Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 4
l*Wm
Þau komust í úrslit keppninnar með fatahönnun sína.
Ingibjörg er þriðja frá hægri.
NAUIN
LOSEANS
ingibjörg Grétarsdóttir, sem er tvítug, bar sigur úr býtum
í hönnunarkeppni Völusteins, sem er meö umboö fyrir
Husquarna saumavélar og Vogue verslananna. Verð-
launin fékk hún fyrir hálfgegnsæjan kjól þar sem áltölur
hylja þaö sem hylja þarf.
g fékk saumavél í
fermingargjöf frá
ömmu og ég er vön aö
sauma og breyta föturn."
Ingibjörg er í jakka meö
brúnu hlébarðamynstri sem
hún keypti í Fríðu frænku.
Annars er hún svartklædd.
„Ég hef alltaf safnað efnis-
bútum og saumað til dæmis
töskur sem ég hef gefið vin-
konum minum í afmælis-
gjöf.“ Fyrir utan saumavélina
var það námskeið í fata-
saumi i Menntaskólanum við
Sund sem kveikti áhugann á
fatahönnun.
„Ég hef alltaf átt rosalega
mikið af fötum. Draumurinn
er að opna fataverslun þar
sem ég verð með sérhönnuð
föt og ýmsa hluti sem ég hef
föndrað. Mig dreymir líka um
að selja gamla kjóla sem ég
mundi kaupa á mörkuðum í
útlöndum." Verslunin er enn í
hillingum en sumir kjólarnir
eru til staðar. Ingibjörg starf-
aði sem au pair í Frakklandi
og á þeim tíma sankaði hún
að sér gömlum kjólum.
Verslunin Fríða frænka er
í uþþáhaldi hjá Ingibjörgu.
Fyrir utan föt hefur hún með-
al annars keypt þar glugga-
tjaldaefni og úr þeim hefur
hún saumað kjóla. Á þá hef-
ur hún síðan saumað perlur.
„Allt sem er gamaldags og
handsaumað heillar mig.“
-Hvað er svona spennandi
við að sauma og hanna eigin
föt? „Maður getur búið til
sérstök föt, jafnvel úr óvenju-
legum efnum, sem enginn
annar á.“ Ingibjörgu finnst
það vera drasl sem fæst í
tiskuvöruverslunum í dag.
„Þetta eru einfaldar flíkur en
samt mjög dýrar.“
Það var ein vinkona Ingi-
bjargar sem benti henni á að
taka þátt í keppni Husquarna
og Vogue verslananna. Þátt-
tökuskilyrði voru að keppend-
ur væru ekki lærðir í fata-
hönnun eða -saumi, þeir
máttu ekki hafa unnið við
hönnun eða saumaskap og
þeir urðu að skila inn flík í takt
við þemað sem var „nautn
lostans". Ingibjörg hugsaði
gott til glóðarinnar. Hún átti
fyrir skissur af kjólum sem
hún breytti í takt við þemað
en verðlaunakjóllinn er hins
vegar ný hönnun. Þrátt fyrir
margra ára þjálfun í sauma-
skap lét Ingibjörg fagmann
sauma kjólinn. Það var heldur
ekkert verið að dæma hann út
frá saumaskap heldur var
hönnunin aðalatriðið. „Ég
lagði áherslu á að kjóllinn
væri kynæsandi en samt
glæsilegur. Hann er úr gegn-
sæju og teygjanlegu siffoni.
Áltölurnar, sem eru á honum,
spreyaði ég gylltar og svartar.“
Ingibjörgu langar ekki ein-
ungis til að opna fataverslun-
ina. Hana langar til að læra
kjólasaum í Iðnskólanum.
„Það eina sem mér finnst
vera neikvætt við þetta nám
er hvað það er langt.“ Námið
tekur sjö annir. „Það er
kennd einhver tískuteiknun
og hönnun en ég held að að-
aláherslan sé á sauma-
skapnum. Ef mér finnst ég
ekki fá nógu mikið úr hönn-
uninni þá hugsa ég að ég
drífi mig til Frakklands. Ég
veit um hönnunarskóla og
námiö í honum tekur tvö ár.“
□
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR/UÓSM.: GUNNAR GUNNARSSON