Vikan - 20.02.1995, Blaðsíða 64
MATREIÐSLA
VEISLUFISKUR
f. 4.
600 g rauðsprettuflök (má
nota ýsuflök)
1 lítill laukur
2 hvítlauksrif
2 msk. smjör
1 pakkning saffran (0,5 g)
1 tsk. karrí
1 1/2 msk. hveiti
1 1/2 dl vatn
1/2 teningur fiskkraftur (leystur
upp í vatninu)
1 1/2 dl rjómi
1 tsk. fáfnisgras (tarragon/
estragon)
salt og svartur pipar
2 msk. sítrónusafi
nokkrar rækjur, sveppir eða
kræklingar til skrauts
Aðferö:
1. Saxið laukinn og pressið
hvítlaukinn og léttsteikið í
smjöri á pönnu.
2. Stráið saffran og karrí yfir
laukinn og léttsteikið
áfram í nokkrar mínút-
ur. Stráiö
hveitinu yfir og hrærið vel
í. Þynnið með fiskkraft-
svatninu og rjómanum.
3. Látið þetta sjóða í nokkr-
ar mínútur og blandið
fáfnisgrasinu, salti og pip-
ar ásamt sítrónusafa út í.
4. Setjið fiskstykkin út í sós-
una. Sjóðið undir loki við
vægan hita í 3-5 mínútur.
5. Setjið svolítið af rækjum,
sveppum eða kræklingi
yfir réttinn áður en hann
er borinn fram.
6. Borið fram á pönnunni
ásamt kartöflum, soðnu
grænmeti (t.d. broccoli)
og/eða hrásalati.
ÍSLENSKIR POTTAR
OG PÖNNUR
Frá árinu 1986 hefur fyr-
irtækið Alpan hf fram-
leitt potta og pönnur
undir heitinu LOOK. Heild-
verslunin Amaro hf á Akur-
eyri sér um dreifingu á vör-
unum. Til ársins 1992 keypti
Alpan hf ál í pottana og
pönnurnar frá Álverinu í
Straumsvík en síðan þá hef-
ur álið verið keypt frá Eng-
landi og Svíþjóð.
Nýlega festi fyrirtækið
kaup á sjálfvirkri samstæðu
til rafbrynjunar á pottum og
pönnum. En rafbrynjunin
gerir það að verk-
um að yfirboröið endist bet-
ur.
Vörurnar frá Alpan hf hafa
slitsterka húð sem tærist
ekki. Auðvelt er að þrífa þær
þar sem húðin er sleip og af
þeim sökum þarf litla feiti við
eldamennskuna. Hitinn dreif-
ist jafnt, botninn er þykkur og
verpist ekki og höldurnar á
pottunum og pönnunum eru
hitaþolnar þannig að setja
má þær í bakarofn.
lman'5
~ÉNGLISH~<
Mustard
SINNEP FYRIR
SÆLKERA
Amarkaðinn eru komn-
ar nýjar sinnepsteg-
undir frá breska fyrir-
tækinu Colman’s. Það er því
upplagt að prófa þær á
pylsurnar, grillsteikina
og hamborgar-
□