Vikan


Vikan - 20.02.1995, Side 33

Vikan - 20.02.1995, Side 33
fylgstu með dagskránni. Þeir, sem eiga erfitt með að sofna á kvöldin, ættu ekki að fá sér miðdegislúr. En fyrir þá, sem vinna erfiðisvinnu og eiga auðvelt með að sofna á kvöldin, ætti mið- degislúr ekki að skaða. Hann ætti þó ekki að vara lengur en í eina klukkustund. PLÖNTUR BÆTA LOFTIÐ Lengi var því haldið fram að plöntur ættu ekki heima í svefnherbergjum. En nú er öldin önnur. Það er búið að komast að því að plöntur framleiða súrefni og bæta loftið. Sérstaklega plöntur með stór blöð eða mikla blaðgrænu. RÚMDÝNAN Margir, sem sofa illa, liggja á vondri dýnu. Bestu dýn- urnar eru þær þar sem hryggurinn er í sinni eðlilegu stellingu. Axlirnar og mjaðm- irnar mega síga aðeins nið- ur, enda á dýnan að geta lagað sig eftir líkamslögun hvers og eins. Ef þú liggur á of harðri dýnu hvílist líkam- inn ekki og of mikið álag verður á einstökum líkams- hlutum eins og öxlum og mjöðmum. Ef þú liggur á of mjúkri dýnu er það eins og að liggja í hengirúmi. Og það veldur því að hryggurinn liggur ekki beinn. Þumal- puttareglan er að þungt fólk eigi að sofa á harðari dýnum en þeir sem léttari eru. En stærð og líkamsbygging spil- ar einnig inn í. RYKMAURAR Þessi örsmáu sníkjudýr, sem lifa á öllum heimilum, geta valdið ofnæmi. Því mið- ur þrífast maurarnir best í rúmfötum og dýnum. Ef þér er oft kalt á morgnana getur ástæðan verið sú að þú sért með ofnæmi fyrir rykmaur- um. Og vot augu og stíflað nef bætir ekki svefninn. Þú getur alltaf látið athuga hvort þú sért með ofnæmi. Og ef svo reynist vera getur þú alltaf fengið eitthvað til að bæta líðanina. Að vissu marki getur mikið hreinlæti haldið rykmaurunum í skefj- um. En það er erfitt að eiga við þá. SÚREFNI OG HITASTIG Þegar tvær manneskjur sofa í 15 fermetra herbergi, þar sem glugginn er lokaður, er súrefnið orðið heldur lítið eftir þrjár til fjórar klukku- stundir. Það besta er að opna glugga þannig að í loft- inu myndist hringrás. Til að sofa vel þarf loftrakinn að vera 40 - 50%. En loftraki undir 20% getur valdið höf- uðverk og streitu. Afleiðingin verður svefntruflanir. Til að vera öruggur um góðan svefn þarf hitinn í herberginu að vera um 16 gráður. Ef hit- inn er hærri eða lægri en 14 - 19 gráður má búast við að fólk sofi illa. SÆTUR DRYKKUR Þú gætir átt auðveldara með að sofna ef þú drekkur eitthvað sætt fyrir svefninn. Sykurinn breytist í tryphtop- han sem er amínósýra sem eykur svefnþörf mannsins. Rautt kjöt, hunang og mjólk- urafurðir hafa sömu áhrif. VANDAMÁL Hvíla áhyggjurnar á þér á kvöldin þegar þú ferð að sofa? Koma leiðinlegar hugsanir í veg fyrir að þú getir sofnað? Margir þeir, sem þjást af svefnieysi, eiga við fleiri erfiðleika af sálræn- um toga að stríða en aðrir. Ef þreytandi hugsanir halda þér vakandi verður þú að taka til þinna ráða. Því leng- ur sem þær vara því erfiðara verður fyrir þig að komast fyrir þær. Reyndu, í samráði við fjölskyldu og vini, að ná betra taki á vandamálunum. Ef það dugar ekki getur þú farið í meðferð hjá sálfræð- ingi. □ nam Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlitra af Aloe Vera þegar þú getur fengið tvöfalt meira magn af Aloe Vera geli frá Banana Boat á aðeins 1000kr.? Hvers vegna að bera á sig 2% af þráavarnarefnum þegar þú getur fengið 99,7% hreint Aloe Vera frá Banana Boat? Biddu um Banana Boat ef þú vilt 99,7% hreint Aloe Vera gel á 40-60% laegra verði. Það er alltaf ferskt (framleitt eftir pöntun), án spírulínu, án kemískra lyktar- efna eða annarra ertandi of- næmisvalda og fæst í 6 mísmun andi túpu-, brúsa- og flöskustærðum. Þú finnur engan mun á því að bera ferska, 99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat og hlaup úr Aloe Vera blaði beint á sár, bólgur eða útbrot. Prófaðu líka Banana Boat E-gelið á sölustöðum Banana Boat (fæst einnig í 3 stærðum hjá Samtökum psori- asis- og exemsjúklinga), hrukkuhindrandi og húðmýkjandi Banana Boat A-gel, baugaeyðandi og húðstyrkjandi Banana Boat kollagen gel, hraðgræðandi Banana Boat varasalvann með sólarvörn #21, græðandi, mýkjandi og rakagefandi Banana Boat Body Lotion með Aloe Vera, lanolíni, A-, B-, D- og E-vítamíni, húðnærandi og öldrunarhindrandi Banana Boat djúpsólbrúnkugel fyrir Ijósaböð. Banana Boat sólmarg- faldarann sem milljónfaldar sólar- Ijósið ( skýjaveðri, Banana Boat sól- varnarkremið með hæsta sólvarnar- stuðulinn á markaðnum, #50, næringar- kremin Banana Boat Brún-Án-Sólar í 3 gerðum, Naturica BK Sólbrún-lnnan-Frá, Naturica hrukkubanann, alnáttúrlega svita- lyktareyðinn, kristalsteininn sem þú strýkur eftir blautum handarkrika þar sem kvikna engar lyktarbekteríur. Biddu um Banana Boat i apótekum, á sólbaðsstofum, í snyrtivöruverslunum, öllum heilsubúðum utan Reykjavikur og í Heilsuvali, Barónsstíg 20, "S 626275 2. TBL. 1995 VIKAN 33 RÁÐLEGGINGAR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.