Vikan - 20.02.1995, Blaðsíða 59
PEðwic .
afiÍH
Feröamenn eru mættir í
hópum á sunnudags-
morgni til þess að aka
upp í Harlem meö leiðsögu-
fólki og fá aö vera viðstaddir
guðsþjónustu hjá blökku-
fólki, sem reynist vera vel
ferðarinnar virði.
Til Harlem er haldið með
ferðaskrifstof-
unni Harlem
Spirituals, á
1697 Broad-
way, sími:
212-757-0425.
Harlem var
Mekka blökku-
manna í New
York og mið-
depill afrísk-
ameríska
samfélagsins
um miðbik
síðustu aldar.
Á bannárun-
um voru 30 þúsund ólöglegar
knæpur í New York og helm-
ingur þeirra í Harlem. Hinn
upphaflegi Cotton Club var
þeirra og stóð við 7th
Ave, sem nú er Adam Clayt-
on Powell Jr. Blvd.
í Morningside Heights, við
Hudsonána, er Columbiahá-
skóla að finna og tvær feg-
urstu kirkjur New York; dóm-
kirkju heilags Jóhannesar og
Riversidekirkjuna. í Harlem
er einnig annar háskóli, City
College. í City College voru
engin skólagjöld þar til 1970
að New York borg varð
gjaldþrota og þessi hefð
varð niðurskurði að bráð.
Austar liggur Hamilton
Heights, þekktasta blökku-
mannasamfélag Bandaríkj-
anna. Hamiltonhæðir voru
upphaflega byggðar sveita-
setrum auðkýfinga. Stað-
setningin hátt uppi á hæð
gerði að verkum að eftirsótt
var að eiga hús þar. Hamil-
tonhæðir heita eftir Alexand-
er Hamilton og timburhús
hans stendur enn, njörvað á
milli kirkju og íbúðahúsnæð-
is. Hamilton var hægri hönd
George Washington, forseta.
Hann var fyrsti fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna og
stofnaði landsbanka til þess
að sameina gjaldmiðla
landsins, en fyrir byltinguna
höfðu öll upphaflegu fylkin
sína eigin mynt. Hamilton
bjó í þessu sumarhúsi sínu í
Harlem tvö síðustu æviár
sín. Hann var veginn í ein-
vígi við stjórnmálalegan
keppinaut sinn, Aaron Burr,
árið 1804. Hamilton skaut
upp í loftið.
Við ökum einnig gegnum
niðurnítt hverfi þar sem
skotbardagar dópsala eru
daglegt brauð á götum úti en
Hamiltonhæðireru lítil perla í
sorahafinu. Fáir íbúar New
York vita af þessum hluta
Harlem, þar eð hann er í
miðju hverfinu en ekki á
neinum jaðri sem hvíti mað-
urinn hættir sér á. Hingað til
hefur það þótt fífidirfska að
hætta sér inn í Harlem.
Hamiltonhæðir eru kallaðar
Sugar Hill, því þar var lífið
„sætara". Hér átti fólk húsin
sín og sýndi stolt sitt með
því að hirða þau vel. Þriggja
og fjögurra hæða raðhúsin
voru byggð á árunum 1886
til 1906. Efnaðir kaupsýslu-
menn létu byggja húsin fyrir
sig, þýskir gyðingar, Hol-
lendingar, Skotar og írar. Út-
lit raðhúsanna er friðað og
mikið er um flæmsk og róm-
önsk áhrif. Bestu synir Har-
lem völdu sér bústað á Sug-
ar Hill, þeir Thurgood Mar-
shall, Count Basie, Duke
Ellington, Cab Calloway og
hnefaleikakappinn Sugar
Ray Robinson bjuggu þar
allir. Rétt hjá eru fyrstu fé-
lagslegu íbúðirnar í New
York, sem Rockefeller lét
byggja um 1930 en fjöl-
skylda hans hefur gefið
ótaldar milljónir til mannúð-
arstarfsemi.
í grenndinni hefur Duke
Ellington verið tileinkuð
2. TBL. 1995 VIKAN 59
VIKAN I NEW YORK