Vikan - 20.02.1995, Blaðsíða 57
STJORNUSPA FYRIR MARS
HRUTURINN
21. mars - 20. apríl
Hrútar eru ekki hrifnir af því
þegar þeir eru beönir um að sitja á
sér. En táðu tímann í lið með þér
með því að iáta stórar ákvarðanir
sitja á hakanum. Einbeittu þér þess
í stað að ýmsu því heima og í vinn-
unni sem kann að virðast smávægi-
legt en nagar engu að síður sýknt
og heilagt í þér samviskuna. Þetta
gildir fram í síðari hluta mánaðarins
og einkanlega skaltu gefa gaum að
atriðum sem varða líf þitt og heilsu.
Eftir 21. er sólin mætt i merkið og þá
er eins gott fyrir þig að vera til í tusk-
ið. . .
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Fyrst í stað kann þér að
virðast erfitt að ná jafnvægi milli eig-
in öryggis og þeirra krafna sem um-
hverfið virðist gera til þín um þessar
mundir. Þó er ekki útilokað að þú
náir jafnvæginu og eftir það eru þér
allir vegir færir. Sennilega hefurðu
aldrei getað ímyndað þér að þú ætt-
ir nokkurn tímann möguleika á þvi
vali sem þú kemur til með að standa
frammi fyrir að þessum forsendum
gefnum. Nýtt starf, nýtt fólk, fram-
andi staðir. Skyndilega opnast fyrir
þér nýr heimur fjölbreyttra tækifæra.
Láttu ekki freistast til að lofa ein-
hverju sem gæti hindrað þig í því að
njóta lifsins.
TVÍBURARNIR
22. maí - 22. júní
Þrátt fyrir að öðrum veitist
erfitt að skilja framtíðaráætlanir þín-
ar þá er ekki þar með sagt að þú
eigir ekki að reyna til þrautar að
koma þeim í skilning um þær. Þú
þarft nefnilega á stuðningi að halda
við að hrinda áætlununum í fram-
kvæmd. Með því að ræða áformin
við aðra gefst þér tækifæri til að
sníða af þeim ýmsa agnúa sem
kynnu anna-s að valda vandræðum.
Um miðjan mánuðinn gerirðu þér
grein fyrir því hversu miklu máli það
skiptir að hafa aðra á sínu bandi og
þá muntu sæta allra færa til að
fjölga í þeim hópi þínum. Þungavigt-
arhnettirnir Satúrnus og Plútó sjá
síðan til þess að þú haldir einbeit-
ingunni að því sem mestu máli
skiptir.
KRABBINN
23. júní - 23. júlí
Nú kanntu að vera að velta
fyrir þér hvernig best sé að víkka
sjóndeildarhringinn - með námi,
ferðalögum eða á annan hátt. En
staða stjarnanna og þá ekki síst
hins gagnmerka Satúrnusar, auk
ýmissa skyldna í vinnunni eða ann-
arra skuldbindinga gerir kröfur til
gagnrýninnar og yfirvegaðrar um-
hugsunar. Gefðu ekkert upp á bát-
inn, ekki sist vegna áhrifa sólarinnar
í Krabbanum þann 21. Þá eru kjör-
aðstæður fyrir þig til að taka ákvörð-
un um það hvernig þú getir á sem
áhrifaríkastan hátt aukið víðsýni
þína.
LJÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Ef þú nærð að hrista af þér
fjárhagslegar klyfjar eða bagga af
öðru tagi og sannfæra þá sem máli
skipta, um að styðja þig muntu
sennilega geta nýtt þér athyglisverð
tækifæri sem þér gefast til að fá út-
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Byrjun marsmánaðar er tími
andagiftarinnar því þá mætir Venus
þeim Úranusi og Neptúnusi. Þar
með verður þér Ijóst að draumar
þurfi ekki eingöngu að vera tálsýnir
ef huga og hönd fylgja agi og ein-
beiting. Með því að ganga hiklaust
til óþægilegra verka muntu eiga
auðveldara með að vinna þig út úr
erfiðum kringumstæðum. Láttu þó
ekki eigin málefni mæta afgangi,
svo sem líkamlega heilsu eða and-
lega. Þrátt fyrir að fyrirkomulag af
þessu tagi kunni að reynast erfitt
á
rás, annaðhvort fyrir sköpunargleði
eða ástina. En hversu girnilegir sem
þessir kostir virðast skaltu bak-
tryggja þig vandlega. Stattu heiðar-
lega að málum, forðastu deilur og
Ijúktu þeim með samkomulagi. Þetta
kann að reyna á taugarnar en borg-
ar sig þegar til lengri tíma er litið.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Framundan er timi ýmissa
ákvarðana og því reynist nú þörf á
talsverðri ígrundun og frumkvæði.
Þú þarft þar af leiðandi að skipu-
leggja vel hvernig þú ætlar að
standa að þessum málum til þess
að vera við stjórnvölinn. Ýmislegt er
óljóst til að byrja með en með því að
velja og hafna fyrr en síðar kann þér
að veitast skipulagningin auðveldari
í framtiðinni. Hafðu engar áhyggjur
af þróun mála fyrirfram, þú munt
takast á við hvert vandamál fyrir sig
þegar þar að kemur og hugmyndir
að úrlausnum vakna þá. Láttu þó
ekki fallast í þá freistni að málin
leysist af sjálfu sér og þótt ástin sé
mikils megnug þá getur hún ekki
tekið fyrir þig ákvarðanir.
viðureignar muntu uppskera bæði
stöðugleika og afl til þess að berjast
fyrir rétti þínum.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 22. nóv.
Eitthvað mun gerast í byrjun
mánaðarins sem þér léttir við vegna
þess að þér lætur betur að lifa við
sannleika en ósannindi. Þetta kann
að hægja á þér og þar kemur hníg-
andi Plútó við sögu. En þá hefur
nógu margt drifið á daga þína til
þess að þú getir sett öll atvik (rökrétt
samhengi. Og þegar öll kurl eru
komin til grafar muntu komast að því
að þú ert í raun ágætlega á vegi
stödd og betur en þú hugðir. Tæki-
færi til útrásar fyrir sköpunargleöi
eða ástina eru jafn raunveruleg og
þau sýnast og vel þess virði að grípa
þau.
BOGMAÐURINN
23. nóv. - 21. des.
Nú er lag að beina athygl-
inni að margvíslegum kostum og
möguleikum sem þér standa til
boða. Gleymdu þó ekki fjölskyldunni
og heimilinu sem þurfa alltaf að fá
sinn skerf. Mál koma upp sem varða
framtíðaröryggi. Staða Satúrnusar
þann 6. ætti að verða til þess að þú
gerir þér grein fyrir því að þú getur
ekki gert allt, sem þig langar til, [
einu vetfangi. Síðan mun sólin færa
sig yfir í Hrútsmerkið og þar með
lifnar yfir þér og fleirum í kringum
þig þann 21.
STEINGEITIN
22. des. - 20. janúar
Blákaldar staðreyndir kunna
að vefjast fyrir þér þannig að þér
veitist erfitt að taka staðfastar
ákvarðanir. Treystu þá á eðlisávi's-
unina. Meðan á þessu tímabili
stendur skaltu reyna að læra af
reynslunni og því fleira, sem drífur á
daga þína, þvi betra. Nú reynir á
sveigjanleika þinn og áræði tii þess
að reyna eitthvaö nýtt. Flestu get-
urðu alltaf dregið þig út úr ef si'ðar
kemur i' Ijós að þér líkar það ekki.
Þú skalt því leggja áherslu á „könn-
unarleiðangra" út fyrir túngarðinn án
þess þó að binda þig varanlega. Nú
ertu sennilega sjálfsöruggari en
nokkru sinni fyrr.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Atburðir allan marsmánuð
sýna þér, svo ekki verður um villst,
að það er aldrei hægt að gera allt í
einu. Þar skiptir engu hversu full-
komið skipulagið er. Þú veltir fyrir
þér fjármálunum en mættir einnig
gefa meiri gaum þeim tíma sem þú
hefur til umráða. Hvorugt er nefni-
lega takmarkalaust og óráðlegt að
hunsa atriði sem snerta tíma og fjár-
mál. Mun skárra er að sökkva sér
ofan í málin til að ræða þau og
leysa. Koma síðan upp úr kafinu
með lausnirnar. Mars hefur áhrif á
persónutengsl þín þannig að ástvinir
þínir eru undir miklu álagi og, að þér
finnst, eigingjarnir. Gerðu þér góða
grein fyrir aðstæðum til að ekki sjóði
upp úr.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Nú liggur mikið við! Þær
ákvarðanir sem þú munt taka fyrstu
tíu dagana í mars munu væntanlega
leggja línurnar fyrir árið. Staðfesta
er eiginleiki sem er mikilvægur við
þessar aðstæður. Ef valið stendur
milli þi'n og annarra er áríðandi fyrir
þig að setja eigin mál á oddinn.
Stattu fast á þínu, sérstaklega á
tímabilinu 14.-17. Frestaðu engum
ákvörðunum af því að þegar tíu
daga tímabilinu lýkur tekur við
ákjósanlegur tími til þess að hrinda
áformunum í framkvæmd. Þú gætir
hagnast verulega á margan hátt ef
þú kiknar ekki undan álaginu núna.
2. TBL. 1995 VIKAN 57
STJORNUSPA