór ekki að vinna utan heimilis fyrr en 1982. Og fram að þeim tíma hafði pabbi verið eina fyrirvinnan. Og það er svolítið skrítið að einn kall sé fyrirvinnan og sjái um níu manna fjölskyldu. Þetta er bara hlutur sem fólki þætti fáránlegur í dag. Þetta væri ekki hægt fjárhagslega séð. í sjálfu sér var mamma næstum því hrakin út á vinnumarkaðinn því það voru ekki til peningar til að halda uppi heim- ilinu. Jafnvel þótt næstum því allir krakk- arnir væru farnir að heiman." í einhvern tíma og Diddú sá til þess að hann væri baðað- ur hátt og lágt á hverjum degi. „Ég hataði það,“ segir Páll Óskar. „Hún þurfti alltaf að koma mér í baðkarið með einhverjum svaka látum. Svo man ég líka eftir því þegar ég þurfti að fara út í bakarí að kaupa vínarbrauð handa Spilverki þjóðanna þegar hljómsveitin var að æfa. Diddú var að passa mig og þetta var þegar þau voru að gefa út sína fyrstu plötu. Ég man alltaf eftir þessum vínarbrauðskaupum. Þá var nýkomið á markaðinn eitt- hvað svona gotterí sem var í plastumbúðum." Diddú tók Pál Óskar með sér við ólíklegustu tækifæri. Og litla manninum fannst hljóðfærin og allt stússið í kringum skemmtanabrans- gengur. Ég var baksviðs þegar hún var að æfa í Lísu í Undralandi og mér fannst það algjört æði. Hún lék klikkaða hérann og mér fannst hún „brillianf. Við átt- um útvarpsupptöku af leikrit- inu og ég hlustaði stanslaust á það til að „pikka upp“ stæl- ana í henni. Hún tók mig líka með sér á Grænjaxla en þar sá Spilverk þjóðanna um músíkina. Svo tók hún mig með sér á leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem heitir Hvað er í hvalnum? Það var æðislegt. Sérstaklega af því að það var risastór hvalur á miðju sviði sem gat opnað kjaftinn og gleypt alla fisk- ana. Og ég fékk að vera inni í hvalnum einu sinni. Það var rosalegt. Þannig að loks- ins þegar ég byrjaði sjálfur að vinna á sviði og troða upp þá get ég ekki sagt BERNSKUMINNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.