Vikan - 01.05.1996, Blaðsíða 77
Stúlkan á myndinni á við
algengt vandamál að stríða
en það er að húðin undir
augabrúnum er mikil þannig
að þegar hún er með augun
opin þá hverfa augnlokin svo
til alveg. Til að gera minna úr
pokunum sem virðast hanga
yfir augunum er sett mikið af
nokkuð dökkum skugga á
þetta svæði, dreift vel úr hon-
um upp og út, næstum að
augabrúnunum. Skugginn er
dýpkaður þegar nær dregur
ytri brúnum og er látinn vísa
á ská upp á við. Þá er örmjó
lína dregin meðfram augn-
hárunum á efri augnlokum og
einnig undir þau neðri. Þetta
gerir augnlögunina ákveðnari
og mikið af maskara var sett
á augnhárin sem voru nærri
ósýnileg áður.
Stutt bil á milli augnanna:
Þegar bilið er stutt á milli
augnanna er best að setja
Ijósan augnskugga við augn-
krókana og þá virðist bilið
vera meira. Síðan er dökkur
skuggi settur við ytri brúnir.
Á myndinni sést að dökki
FYRIR
EFTIR
augnskugginn nær langt í
áttina að gagnaugunum.
Fyrir ofan efri augnhár var
máluð örfín lína og mjúk lína
undir þau neðri, frá miðju og
út - þannig virkar bilið milli
augnanna meira. Maskara
varð auðvitað að nota og
síðan var augnabrúnalínan
skerpt með blýanti.
Mikiö opin augu: Áberandi
augnlok og langt bil á milli
augna og augnabrúna gerir
það að verkum að viðkom-
FYRIR
EFTIR
andi virðist alltaf hálf hissa.
Á móti þessu er unnið með
því að bursta Ijósum augn-
skugga yfir augnabeinið,
nokkuð dökkum, en óræðum
lit á augnlokin og enn dekkri
lit eftir brún augnbeinsins og
tii að forma augað - liturinn
nær akkúrat hálfa vegu upp
að augnabrúnunum frá augn-
loksboganum.
Þar sem augnlokið er sér-
lega breitt þá er þar mikið
pláss fyrir augnmálningu og
hægt er að hafa breitt strik
fyrir ofan augnhárin. Lína er
sett fyrir ofan neðri augnhár.
Djúpt liggjandi augu: Jafn-
vel stór augu sem eru djúp-
liggjandi geta virkað lítil. Hér
var hvítur augnskuggi settur
á augnlokin til að ná þeim
fram. Einnig var settur Ijós
litur í augnkrókinn af því bilið
á milli augnanna er líka
nokkuð stutt. Djúpliggjandi
augu mynda í raun sinn eig-
in skugga, þannig að skugg-
inn sem settur var á augn-
beinsbrún, miðja vegu upp
að augabrúnum, var ekki
mikill eða sterkur. Augnlína
var dregin fyrir ofan efri
augnhár.
FYRIR
EFTIR
Byrjað á mjög fínni línu f
augnkrókunum sem fór
breikkandi. Þetta, ásamt
maskara gerir mikið til að ná
augunum úr felum. Stúlkan á
myndinni er auk þess með
fremur hátt enni og til að
draga úr því eru augnabrún-
irnar burstaðar upp.
Þreytuleg augu: Þegar
augu vísa niður á við þá virð-
ist viðkomandi alltaf vera
þreyttur. Þessu var breytt
með því að setja skugga
undir augnbeinsbrúnina sem
endaði í línu sem vísar upp á
við. Augnlokin voru höfð Ijós
en augnlína dregin frá augn-
krók út á enda augnloks þar
sem línan breikkaði aðeins.
Smávegis af augnskugga
var sett undir neðri augnhár-
in ásamt afar fínni línu, beint
undir augnhárunum.
FYRIR
EFTIR
Stór, þung augnlok: Það
getur verið gott að vera með
stór augnlok, af því þau er
hægt að mála mikið. Aftur á
móti geta þau virkað þung,
þannig að augnsvipurinn
FYRIR
EFTIR
virkar syfjulegur. Til þess að
vega á móti þessum syfju-
lega svip var settur Ijós
augnskuggi á augnlokin,
augnumgjörðin formuð með
dekkri lit sem settur var á
augnloksbrún og hálfa leið
upp að augnabrúnum - síð-
an breið, mjúk lína fyrir ofan
efri augnhárin.
Þegar augnhárin eru löng
en bein, þá verður syfjulegi
svipurinn enn meiri. Breyt-
ingin sem verður við það að
bretta augnhárin upp með
augnhárabrettara og mála
þau siðan strax á eftir með
maskara, er hreint ótrúleg -
eins og myndirnar sýna og
sanna.
FYRIR
EFTIR
Lítil augu: Jafnvel lítil augu
geta virkað stór þegar búið
er að mála þau á réttan hátt.
Lítið fyrst á „fyrir“ myndina
og síðan á muninn sem varð
við það að Ijós augnskuggi
var settur yfir allt augnlokið
og síðan mynduð umgjörð
með því að setja mikið af
dökkum skugga - en mjúk-
lega - frá augnloksbrún
hálfa leið upp að augabrún-
um. Einnig var sett örlítið af
skugga undir neðri augnhár
og að lokum Ijós litur undir
augnbrúnirnar. Skoðið vand-
lega myndina sem tekin var
„á eftir“ og þá sést að þessi
litur undir augnabrúnum ger-
ir beinabygginguna umhverf-
is augun ákveðnari. Maskari
á augnhárin opnar augun
enn betur og lætur þau virka
stærri.
Krumpuð augnlok: Forðist
að nota sanseraða augn-
skugga, þeir endurkasta birt-
unni og augnlokin virðast
enn hrukkóttari. Augnskugg-
ar sem eru ekki sanseraðir
gefa mýkra útlit og endur-
varpa ekki birtunni á sama
hátt, þannig að áherslan
verður minni á augnlokin.
Djúpir, reyklitaðir tónar eru
bestir - en ekki setja of mik-
inn lit. Notið maskara og
eyeliner til að beina athygl-
inni að augnhárunum og frá
augnlokunum.
Augnmálning fyrir þær
sem nota gleraugu
Það sem fyrst og fremst
verður að hafa í huga til að
vinna á móti glampanum í
glerjunum er að nota nóg af
augnmáiningu. Það þýðir
alls ekki að nota þurfi mjög
mikið og mjög sterka liti, en
það þýðir heldur ekki að
setja á sig mjög föla og
gegnsæja eða sanseraða
liti og ætlast til að þeir sjá-
ist.
Notið þess í stað djúpa og
náttúrulega tóna - Ijósbrúna,
drapplita, gráa - og Ijós-
bleika eða Ijósdrapplita fyrir
neðan augnabrúnir. Leggið
áherslu á beinabyggingu
með því að forma hana meö
dekkri skuggum þannig að
þrívídd myndist sem sést vel
f gegnum gleraugun.
Þegar gleraugnaumgjörð
er valin er betra að velja
hana ekki mjög litla þannig
að hún virðist þrengja að
augunum. Þvf meira af
augnsvæðinu sem sést í
gegnum gleraugun því svip-
meiri verður augnmálningin.
Gler, sem eru aðeins lituð,
hylja aðeins hrukkótt augn-
lok og bauga undir augun-
um, en mjög ákveðnir litir,
eins og fjólublár og bleikur,
gera augnmálninguna svip-
litla. □
2. TBL. 1996 VIKAN 77