Vikan


Vikan - 20.02.1995, Síða 27

Vikan - 20.02.1995, Síða 27
hvers og eins eru svo mis- munandi er þögnin versti óvinur elskendanna: T.d.: X kyssir Z mikiö á eyrun í hita leiksins vegna þess að X finnst það kynæsandi. Nú bara vill svo til aö Z þolir alls ekki þessi atlot og þegar kossaflensiö á eyrunum er alveg að gera útaf við Z sök- um þagnarinnar á milli þeirra verður auðvitaö aö gera eitt- hvað í málunum. X og Z ræöa málin; X hættir aö kyssa Z á eyrun en Z tekur aftur á móti viö því verkefni og bæöi eru ánægö. VERJUM TÍMANUM SAMAN Þegar fólk hefur verið lengi saman vill það oft brenna við aö kynlífið sé sett ..aftast á listann '; ekki fyrr en en seint og síöar meir - þeg- ar búiö er að þvo upp - ganga frá - koma börnunum í rúmið - Ijúka við helstu símtölin - jafnvel borga reikningana - svo mikið sé nefnt. Báðir aðilar eru oft hundþreyttir eftir daginn og hugsa mikiö um það hversu snemma þeir þurfi aö vakna næsta morgun og í ástarleik- inn - ef hann á sé þá yfirleitt stað - vantar alla orku og hugmyndarflug. Ef svona heldur áfram verður kynlifið innihaldslaust og óspenn andi. Það er þvi mikilvægt þeg ar þreyta er komin í kynlífið að hressa upp á þaö með því aö verja meiri tíma sam- an - ein og út af fyrir sig - taka símann úr sambandi, njóta samvista hvors annars og leyfa rómantíkinni aö blómsta óhindraða. REYNID EITTHVAÐ NÝTT En þetta dugir ekki alltaf. Ekki alveg. Næsta skrefið er þá aö reyna eitthvert nýtt svona til að „flikka upp á“ kynlífiö. Notið ímyndunarafliö: • Lítill koss hér og þar. • Silkirúmföt. • Hjálpartæki kynlífsins. • „Sexý' undirföt. • Hvers kyns gælur . . . • . . .eöa horfiö á eina bláa saman. . . o.s.frv. Gott kynlíf krefst tíma, skipulagningar og undirbún irigs. Ast og samkennd staönar þegar gengiö er út frá þeim sem visum. Smá til- breytni getur gert gæfumun inn. •/ iw ivv'í VIKAN 27 KYNLIF

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.