Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 61
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
manna Reykjavíkur. Þar var
hann líka vanur að gefa mál-
verk sín, sagði mamma mér.
Eins og hann kemur mér fyr-
ir sjónir þá hefur hann verið
þessi sanni listamaður sem
elskar aðeins eitt; málverkin
sín. Kjarval hefur verið virki-
lega fínn náungi.
Ég á portrett af mér og
systur minni sem málað var
á íslandi þegar við vorum lít-
il. Ég held að málarinn hafi
heitið Halldór Pétursson en
hann dó víst fyrir tveimur ár-
um síðan. Þetta var f
Reykjavfk og ég man sér-
staklega vel eftir þessu því
ég mátti ekki hreyfa mig á
meðan hann vann og það
var í heila tvo daga. Það var
erfitt fyrir lítínn strák. En ég
þekki þetta vel núna.“
GERIR ÚT Á UÓSA
KOLLINN OG BLÁU
AUGUN
Hvað þurfa menn að hafa
til að bera til að verða fyrir-
sætur?
„Það er náttúrlega þetta
góða útlit. Sterkur persónu-
leiki skiptir líka miklu máli því
að þú ert þinn eigin vinnu-
veitandi. Þetta snýst um að
„take care of business"."
Þarftu að stunda lyftingar
eða Ifkamsrækt öllum stund-
um? Er meiri áhersla lögð á
vöðva í Bandaríkjunum en í
Evrópu?
„Já, sérstaklega í Miami.
Hér eru fallegir menn og fal-
legar konur. í Evrópu eru
þeir að leita að annars konar
fólki. Ég geri það ekkert sér-
staklega vel hér þvf ég geri
ekki út á vöðva heldur það
að vera öðruvísi. Ljósa hárið
og bláu augun gera mig
öðruvísi og það er einmitt sú
týpa sem margir hinna
íhaldssömu „clients" (kúnna)
vilja. Almennt má segja að
vöðvatröllunum gangi vel í
Miami en þeim, sem gera út
á sérstakt útlit, gengur vel í
Evrópu og líka í New York.
Ég vinn mikið fyrir skandi-
navísk fyrirtæki, það bregst
varla að þau bóki mig. Svip-
aða sögu má segja um Þjóð-
verjana, þeir eru væntanlega
enn hrifnir af Skandinövum.“
Shawn segir, að þrátt fyrir
velgengni þá hafi hann einn
djöful að draga þegar að fyr-
irsætustörfum kemur. Hann
hefur nefnilega átt við þrálát
meiðsl í ristinni að stríða
undanfarin ár og þau hafa
torveldað honum allar hreyf-
ingar. „Eg get stundum ekki
hreyft mig. Það eru ekki allar
myndatökur sem felast í því
að vera kyrr, oft þarf ég að
hlaupa eða ganga á settinu.
Kúnnarnir vilja að módelin
séu „fit“ og verði þeir varir
við einhvern veikleika hjá
þér geturðu verið í vondum
málum. Af þessum sökum
hef ég misst nokkur störf en
ég er að jafna mig og eftir
fimm mánuði get ég farið að
sinna ástríðu minni, skokk-
inu, á ný, fari ég varlega
með mig.“
Hverjar eru framtfðaráætl-
anir þínar?
„Á meðan vel gengur hjá
okkur Móniku í fyrirsætu-
störfunum þá höldum við
áfram. Það er ýmislegt sem
mig langar til að gera
seinna, t.d. langar mig að
prófa að taka námskeið í
leiklist þótt ég hafi engan
metnað til að verða stór kvik-
myndastjarna.
Eitt er það sem ég hef
mikla ástríðu á en það eru
antíkmunir. Ég gæti hugsað
mér að opna antíkverslun í
framtíðinni líkt og mamma er
að fást við. Antíkmunir eru
hennar ær og kýr og í gegn-
um hana hef ég öðlast
sæmilega þekkingu á brans-
anum. Ég hef ýmis sam-
bönd, veit hvaða uppboð eru
best og þekki mikið af
áhugaverðu fólki sem hrifið
er af fornmunum.“
Við Shawn erum engan
veginn að kveðjast þótt við-
talinu sé næstum lokið. Við
erum þegar búnir að skipu-
leggja partí heima hjá hon-
um í bakgarðinum undir
Flórídasólinni næstu helgi
þar sem allra þjóða kvikind-
um verður hrist saman alla
endilanga nóttina. Áður en
ég held heim á leið bregður
Shawn sér inn í stofu sína
sem full er af skemmtilegum
antíkmunum og dregur upp
úr skúffu einni öskubakka
fornfágaðan. Á öskubakkann
er búið að höggva mynd af
fólki við heyskap og bónda-
bæ. Gripurinn er gjöf frá afa
Shawns, Eggerti járnsmiði.
Barnslegt stoltið leynir sér
ekki í íslenskum svip Minne-
sota búans. „Ég er ákveðinn
í að fara aftur heim til ís-
lands á næstunni," segir
hann einbeittur á svip. „Eg
ætla að upplifa það á ný
hvernig það er að vera ís-
lendingur. Kannski ég reyni
að fá pláss á togara." □
ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN,
FÓTSNYRTING, HANDSNYRTING,
DAG- OG KVÖLDSNYRTING,
VAXMEÐFERÐ (NÁTTÚRULEGT VAX)
Varanleg eyðing hára og háræðaslits
með Sylvia Lewis rafmagnsmeðferðinni
Snyrtistofan 9-írund
snyrtiny • versíun • [jós
[jrœnatimi 1 • 200 ‘Kppavoyur • Sími 554 4025
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
^ii,,
^ DEKURDAGAR ^
Lúxus andlitsbað m/ litun, plokkun og augnmaska.
Handsnyrting m / parafinmaska. ALLT ÞETTA Á ADEINS
Fotsnyrtmg. 13.000, -* rétt verð 16.350,-
Meó qervinöqlum 15.000,-
*ssiw%
Líkamsnudd og/eða Trim Form.
Vaxmeðferð.
Förðun.
SiNiYiRiTiIiSiTiOiFiA
HRAUNBÆ 102 • SIMI 587 9310
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <0 562 6162
Opib:
mán.-fös.
kl. 10.00-18.30
Laugardaga:
kl. 10.00-16.00
Snyrtistofa & Sumartilbob
snyrtivöruverslun Andlitsbað kr. 2.500,-
Engihjalla 8 Hand- og fótsnyrting kr. 3.000,-
200 Kópavogi Litun °8 Plokkun kr. 990,-
Sími 554 0744
Fatnabur í úrvali
Katrín Karlsdóttir fótaabgeröa- og snyrtifræbingur
2. TBl. 1996 VIKAN 61