Vikan - 20.02.1995, Page 53
andi móteli, þar sem Alvin
beið. Og þar var 13 ára
stúlkunni nauðgað og henni
misþyrmt nánast án afláts
næstu fjóra dagana af hinum
tröllvaxna Alvin - þó að Ju-
dith léti reyndar ekki sitt eftir
liggja.
Á fimmta degi hafði Judith
fengið nóg og ákvað að nú
væri kominn tími til að losa
sig við stúlkuna. Sjúkt hug-
arfar hennar réði því að hún
ákvað að stúlkan skyldi
hljóta eins kvalafullan dauð-
unnt væri; hún
skyldi gjalda fyrir losta Alvins
og höfnun hans á Judith.
Einhvers staðar hafði Judith
komist yfir skáldsöguna
„Early Graves“ eftir Thomas
Cook, en þaðan fékk hún þá
hugmynd að myrða stúlkuna
með sýru. Hún sprautaði því
sex skömmtum af natríum-
hydroxíði, eða vítissóda, í
upphandlegg stúlkunnar.
Þetta nægði þó ekki til að
bana Lisu, en olli þess í stað
stórum, tærðum sárum, sem
hljóta að hafa verið óbæri-
lega kvalafull.
Þegar vítissódinn virtist
ekki ætla að gagnast sem
skyldi ók Judith hálfsturlaðri
stúlkunni upp að eyðilegum
stað við gilbarminn og skaut
hana þar í höfuðið en fleygði
likinu ofan í gilið. Þessu
næst hringdi hún til lögregl-
unnar, rétt eins og eftir árás-
irnar á Dooley og Adair.
að því er honum fannst, og
hann tók að sýna áhuga á
öðrum konum. Þau tóku upp
fyrra flökkulíf en í þetta sinn
á tveimur bílum; Judith hafði
fætt Alvin tvíbura, skömmu
eftir að hún var handtekin,
og börnin ferðuðust með
henni. Þau sáu fyrir sér, á
sama hátt og áður, með
smáglæpum.
Það leið ekki á löngu þar
til Judith gerði sér grein fyrir
því á hvern hátt Alvin nýtti
sér aukið frelsi sitt. [ örvænt-
ingu gerði hún samning við
hann. Hún skyldi sjá honum
fyrir stúlkum svo framarlega
sem hún fengi að ráða örlög-
um þeirra að leiknum lokn-
um!
Alvin kann að hafa verið
stór og sterkur en hann ótt-
aðist Judith, og ekki að
ástæðulausu. Hvert sem
hún fór bar hún á sér 38 ka-
líbera skammbyssu, og það
var ævinlega hún sem hafði
forystu þegar þau frömdu
ránin. Alvin óttaðist að hún
myndi drepa hann færi hann
ekki að samningnum.
Það leið ekki á löngu þar
til Judith lét Alvin efna loforð
sitt um hefndir gegn starfs-
mönnum heimilisins. Og þar
með upphófst blóðugur ferill
hermdarverka.
NAUÐGAÐ,
MISÞYRMT OG
SPRAUTUÐ MEÐ SÝRU
Þann 25. september 1982
var Lisa Millican stödd í
verslunarmiðstð bæjarins
ásamt skólafélögum sínum.
Enn er ekki Ijóst hvernig
Judith fór að því að hafa
stúlkuna á brott með sér, en
þar næst lá leiðin á nærliggj-
John Hancock liföi af skot í
hrygginn, en unnusta hans
var ekki eins heppin.
FÓRNARLÖMBUM
FJÖLGAR
Leit lögreglunnar að Ju-
dith og Alvin bar ekki árang-
ur strax og á meðan vökn-
uðu girndir Alvins að nýju.
Judith varð því að finna nýtt
fórnarlamb.
Þann 3. október var hinn
26 ára gamli John Hancock í
göngutúr ásamt unnustu
sinni. Hún var 22 ára og hét
Janice Chatman. Á leið sinni
gengu þau fram á konu sem
stóð við bifreið sína og leit út
fyrir að vera í vandræðum.
Hún sagðist vera nýflutt til
bæjarins og afar einmana og
spurði hvort þau væru fáan-
leg til að fara með sér í bíltúr
um bæinn og sýna sér það
helsta. John og Janice fundu
til með konunni, og þar sem
þau höfðu ekkert sérstakt
annað að gera samþykktu
þau að fara með henni. Þau
grunaði ekkert misjafnt, ekki
einu sinni þegar hún ók sem
leið lá í átt frá bænum, en
ekki að honum, og beygði
inn á afvikinn vegspotta. Þar
beið hennar karlmaður við
annan bíl. Konan dró fram
skammbyssu og skipaði
John út úr bílnum en hlekkj-
aði Janice við bílsætið með
handjárnum. Judith hrakti
John á undan sér inn í skóg-
arþykkni þar sem hún skaut
hann í bakið. Hún vissi ekki
betur en að hann værir látinn
svo að hún sneri aftur að
bílnum þar sem Alvin beið.
Þessu næst óku þau Janice
að enn öðru móteli og
nauðguðu henni og mis-
þyrmdu í tvo daga samfleytt.
Síðan fór Judith með hana
út í skóg og skaut hana.
Um sama leyti og Janice
hlaut banaskotið var unnusti
hennar að komast til meðvit-
undar á spítalanum. Hann
hafði lifað af skotið og kom-
ist við illan ieik til byggða en
legið rænulaus á spítalanum
síðan. Og það var lýsing
hans sem sannfærði lögregl-
una um að það væru þau
Judith og Alvin
sem stæðu að
baki glæpunum.
Þegar lögregl-
an hafði að lok-
um uppi á hjú-
unum höfðu þau
þegar náð að
ræna enn einni
stúlku, Jean Ca-
sey. Þegar lög-
reglan ruddist
inn á mótelið
komu þeir að Al-
vin þar sem
hann var að
nauðga stúlkunni. Leiknum
var sem betur fer lokið.
Þrátt fyrir ungan aldur
sýndi réttvísin Judith enga
miskunn. Hún var dæmd til
dauða og tekin af lífi í raf-
magnsstólnum. Alvin afplán-
ar hins vegar tvöfaldan lífs-
tíðardóm og þykir ólíklegt að
hann verði nokkurn tímann
látinn laus. □
Judith
stytti sér
stundir
viö lestur
reyfara
meöan
hún beiö
rafmagns-
stólsins.
2. TBL. 1995 VIKAN 53
^ld^VlO